Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 56
BLS. 10 | sirkus | 27. JÚLÍ 2007
Ívar Guðmundsson
„Fitness-kóngurinn er góður í útvarpi. Nær
alltaf athygli manns svo maður nennir að
hlusta á hann.“
„Alltaf svo skemmtilegur og hress. Spilar
góða tónlist og er auðvitað í góðu formi. Ívar
hefur góða og ljúfa rödd sem mér þykir alltaf
gaman að hlusta á.“
„Það sem er frábært við Ívar er þessi enda-
lausa orka. Jákvæðni er hans einkenni. Músík-
in hans er hress og skemmtileg og kemur
manni alltaf í gott skap. Það er ekki bara and-
lit á bak við þessa rödd, líka hreystimenni sem
er góð fyrirmynd allra.“
„Skemmtileg og djúp rödd sem hæfir stælt-
um skrokknum. Hann er búinn að „vera í þess-
um bransa“ í sautján ár... allavega mjög lengi!
- það skilar sér í sjálfsöryggi. Kannski er hann
samt búinn að vera of lengi, það er ekkert sem
kemur honum á óvart lengur - væri alveg til í
meira spontant tilsvör hjá honum.“
Óli Palli
„Það er svo gott að hlusta á hann og sérstak-
lega út af því að hann hefur svo margt að segja
og veit svo mikið um það sem hann talar um.
Hann er bara með þetta. Mikill sjarmi í rödd-
inni.“
„Rödd Óla Palla hefur alla réttu eiginleik-
ana fyrir tónlistarkynningar. Maður leggur
sannarlega við hlustir, enda yfirburðamaður
hvað varðar þekkingu á efninu sem hann
býður upp á.“
„Það klikkar aldrei að hlusta á Óla Palla í
Rokklandi. Að mínu mati ein besta röddin og
frábær útvarpsmaður. Spilar alltaf góða og
fjölbreytta tónlist. Röddin hans er alltaf hress
og kát sem fær mig til að hlusta á Rás 2.“
Guðrún Gunnarsdóttir
„Með svo fallega rödd, fallegan hlátur og
góðan talanda.“
„Smitandi, glaðleg og laus við alla tilgerð.“
„Uppáhaldsútvarpsmaðurinn minn er klár-
lega Guðrún Gunnarsdóttir. Hún er bara ynd-
isleg, smitar frá sér lífsgleði, orku og skemmti-
legheitum.“
Gerður G. Bjarklind
„Viðmið allra kvenkyns útvarpsradda. Maður
heyrir og skilur allt sem hún segir, maður
heyrir að henni er ekki sama um nokkurn hlut
og yfir Gerði sofna ég öruggur þegar mamma
er ekki heima.“
„Rödd hennar býr yfir einhverjum klassísk-
um þokka. Gæði og stöðugleiki í framsögn
virkuðu sem gæðastimpill fyrir útvarpsstöð-
ina þar sem hún starfaði.“
„Þetta er fjallkonuröddin. Ef einhver myndi
spyrja mig hvernig rödd Ísland hefði þá myndi
ég segja nákvæmlega eins og Gerður.“
Freyr Eyjólfsson
„Röddin er afslöppuð og kímin. Greinilega
mikill húmoristi, það skín í gegn. Svo er hann
sætur líka.“
„Rödd hans er virkilega róandi og hann
hefur einstakt lag á því að ná því besta út úr
viðmælendum sínum áreynslu- og fyrirhafn-
arlaust.“
„Hefur það sem þarf. Hann er með skemmti-
lega og grípandi rödd, maður heyrir alltaf
hversu gaman hann hefur af starfinu og það
skilar sér beint til hlustenda. Hann hefur full-
komið sjálfstraust og tekur sig ekki of alvar-
lega - það er alltaf heillandi og spennandi
faktor í fari karlmanna, ég tala ekki um
útvarpsmanna.“
Broddi Broddason
„Einn af fáum fréttaþulum sem flytja fréttir,
segja frá, í stað þess að lesa bara upp af blaði.
Röddin er mjög traustvekjandi, sú eina sem ég
vil heyra þegar ég kveiki á útvarpinu um miðja
nótt eftir harðan jarðskjálfta eða eldgos.“
„Með fullkomna útvarpsrödd og mér skilst
að hann hafi meira að segja hlotið fjölda við-
urkenninga frá fólki með heyrnarvandamál.
Það heyrist líka á honum að honum líður vel
fyrir framan mækinn, er slakur og svalur. Ég
trúi öllu sem Broddi segir.“
„Það skilar sér hvert einasta orð sem upp úr
manninum kemur! Sannfærandi, rólegur og
hrikalega flottur útvarpsmaður.“
SIRKUS LEITAÐI TIL NÍTJÁN MÁLSMETANDI ÁLITSGJAFA Í LEIT AÐ BESTU ÚTVARPSRÖDDINNI.
BESTU RADDIRNAR ER GREINILEGA AÐ FINNA HJÁ RÍKISRÁSUNUM OG BYLGJUNNI.
ÞAU VORU LÍKA NEFND:
Guðni Már Henningsson
„Vart getur það verið kynþokkinn hjá Guðna
Má enda maðurinn með grófari mönnum í
útliti. Rödd hans er bara svo þægileg og hann
virðist mjög fylginn sér í útsendingum, saman-
ber Næturvaktina á föstudagskvöldum. Ekki
skemmir það fyrir að hann virðist að mörgu
leyti hafa svipaðan tónlistarsmekk og ég.“
Ágúst Bogason
„Djúp og falleg rödd, falleg hrynjandi og afar
sexí rödd.“
Þorgeir Ástvaldsson
„Gamli jaxlinn er sá albesti sem við höfum.
Með fædda rödd í radíóið.“
Sigvaldi Kaldalóns
„Öflugur. Örugglega eini maðurinn á FM sem
er með almennilega útvarpsrödd.“
Gissur Sigurðsson
„Gamli sjarmurinn. Ómótstæðileg rödd! Daðr-
andi, djúp og skemmtilega gróf.“
Ragnhildur Magnúsdóttir
„Venst voða vel en ég veit ekki með kynþokkann
í röddinni.“
Svanhildur Jakobsdóttir
„Alltaf jafn seyðandi og ung í röddinni. Gaman
að heyra hennar kvenlegu, fallegu raddhrynj-
andi. Þú heyrir að þetta er flott kona.“
Bergljót Baldursdóttir
„Hinn kvenlegi mótleikari Friðriks Páls, hún er
bjarta hliðin. Hún er yfirveguð og þægileg;
ákveðin en um leið mild.“
Bjarni Ólafur Guðmundsson
„Hefur ótrúlega þægilega rödd, þó hún sé dálít-
ið hrjúf, hefur bara svo góð áhrif.“
Hallgrímur Thorsteinsson
„Sakna þess að heyra ekki meira í honum í
útvarpi, röddin hans er algjör snilld, djúp en
samt svo þýð.“
Arnþrúður Karlsdóttir
„Rödd hennar er djúp en algjörlega óvæmin og
það er notalegt að hlusta á hana.“
Bragi Guðmundsson
„Röddin vefur mann í bómull, hlý og mjúk, sexí
og seiðandi!“
Gestur Einar Jónasson
„Sannkallaður gleðigjafi, gáskinn og bjartur
hljómurinn í röddinni lýsir upp hversdaginn.“
Búi Bentsen
„Það hversu fyndinn hann er gerir rödd hans
svaðalega kynþokkafulla sem þar af leiðandi
fær mann til þess að vilja hlusta endalaust.“
Heimir Karlsson
„Þægilegur útvarpsmaður. Eins og einn af fjöl-
skyldunni, ótrúlega eðlilegur og alltaf hann
sjálfur.“
Friðrik Páll Jónsson
„Með hina fullkomnu „fréttamannsrödd“. Full
af sannfæringu og trúverðugleika. Rödd sem
auðvelt er að treysta, manni dettur ekki í hug
að draga í efa neitt af því sem slík rödd segir
manni.“
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
„Besta útvarpsrödd í heimi! Manni finnst ein-
hvern veginn eins og maður sé kominn í eld-
húsið hjá ömmu með glas af mjólk og jólaköku
þegar maður heyrir í henni. Algjör sæla að
heyra þessa frábæru rödd.“
Álitsgjafar:
Heiða Ólafsdóttir söngkona
Anna Kristjánsdóttir bloggari
Soffía Sveinsdóttir veðurfréttakona
Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt
Brynja Þorgeirsdóttir fréttamaður
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri
Heiðar „snyrtir“ Jónsson
Kolbrún Halldórsdóttir alþingiskona
Unnur Pálmarsdóttir líkamsræktardrottning
Elín Gestsdóttir framkvæmdastjóri Ungfrú
Ísland
Andrés Guðmundsson kraftakarl
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari
Björg Þórhallsdóttir söngkona
Hildur Magnúsdóttir söngkona
Ívar Guðmunds er með
bestu útvarpsröddina