Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 77
Aðdáendur Beðmála í
borginni geta glaðst því
nýr þáttur frá hugmynda-
smið Sex and the City,
Darren Star, er í vinnslu
fyrir sjónvarpsstöðina
ABC.
Nýi þátturinn mun heita Cash-
mere Mafia og mun einnig fjalla
um fjórar fallegar konur í New
York-borg en Star lofar því að
þátturinn verði allt öðruvísi en
Sex and the City. „Þetta er þáttur
sem fjallar um konur í viðskiptum
og þeirra daglega líf á meðan Sex
and the City fjallaði aðallega um
kynlíf. Mörgum þykir þetta
kannski skrýtið að gera annan
þátt um fjórar konur en mér finnst
það alls ekki þar sem það er svo
mikið efni í þessari hugmynd.“
Með hlutverk kvennanna fjög-
urra fara þær Miranda Otto,
Frances O‘Connor, Bonnie Som-
erville og Lucy Liu. Tískuaðdá-
endur ættu einnig að gleðjast þar
sem hin frábæra Patricia Field
mun einnig sjá um stílíseringu
þáttanna en hún er ábyrg fyrir því
hversu vinsælir þættirnir voru í
tískuheiminum. „Við erum mjög
heppin að fá Patriciu í lið með
okkur enda er hún snillingur í að
setja saman flíkur og lætur
alklæðnaði líta út eins og lista-
verk,“ sagði Lucy Liu. „Ég held
hún muni gera eitthvað glænýtt
núna enda sagði hún það sjálf við
mig í búningsherberginu um dag-
inn að hún endurtæki sig aldrei.“
Tónlistarkonan Hafdís Huld hefur
fengið mjög góða dóma fyrir
frammistöðu sína á tónlistarhátíð-
inni Hultsfred í Svíþjóð sem var
haldin á dögunum. Hultsfred er
ein stærsta tónlistarhátíðin á
Norðurlöndunum og í ár komu 160
hljómsveitir frá öllum heimshorn-
um þar fram.
Í blaðinu Nojesguiden var birt-
ur listi yfir fimm bestu tónleikana
og lenti Hafdís þar í efsta sæti.
Fyrir neðan hana voru þekkt nöfn
á borð við Ozzy Osbourne, 50 Cent,
Amy Winehouse, Korn og Manic
Street Preachers. Lenti Winehouse
til að mynda í fimmta sæti á list-
anum. „Þetta var heillandi blanda
af krúttlegheitum, fínum popp-
perlum og skemmtilegum ukulele-
leik,“ sagði í blaðinu. Að auki líkti
blaðamaðurinn plötu Hafdísar,
Dirty Paper Cup, við jarðarberja-
tínslu sumarsins.
Sænska dagblaðið Östran setti
tónleika Hafdísar á topp tíu hjá
sér auk þess sem frammistaða
hennar fékk fjóra af fimm í
einkunn á netsíðunni sydmark.se.
Tónlist Hafdísar Huldar er gefin
út af Playground music á Norður-
löndunum og er stefnt á að hljóm-
sveit hennar fari þangað í tón-
leikaferðalag á haustmánuðum.
Fyrstu tónleikar Hafdísar á Íslandi
verða í Salnum Kópavogi þann 9.
ágúst næstkomandi.
Ofar en Ozzy og Winehouse
Leikkonan Lindsay Lohan var
tekin öðru sinni fyrir ölvunarakst-
ur í vikunni líkt og fram kom í
Fréttablaðinu. Handtakan kom sér
illa fyrir fleiri en Lindsay því
þáttastjórnandinn Jay Leno hafði
bókað hana í þáttinn sinn sama
kvöld. Þar var henni ætlað að
kynna nýja mynd sína I Know Who
Killed Me. Lindsay afboðaði og
Leno þurfti að finna staðgengil
með skömmum fyrirvara. Leikar-
inn Rob Schneider, sem lék meðal
annars í myndunum um karlhór-
una Deuce Bigalow og The Hot
Chick, var fenginn til þess að
hlaupa í skarðið. Hann mætti
klæddur sem Lindsay í svörtum
kjól og með ljósa hárkollu. Punkt-
urinn yfir i-ið var ökklaband líkt
og það sem leikkonan hefur þurft
að ganga með undanfarið, en því
er ætlað að skynja hvort hún neyt-
ir áfengis eða ekki.
Leno gerði stólpagrín að öllu
saman í upphafi þáttar síns þar
sem hann sagði meðal annars að
það hefði greinilega verið mis-
skilningur að hans helstu keppi-
nautar væru Nightline og Letter-
man. Samkeppnin væri greinilega
Cops og America´s Most Wanted.
Leno gerir grín að Lindsay