Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Listakonan upprennandi Alda
Ægisdóttir kann að koma sér á
framfæri þrátt fyrir ungan aldur
en hún er aðeins átta ára gömul.
Alda var á leikjanámskeiði við
Austurbæjarskóla og ákvað að
halda þar málverkasýningu ásamt
vinkonu sinni, Elfu. Stöllurnar
létu ekki þar við sitja heldur sendu
fréttatilkynningu til fjölmiðla til
að láta vita af viðburðinum. „Það
var Elfa sem stakk upp á að við
myndum láta blöðin vita. Okkur
var sagt að það væri allt of dýrt en
konan hélt örugglega að við
værum að tala um auglýsingu. Það
er nefnilega ekkert dýrt að hringja
eða senda tölvupóst.“
Sýningin var opnuð í síðustu
viku. Aðgangseyrir var 5 krónur
fyrir börn en 10 krónur fyrir full-
orðna. „Það komu nú mjög fáir. En
við fengum einn
tíkall. Við ætlum
samt að halda áfram
með sýninguna. Hún
er í hvítum kofa
fyrir utan Austur-
bæjarskóla og fólk
getur komið þang-
að meðan við erum
á námskeiðinu.“ Á
sýningunni er að
finna málverk
eftir stelpurnar
en Alda segist
fást við ýmislegt
annað. „Ég er svo
rosalega góð í að föndra,“ segir
hún en í fréttatilkynningunni
kemur einmitt fram að hún sé
„föndursmeistari“. „Ég föndra
mikið alls konar hluti, t.d. úr blöð-
um. Ég geri mjög sjaldan skraut
og finnst best að
föndra mér eitt-
hvað til að leika
með. Um daginn
gerði ég strengja-
brúðu.“ Alda seg-
ist ætla að verða
listakona þegar
hún verður stór.
Hún segist líka
skrifa ljóð í bók en
skellir upp úr þegar
blaðamaður spyr
hvort bókin verði
líka á sýningunni.
„Nei, hún er svo verð-
mæt. Ég get ekkert verið að taka
hana með mér í skólann og svo-
leiðis!“
Lét fjölmiðla vita af listasýningu
Ríkasti maður Íslands, Björgólfur
Thor Björgólfsson, er mikið á ferð
og flugi starfs síns vegna. Það
aftrar honum þó ekki frá því að
gefa sér tíma til að sinna heilsunni
og þegar hann er staddur hér á
landi æfir hann af krafti í Laug-
um.
Athygli hefur vakið að við-
skiptajöfurinn er sjaldnast einn í
för því honum fylgir einkaþjálfari
við hvert fótmál. Sá er þó ekki á
vegum líkamsræktarstöðvarinnar
eins og venja er heldur er hann
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins í vinnu hjá Björgólfi og
sinnir því einu að halda honum í
formi. Þjálfarinn er breskur og að
sögn sér hann líka um að sjá til
þess að mataræði Björgólfs sé í
lagi.
Athygli hefur vakið að þjálfar-
inn umræddi gengur frá öllum
lóðum eftir Björgólf og þrífur þau
svæði sem þeir hafa verið á.
Það mun ekki vera óalgengt að
fólk með fjárráð á borð við Björ-
gólf leyfi sér slíkan munað enda
margvísleg jákvæð áhrif líkams-
ræktar margsönnuð.
Björgólfur vekur jafnan athygli
annarra gesta í Laugum. Ef ekki
fyrir einkaþjálfarann breska þá er
það fyrir klæðnaðinn. Björgólfur
þykir nefnilega einstaklega vel til
hafður í ræktinni, til að mynda í
Dolce & Gabbana hlýrabolum.
Björgólfur með einkaþjálfara í fullu starfi
„Það er aðallega eitthvað létt í
útvarpinu. Mér finnst voðalega
gott að hlusta á Gullbylgjuna,
það er rólegt og værðarlegt.
Mér finnst notalegt að heyra
eitthvað sem maður hefur
heyrt oft áður.“
„Okkar draumsýn er að láta gott
af okkur leiða. Það er náttúrlega
draumur ef maður getur unnið
við það að hjálpa öðrum,“ segir
söngkonan Birgitta Haukdal, sem
vinnur nú með samtökunum Navia
í félagi við þrjá aðra Íslendinga.
Navia stendur fyrir The Nordic
Miracle Group, eða Norrænu
kraftaverkasamtökin. Markmiðið
er að fólk á Norðurlöndunum taki
höndum saman um að hjálpa þeim
sem minna mega sín í heiminum.
Að samtökunum standa auk
Birgittu þau Bjarney Lúðvíks-
dóttir, sem áður starfaði hjá Esk-
imo og Casting, Trausti Bjarna-
son, sem getið hefur sér gott orð
sem lagahöfundur í Eurovision,
og Svanhvít Aðalsteinsdóttir sem
starfar hjá Útflutningsráði.
Að sögn Birgittu er hugmyndin
með Navia að koma af stað sam-
norrænu verkefni sem leiði gott
af sér, safna peningum fyrir þá
sem þurfa á því að halda. Tónlist-
in verður þar í aðalhlutverki og
eitt af verkefnunum verður að
stofna norrænt stelpnaband. Liðs-
menn þess verða frá öllum Norð-
urlöndunum, einn frá hverju
landi, Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Finnlandi og Íslandi.
Ekki hefur enn verið gengið
nákvæmlega frá því hvernig
stúlkurnar verða valdar í bandið
en unnið er að því í samstarfi við
danskan leikstjóra. Búist er við
því að tökur hefjist seint á þessu
ári eða snemma á því næsta.
Allt í allt verða þrettán sjón-
varpsþættir sýndir um stúlkna-
bandið nýja, sem mun heita Navia.
Stúlknasveitin mun að líkindum
ferðast um og syngja og spila til
að safna fé fyrir bágstadda. Það
verður meðal annars gert með
framlögum frá fyrirtækjum.
Á heimasíðu samtakanna,
Navia.is, má sjá að sterkir aðilar
hafa gengið til liðs við Navia,
Sjónvarpið, True North, Rauði
krossinn og Iceland Express svo
einhverjir séu nefndir. Birgitta
og aðstandendur verkefnisins
fást ekki til að segja mikið um
næstu skref en segja stórra tíð-
inda að vænta. Vitað er til þess að
þau hafa fundað stíft síðustu mán-
uði, meðal annars um öll Norður-
löndin og skýrir það aðkomu Ice-
land Express að verkefninu.
Birgitta hefur til þessa ekki
verið áberandi á öðrum sviðum
en tónlistinni. Hún segist spennt
fyrir að prófa eitthvað nýtt. „Já,
tónlistin hefur átt hug minn síð-
ustu tíu árin eða svo en meðfram
því hef ég líka verið að læra.
Þetta verkefni var bara svo
spennandi að ég varð að vera
með. Það er svo frábært að geta
starfað við eitthvað sem nýtist
öðrum. Svo er bara vonandi að
þetta verði svo flott verkefni að
það haldi áfram þegar við erum
öll farin yfir móðuna miklu.“