Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 88
Ein af kostulegri reglum Áfeng-is- og tóbaksverslunar ríkisins
eftir að bjórbanninu sleppti var að
lengi mátti ekki kaupa bjór í
stykkjatali, heldur varð að kaupa að
minnsta kosti kippu. Það var sem
háttsettir embættismenn hafi óttast
að almúgafólk myndi valsa inn í
Ríkið, kaupa einn bjór og drekka
hann. Síðan hefur mikill bjór runn-
ið til sjávar. Verslanir ÁTVR heita
nú Vínbúðir, þar sem hægt er að
kaupa eins fáa bjóra og manni sýn-
ist og þekking og þjónustulund
starfsfólks er mikil. Stundum of
mikil.
dögunum leit ég við í Ríkinu og
bað bólugrafinn um að ráða mér
heilt í hvítvínskaupum. Sá tók mér
með kostum og kynjum, leiddi mig
að hvítvínsrekkanum og spurði
hvað ég ætlaði að borða með víninu.
„Ég hafði ekki hugsað mér að borða
nokkurn skapaðan hlut með því,“
svaraði ég. Við þetta svar virtist
mínum kaunum hlaðna vini fallast
allur ketill í eld. Hann sneri sér
aftur að rekkanum og umlaði ein-
hver stikkorð um tilteknar tegundir
en svo var eins og hann gæti ekki
orða bundist og hann spurði: „Ætl-
arðu bara að drekka þetta einn?“
góði,“ hugsaði ég, „lít ég út
eins og einhver þunglynd léttvíns-
pempía á leið á kojufyllirí?“ En
varla er hægt að lá honum að spyrja.
Sjálfsagt var hann mengaður af
öllum þessum lífsstílsþáttum þar
sem forframaðir Íslendingar borða
apríkósufylltar dúfur í hvert mál og
drekka vitaskuld rétta vínið með.
að hafa gert tæmandi úttekt
á húsakosti og híbýlaprýði lands-
manna ræður Vala Matt nú lögum
og lofum í lífsstílsþættinum Matur
og lífsstíll. Svo virðist reyndar sem
lífsstíllinn í nafni þáttarins sé
skrauthverfing fyrir áfengi, en í
þeim hluta þáttarins dregur hjálp-
arhella Völu fram í dagsljósið öll
leyndarmál vínsins. Á dögunum fór
vínfræðingur, sem bar hið minnis-
stæða nafn Dufþakur, til dæmis yfir
gagn og gæði vínbeljunnar. Henni
fylgir að hans sögn „mikil stemn-
ing“ og hún er þeim kostum búin að
„allir geta fengið sér“. Gott að til er
viðunandi staðgengill hins marg-
brotna íláts sem flaskan er.
lífið er flókið og að mörgu að
huga. Eftir dálítið japl, jaml og
fuður urðum ég og sá bólugrafni í
Ríkinu ásáttir um hvað væri gott að
drekka án truflunar frá spörfugla-
kjöti. Ég hélt heim á leið, örlítið
önugur en huggaði mig þó við yfir-
burði þeirra sem leiða hjá sér þátta-
gerð Völu Matt og hennar kóna um
mat og húsgögn. Um leið og ég
komst á flug í snobbinu var ég
sallaður niður aftur; eftir að hafa
gripið mér hvítvínsglas og opnað
Ofvitann eftir Þórberg Þórðarson
blöstu við mér þessar línur: „Það er
meiri íþrótt að kunna að lesa hús en
að geta lesið bækur.“ Fokking brillj-
ant!
Húslestur
Frelsi stöðvar
tímann
Þú borgar bara fyrir fyrstu 3 mínúturnar
en getur svo talað og talað fyrir 0 kr.*
Fylltu á Frelsi með GSM símanum og njóttu þess að vera í gefandi samböndum í sumar.
Til að geta fyllt á Frelsi með símanum þínum þarftu bara að skrá debet- eða kreditkortið
þitt einu sinni á Mínu Frelsi á siminn.is eða í verslunum Símans.
*Eftir 3 mínútna símtal talar þú fyrir 0 kr. næsta hálftímann innan kerfis Símans. Nánari upplýsingar á siminn.is. 800 7000 – siminn.is
SONY ERICSSON K610i
Léttkaupsútborgun
1.900 kr.
1.500 kr. á mánuði í 12 mánuði.
Verð aðeins 19.900 kr.
á su
mar
tilbo
ðisím
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
5
8
9
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is