Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 8
Faroese design
when it is best
Verðum í
Reykjanesbæ á
Ljósanótt
31. ágúst til
2. sept.
Frábær tilboð á
færeyskri hönnun
Thomas Grundt,
annar Þjóðverjanna tveggja, sem
týndust á Svínafellsjökli fyrir
mánuði, hefði orðið 25 ára í dag.
Móðir hans, Brigitte Glinke, er
hér á landi ásamt eiginmanni
sínum og hélt austur að Svína-
fellsjökli í gær, en snýr aftur til
Þýskalands á morgun.
Hún vill koma á framfæri ein-
lægu þakklæti fjölskyldunnar til
allra sem tóku þátt í leitinni, sem
er ein sú umfangsmesta sem gerð
hefur verið hér á landi. Barbara
Hinz, móðir Mathiasar Hinz var
einnig hér á landi í síðustu viku
og hafði þá einnig komið á fram-
færi þökkum til leitarfólks.
Ættingjar og vinir þeirra
beggja fylgdust grannt með leit-
inni og þeirra er sárt saknað. Þeir
hafa lengi verið góðir vinir og
voru báðir þrautreyndir í fjall-
göngum og ísklifri. Þeir komu til
Íslands til að láta gamlan draum
rætast, sem var að ganga á íslensk
fjöll og jökla.
Í minningarorðum, sem ætt-
ingjar þeirra beggja hafa sent frá
sér, kemur fram að Mathias hafi
verið lögreglumaður en Thomas
fjarskiptarafeindafræðingur.
„Mathias var áhugasamur um
allt milli himins og jarðar,“ segja
ættingjar hans í minningarorðum
sínum um hann. „Helstu áhuga-
mál hans í frítíma voru fjallgöng-
ur og klifur og hafði hann því klif-
ið mörg há fjöll og jökla. Draumur
hans var að sjá og klífa íslensk
fjöll.“
Ættingjar Thomasar segja
áhugamál hans hafa verið „fjalla-
hjólreiðar, maraþon, fjallaklifur
og ísklifur. Stærsta ósk hans var
að stunda ísklifur á íslenskum
jökli.“
Þeir komu til landsins 27. júlí
og áttu pantað flugfar heim 17.
ágúst. Fátt var vitað um ferðir
þeirra en leit hófst 21. ágúst á
Svínafellsjökli, þar sem tjöld
þeirra fundust yfirgefin, og stóð í
fimm daga. Aftur var hafin leit
tveimur dögum síðar, en hún bar
engan árangur.
„Við óskum þess öll að þeir
finni friðsæld í þessu fallega
hvíta umhverfi. Við söknum hans
ákaflega,“ segir fjölskylda Mathi-
asar.
„Við óskum honum þess að
hann finni hér frið og að við
getum bráðum fengið hann heim,“
segja ættingjar og vinir Thomas-
ar í minningarorðum sínum.
Þjóðverjanna
ákaft saknað
Ættingjar Þjóðverjanna tveggja sem týndust á
Svínafellsjökli vilja koma á framfæri þakklæti sínu
til leitarfólks. Annar þeirra hefði orðið 25 ára í dag.
Hversu mörg vopn hafa fund-
ist í tollinum í sumar?
Hvað heitir forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins?
Hversu margir hundar hafa
greinst með lifrarbólgu í ár?
Arkitektar munu fyrir
lok þessa mánaðar skila hug-
myndum að hönnun nýbyggingar
við Laugaveg 17 til 21 og reitnum
þar fyrir aftan að Smiðjustíg.
Benedikt T. Sigurðsson, hjá
eignarhaldsfélaginu Festum sem
á lóðir upp á samtals um fjögur
þúsund fermetra á þessum reit,
segir ljóst að húsið á Laugavegi
19, þar sem nú er veitingastaður-
inn Indókína, verði rifið.
Heimild sé til að flytja Lauga-
veg 21, svokallað Hljómalindar-
hús, á annan stað í borginni en
framtíð þess sé óráðin.
Einnig segir Benedikt að
Smiðjustígur 4a þar sem nú er
barinn Grandrokk verði rifinn.
Hið sama gildi um bakhús á
Laugavegi 17 en aðalhúsið muni
standa þar áfram.
Benedikt segir of snemmt að
segja nákvæmlega hvaða starf-
semi verði í nýju byggingunum.
„Arkitektarnir fóru af stað með
að þarna yrðu skrifstofur, versl-
un, þjónusta, veitingastaðir og að
þar gæti verið hótel og íbúðir.
Það gefur hins vegar auga leið að
verslun verður á fyrstu hæðinni,“
segir Benedikt. Undir húsinu
verður bílastæðakjallari.
Deiliskipulag fyrir þann hluta
lóðar Festa sem snýr að Lauga-
vegi er nokkurra ára gamalt.
Benedikt segir eftir að vinna
skipulag fyrir Smiðjustígshlut-
ann. Það verði gert að fengnum
tillögum arkitektanna.
Nýr búðaklasi mun rísa á Laugavegi