Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 10
Urriðaholt í Garðabæ verð-
ur fyrsta vaktaða hverfi landsins.
Allar íbúðirnar, um 1.600 talsins,
verða búnar öryggiskerfi og fara
öryggisverðir í vaktferðir um
hverfið samkvæmt samningi Sec-
uritas og Urriðaholts ehf.
Guðmundur Arason, fram-
kvæmdastjóri Securitas, segir að
þótt hverfið verði vaktað muni
það ekki vera eins og sums staðar
erlendis, sér í lagi í Bandaríkjun-
um, þar sem heilu hverfin eru girt
af og fylgst með öllum sem fara
inn og út.
„Þótt allir séu með kerfi þá er
þetta ekki elítuyfirbragð sem mun
einkenna hverfið,“ segir hann.
„Ímyndin sem forsvarsmenn
Urriðaholts vilja viðhalda er
öryggi án þrúgandi öryggis-
stimpils.“
Fjögur hundruð lóðir í hverfinu
voru seldar í vor og verða afhent-
ar til byggingar í apríl næstkom-
andi. Guðmundur segir gert ráð
fyrir að öryggiskerfin verði
komin í fyrstu húsin um tveimur
árum eftir að byggingafram-
kvæmdir hefjast. Lóðirnar kosta
allt frá 18 og upp í 60 milljónir
króna.
Algengari tegund hverfagæslu
er svokölluð nágrannavarsla. Þá
skiptast íbúar á að hafa auga með
húsum nágranna sinna, sérstak-
lega þegar þeir fara í frí og skilja
húsin eftir mannlaus. Einnig eru
nágrannarnir hvattir til að fylgj-
ast með hvers kyns grunsamleg-
um ferðum og punkta niður bíl-
númer og mannlýsingar.
Sérstöku nágrannavörsluverk-
efni á vegum Reykjavíkurborgar
var ýtt úr vör í nóvember í fyrra,
og voru Dverghamrar í Grafar-
vogi fyrsta gatan sem tók þátt í
því. Skilti var sett upp við götuna
sem gefur til kynna að íbúar henn-
ar hafi tekið höndum saman um
nágrannavörslu.
Sigrún Ævarsdóttir, sem býr
við götuna, segir reynsluna af
nágrannavörslunni góða, hún hafi
ekki heyrt af innbroti í Dverg-
hömrum síðan verkefnið fór af
stað. Óformleg nágrannavarsla
hafi þó verið stunduð í hverfinu í
fjölda ára, en með verkefni
Reykjavíkurborgar hafi hún orðið
mun skipulagðari.
„Þetta er hin full-
komna vitfirring,“ segir Örn Sig-
urðsson, arkitekt og stjórnar-
maður í Samtökum um betri
byggð, um fyrirhugaða sam-
göngumiðstöð í Vatnsmýri.
Haft var eftir Þorgeiri Páls-
syni, forstjóra Flugstoða, í blað-
inu í gær að þurfa kynni að auka
við rými væntanlegrar bygging-
ar, en upphaflega var reiknað
með að hún tæki um 6.500 fer-
metra.
Vilji forstöðumanna Iceland
Express til að fá aðstöðu í sam-
göngumiðstöðinni er helsta orsök
líklegrar stækkunar, en félagið
hefur farið fram á minnst 6.500
fermetra undir eigin rekstur.
„Samkvæmt skýrslu sam-
gönguráðherra kostar minnst 3,5
milljarða á ári að hafa flugvöll-
inn í Vatnsmýri, okkar tölur eru
reyndar nær 14 til 18 milljörðum,
en hvort sem er þarf að drífa í
því að þessi völlur fari,“ segir
Örn.
Arkitektinn bendir á að vænt-
anleg séu úrslit úr alþjóðlegri
hugmyndasamkeppni um fram-
tíð Vatnsmýrarinnar. „Þar komu
tæplega 140 úrlausnir og voru
sextán valdar til frekari
úrvinnslu. Engin þeirra reiknar
með flugvelli, heldur mikilli
borgarbyggð.“
Milljarðahagsmunir séu í húfi,
en ekki skipti minna máli áhrif
vallarins á borgarlífið, sem snú-
ist að miklu leyti um einkabílinn,
því byggja þurfi svo langt frá
miðbænum.
Fullkomin vitfirring í Vatnsmýri
Öryggiskerfi í öllum
íbúðum Urriðaholts
Fjögur hundruð lóðir hafa verið seldar í Urriðaholti, sem nú er í uppbyggingu.
Hver einasta íbúð verður búin öryggiskerfi, og öryggisverðir fara reglulegar
vaktferðir um hverfið. Ekkert elítuyfirbragð, segir framkvæmdastjóri Securitas.
Aðild Írlands að Evr-
ópusambandinu hefur haft marg-
vísleg jákvæð áhrif á hagþróun í
landinu. Þetta segir Alan Dukes,
forstöðumaður Evrópufræða-
stofnunarinnar í Dyflinni (IEA)
og fyrrverandi fjármálaráðherra
Írlands, í samtali við Fréttablað-
ið, en hann er meðal ræðumanna
á ráðstefnu sem haldin verður í
Háskóla Íslands á föstudag undir
yfirskriftinni „Uppspretta auð-
æfa í smáríkjum“.
Mikill hagvöxtur hefur verið á
Írlandi frá því á tíunda áratugn-
um og nú er svo komið að vel-
megun er orðin það mikil í land-
inu að það hefur ekki lengur
tilkall til styrkja úr þróunarsjóð-
um Evrópusambandsins, sem
írskt hagkerfi naut mjög góðs af
fyrstu áratugina eftir inngöngu
landsins í sam-
bandið árið
1973.
Dukes til-
greinir þrjá
þætti, sem
ESB-aðildin
gerði fyrir
hagþróun í
landinu. Í
fyrsta lagi
bætti hún til
muna markaðsaðgang írskra
útflytjenda og greiddi þannig
fyrir auknum utanríkisviðskipt-
um. Í öðru lagi bætti aðlögunin að
sameiginlegu landbúnaðarstefn-
unni tekjur bænda til muna, að
minnsta kosti fram á miðjan
tíunda áratuginn. Í þriðja lagi
ýttu styrkirnir úr þróunarsjóðum
ESB mjög undir hagþróunina
með arðbærum fjárfestingum í
grunninnviðum.
Spurður hvernig Írlandi hafi
reitt af með lágvaxtamyntina
evruna á hagvaxtarskeiðinu frá
því hún varð lögeyrir Íra árið
1999 segir Dukes að evran hafi
ýtt verulega undir útflutnings-
framleiðslu. Hún hafi jafnframt
krafist mun meiri aga af stjórn-
völdum í umgengni við þau hag-
stjórnartæki sem þau höfðu eftir,
þegar hefðbundin peningamála-
stjórn var komin í hendur Seðla-
banka Evrópu.
Önnur afleiðing af þessum
aðstæðum – auðveldu aðgengi að
lágvaxtalánsfé á sama tíma og
þensla ríkir í hagkerfinu – sé
fasteignabóla, sem Dukes segir
vísbendingar um að sé að því
komin að springa.
ESB-aðildin bætti hagvöxt
Nánari upplýsingar og pantanir hjá
Express Ferðum í síma 5 900 100
Flugferð fyrir e-korthafa
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
Franska
rívíeran
Nú býðst e-korthöfum flug til Nice í
Suður-Frakklandi á einstöku verði, aðeins
26.900 kr.
Flogið út
21. september
og komið heim
25. september
Báðar leiðir
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
2
2
9
1
9