Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 12
„D’Angleterre byggir á 250 ára
gamalli hefð sem eitt þekktasta
hótel í Skandinavíu þannig að það
er ekki verið kaupa köttinn í
sekknum,“ segir Gísli Þór Reynis-
son, forstjóri og aðaleigandi fjár-
festingafélagsins Nordic Partn-
ers, sem fest hefur kaup á þremur
hótelum og veitingastað í hjarta
Kaupmannahafnar.
Þeirra á meðal er hið rúmlega
250 ára gamla, fimm stjörnu Hôtel
d‘Angleterre við Kóngsins Nýja-
torg, eitt þekktasta hótel borgar-
innar. Fjölskyldufyrirtækið
Remmen Hotels seldi hótelin þrjú,
d‘Angleterre, Kong Frederik og
Front, og veitingastaðinn Copen-
hagen Corner við Ráðhústorgið.
Kaupverðið var ekki gefið upp en
talið er að það sé á bilinu 15 til 20
milljarðar króna.
Gísli segist ekki óttast að missa
viðskipti vegna gremju heima-
manna með íhlutun íslenskra auð-
manna. „Miðað við fyrri kaup
Íslendinga í Danmörku þá má
maður nú búast við einhverjum
viðbrögðum en það er bara eitt-
hvað sem við munum díla við. Við-
skiptavinir okkar hótela eru að
stórum hluta útlendingar – Danir
eru ekki stór kúnnahópur – þannig
að ég hef ekki áhyggjur.“
„Þetta eru hótel í sérklassa,“
segir Gísli, sem býst ekki við að
gera róttækar breytingar á starf-
seminni. „Framkvæmdastjórinn
mun halda áfram hjá okkur en
vinna eftir nýrri markmiðasetn-
ingu sem við höfum lagt niður. Við
munum taka mjög virkan þátt sem
eigendur í gegnum stjórn félags-
ins.“
Viðræður um kaupin hófust í
febrúar þegar Remmen-hjónin
vildu koma fyrirtækinu í annarra
hendur vegna veikinda eigin-
mannsins, sem er á áttræðisaldri.
„Þau vildu fara hægt í sakirnar og
var ekki sama í hvaða höndum
þetta ævistarf þeirra endaði,“
segir Gísli.
Á þaki d‘Angleterre blakta þrjú
eintök af Dannebrog, danska þjóð-
fánanum. Gísli segist ekki búast
við að skipta neinum þeirra út
fyrir íslenskan að svo stöddu. „Það
stendur ekki til. Þetta byggist allt
upp á sterkri, gamalli, danskri
hefð sem við munum náttúrulega
virða í alla staði.“
Miðborgardjásn í eigu Íslendinga
D‘Angleterre er eitt fjögurra fimm
stjörnu hótela í Danmörku og eitt
hið sögufrægasta. Það var reist
árið 1755 og er jafnan kallað flagg-
skip hótela í Skandinavíu. Það
hefur oft lent ofarlega á lista mat-
gæðinga víða um heim yfir bestu
veitingastaðina.
Hótelið skipar stóran sess í sögu
Danmerkur, og þar voru meðal
annars lögð drög að stjórnarskrá
landsins árið 1849. H.C. Andersen
var tíður gestur á hótelinu.
Margir heimþekktir einstakling-
ar hafa gist á hótelinu og sumir
haldið sérstaklega upp á það. Meðal
þeirra má nefna Winston Churchill,
Bill Clinton, Grace Kelly, Michael
Jackson, Walt Disney, David Rock-
efeller, Bill Gates, Henry Kiss-
inger, Isabel Allende, Tinu Turner,
og liðsmenn hljómsveitanna Roll-
ing Stones, U2, Metallica og Red
Hot Chili Peppers.
Þá hafa þjóðþekktir Íslendingar
einnig haft dálæti á hótelinu. Hall-
dór Laxnes vandi komur sínar
þangað og Vigdís Finnbogadóttir
gisti aldrei annars staðar þegar
hún dvaldi í Danmörku sem for-
seti.
Fjögurra stjörnu hótelið Kong
Frederik við Ráðhústorgið er vin-
sælt meðal íslenskra ferðamanna.
Það hlaut nafnið árið 1898 en hótel
og gistiheimili hafa verið rekin á
reitnum frá 14. öld. Hótelið Front
er nýtískulegra en hin tvö og stend-
ur við Nýhöfn.
Flaggskip hótela í Skandinavíu
Gísli Þór Reynisson athafnamaður óttast ekki gremju Dana vegna kaupa hans á einu þekktasta hóteli Danmerkur, Hôtel d‘Angleterre.
Fyrirtæki Gísla hefur keypt d‘Angleterre og fleiri hótel af fjölskyldufyrirtækinu Remmen hotels. Kaupverðið er talið 15-20 milljarðar.
Gísli Þór Reynisson hefur undan-
farinn áratug verið afar umsvifa-
mikill atvinnurekandi í Eystra-
saltslöndunum, aðallega í
Lettlandi, þar sem hann er ræðis-
maður Íslands. Hann er forstjóri
og aðaleigandi Nordic Partners,
kaupanda hótelanna dönsku.
Gísli lærði fjármálahagfræði og
tölfræði í Finnlandi. Hann hóf að
stunda fjárfestingar í Lettlandi
árið 1992 og fjórum árum síðar
stofnaði hann fyrirtækið Nordic
Industries. Hann hagnaðist á
rekstri stærstu og þekktustu
súkkulaði- og sætabrauðsverk-
smiðju landsins sem og safaverk-
smiðjunni Gutta og pítsu- og sam-
lokuframleiðslunni Euro-Food. Þá
festi hann kaup á timburvinnslu
og tveimur höfnum í landinu.
Í dag á Nordic Partners þar að
auki stóra iðn- og skrifstofugarða
í höfuðborginni Riga og einka-
þotuflugfélagið Ice Jet.
Í úttekt tímaritsins Sirkuss í
sumar á ríkustu Íslendingunum
var Gísli í 15. sæti listans. Eignir
hans voru þá metnar á um 35 millj-
arða króna.
Hagnaðist á atvinnu-
rekstri í Lettlandi