Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Með metsölubók í kollinum
Steypubílum snúið við Júdas og Vodafone
„Ég vissi að hún ætlaði
að blogga um þetta en
átti nú ekki von á þessum
viðbrögðum,“ segir Sig-
urpála María Birgisdóttir,
lykilpersóna í pólitískum
misskilningi sem reið yfir
bloggheima á þriðjudag.
Málavextir eru þeir að Sóley Tóm-
asdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri
grænna, greip til myndmálsins á
bloggsíðu sinni þar sem hún gagn-
rýndi Samfylkinguna í kvenfrelsis-
málum. Líkti hún flokknum við Pálu
nokkra frænku sína sem í barn-
æsku æfði sig aldrei á skíðum nema
þegar stórmót voru fram undan.
Sjónvarpsmaðurinn vinsæli Egill
Helgason greip þessi orð á lofti og
túlkaði sem ómaklega árás á Önnu
Pálu Sverrisdóttur, laganema sem
gefur kost á sér til formanns Ungra
jafnaðarmanna. Fleiri fylgdu í kjöl-
farið. Pétur Gunnarsson, frétta-
stjóri Eyjunnar, sagði þetta dæmi
um að frænkur væru frænkum
verstar og bloggarinn Tómas Haf-
liðason benti á að þarna væri hinn
yfirlýsti femínisti Sóley að bregða
fæti fyrir kynsystur sína.
Svo rammt kvað við að jafnvel
Önnu Pálu, sem er alls óskyld Sól-
eyju og hefur aldrei æft skíðaíþrótt-
ir, var farið að gruna að verið væri
að skjóta á hana. Bróðir hinnar réttu
Pálu hjó loks á hnútinn og skýrði í
athugasemdakerfi Sóleyjar hvernig
í pottinn væri búið og Sóley sjálf sá
sig knúna til að ítreka að hún hefði
alls ekki átt við Önnu Pálu.
Nú er hin eina sanna Pála frænka
komin í leitirnar. Fullu nafni heitir
hún Sigurpála María Birgisdóttir
og starfar á bókhaldssviði Fjár-
sýslu ríkisins. Sigurpála tekur mál-
inu vel og staðfestir að orð Sóleyjar
eigi við rök að styðjast: hún hafi
vissulega aðeins æft skíði þegar
stórmót voru í nánd. Þess má geta
að Sigurpála lenti í 20. sæti í stór-
svigi níu ára stúlkna á Andrésar-
leikunum 1985.
Pála frænka komin í leitirnar
Börn sem hefja nám í grunnskóla
í haust fá litabók um Ýmu
tröllastelpu að gjöf frá Regnboga-
börnum, fjöldasamtökum gegn
einelti.
Í litabókinni er
að finna fræðslu-
verkefni um
einelti og kennslu-
leiðbeiningar fyrir
kennara.
Fyrirtækið
Prentmet gefur
bókina til styrktar Regnboga-
börnum og kemur hún nú út í
nýrri og endurbættri útgáfu.
Í tilkynningu hvetja forsvars-
menn Regnbogabarna kennara til
þess að vekja börnin til umhugs-
unar um einelti og munu þeir
fylgja verkefninu úr hlaði með
því að sækja grunnskóla landsins
heim.
Skólabörn fá
gefins litabók
Hvílir margt
þyngra á írösku
þjóðinni
veita