Fréttablaðið - 13.09.2007, Side 18
fréttir og fróðleikur
Launamunur kynjanna hefur aukist
Gefur öðrum
tækifæri
Gott en gæti
verið enn betra
Tíu og hálfum milljarði
króna verður varið til
mótvægisaðgerða vegna
aflasamdráttar næstu tvö
fiskveiðiár. Sex og hálfur
milljarður fer til nýrra
verkefna og framkvæmdum
á samgönguáætlun fyrir
rúma fjóra milljarða verður
flýtt. Til viðbótar verða
framlög til vísinda og rann-
sókna aukin.
Aðgerðunum er ætlað að draga úr
neikvæðum áhrifum af samdrætti
í aflamarki þorsks sem tilkynnt
var um í byrjun júlí. Enn er á
huldu hver og hvar áhrifin verða
nákvæmlega og sumar ákvarðanir
því hvorki stað- né tímasettar.
Fjórir ráðherrar; Árni Mathiesen
fjármálaráðherra, Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
kynntu mótvægisaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar á fundi með frétta-
mönnum í Þjóðmenningarhúsinu í
gær.
Fjármálaráðherra og iðnaðar-
ráðherra báru mestan þunga af
starfinu og nutu meðal annars
aðstoðar Byggðastofnunar sem í
samvinnu við atvinnuþróunarfé-
lög úti um land hafði samband við
forsvarsmenn fjölda útgerða til að
greina stöðuna. Þau samtöl leiddu
í ljós að ólíklegt sé að til fjölda-
uppsagna komi á næstu mánuðum
– útgerðarmenn muni bíða fram
yfir áramót og sjá hvernig mál
þróast. Þó er líklegt að skipum
verði lagt fyrr og lengur á þessu
fiskveiðiári en verið hefur og
vinnsluhús muni loka fyrr og leng-
ur en fyrri ár.
Aðgerðirnar skiptast í verkefni
sem ætlað er að hafa áhrif strax
og til lengri tíma og snúa ýmist að
einstaklingum, fyrirtækjum og
sveitarfélögum. Áætlað er að til
verði 500-600 ný störf eða náms-
pláss og eru þá ótalin störf sem
skapast vegna flýtingar fram-
kvæmda. Meðal staða þar sem ný
störf verða til eru Patreksfjörður,
Ísafjörður, Bolungarvík, Hólma-
vík, Sauðárkrókur, Húsavík, Höfn
í Hornafirði og Vestmannaeyjar.
Árni Mathiesen sagði vinnu við
mótvægisaðgerðirnar hafa verið
erfiða enda kringumstæðurnar
erfiðar. Hagvöxtur sé víða og
mikil þensla en erfiðleikar annars
staðar. „Ég vona að okkur hafi tek-
ist vel til,“ sagði Árni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir sagði reynsluna sýna að vaxtar-
sprotar kæmu upp þar sem hlúð
væri að menntun og menningar-
málum og því væri reynt að
styrkja innviði samfélaganna sem
vonandi skilaði sér inn í framtíð-
ina. Hún sagði ríkisstjórnina ætla
að tvöfalda rannsóknarsjóðina á
kjörtímabilinu sem væri afar þýð-
ingarmikið fyrir Ísland sem þekk-
ingarsamfélag. Sérstaklega væri
horft til hafrannsókna og þorsk-
eldis.
Össur Skarphéðinsson sagði
mótvægisaðgerðirnar nú þær öfl-
ugustu sem nokkur ríkisstjórn
hefði nokkru sinni gripið til and-
spænis erfiðleikum. Hann sagði
víst að ekki yrðu allir ánægðir og
engin ein leið væri rétt við að
útdeila liðsinni af þessu tagi. Um
aukin framlög til Byggðastofnun-
ar tók hann fram að liðsinni henn-
ar við fyrirtæki yrði á faglegum
forsendum. „Það eru engir tékkar
sem berast í pósti. Hún reynir að
teygja sig langt í gegnum lenging-
ar lána og frestun afborgana en
það er ekki um það að ræða að rík-
isstjórnin sturti peningum í von-
laus dæmi.“
Jóhanna Sigurðardóttir kvaðst
sérstaklega ánægð með þær
aðgerðir sem beinast að konum og
innflytjendum. „Ég held að fjölg-
un daga sem fiskvinnslur geta
greitt fyrir vegna hráefnisskorts
muni koma verulega til góða fyrir
konur sem vinna í fiskvinnslu. Svo
er ég sérstaklega stolt af þeirri
byltingu sem verður á starfsemi
fjölmenningarsetursins þar sem
fjármagn er aukið um 150 prósent
og störfum fjölgað úr einu og hálfu
í sex.“
Vona að okkur hafi tekist vel til
Telur tillögurn-
ar ómarkvissar
Finnst ýmislegt
vanta upp á