Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 20
hagur heimilanna
Skjöldur Eyfjörð hárgreiðslumaður
lumar á góðu húsráði frá ömmu sinni.
Þjóðleikhúsið, Borgar-
leikhúsið og Leikfélag
Akureyrar eru öll með
sama miðaverð á almennar
sýningar, eða 3.100 krón-
ur. Samkeppnin kemur
helst fram þegar keypt eru
áskriftarkort. Miðaverð er
þá ódýrast hjá Leikfélagi
Akureyrar, en Borgarleik-
húsið gerir best við öryrkja,
aldraða og námsmenn.
Engin verðsamkeppni er hjá stóru
leikhúsunum þremur, ef miðað er
við almennt miðaverð, sem er 3.100
krónur.
Hins vegar er nokkur verðmun-
ur þegar litið er til áskriftarkorta,
það er þegar viðskiptavinir kaupa
miða á nokkrar sýningar í senn.
Þannig kostar miðinn 1.975 krón-
ur hjá Leikfélagi Akureyrar (LA)
þegar keyptur er aðgangur að fjór-
um sýningum í senn á 7.900 krónur
og dygði aurinn annars fyrir tveim-
ur og hálfri sýningu.
Leikfélagið slær og samkeppn-
ina út með afslætti sínum fyrir 25
ára og yngri og námsmenn. Þeir fá
fjórar sýningar á 3.950 krónur, eða
987 krónur og 50 aura fyrir hvern
miða. Öryrkjar og aldraðir fá ekki
sérstakan afslátt af áskriftarkort-
um hjá LA.
Hjá Borgarleikhúsi kostar mið-
inn 2.080 þegar keypt er inn á fimm
sýningar í einu á 10.400 krónur,
kaupandi fær því um 1,7 sýningar í
kaupbæti.
Þjóðleikhúsið selur dýrustu
áskriftarkortin, því sýningin kost-
ar 2.500 krónur þá keyptir eru fimm
miðar á 12.500 krónur. Ein sýning
er ókeypis, miðað við almennt
verð.
Í Borgarleikhúsinu fá öryrkjar
og aldraðir 700 króna afslátt á
almennar sýningar. Námsmenn
njóta nokkuð betri kjara og fá 1.200
króna afslátt, kaupi þeir miðann
samdægurs.
Í Þjóðleikhúsi fá öryrkjar og aldr-
aðir 600 króna afslátt af almennum
miðum en námsmenn 500 króna
afslátt. Hjá Leikfélagi Akureyrar fá
25 ára og yngri, námsmenn, öryrkj-
ar og aldraðir einnig 500 króna
afslátt af almennu miðaverði.
Miðaverð á söngleiki er 3.600
krónur hjá Borgarleikhúsinu og
Þjóðleikhúsinu. Leikfélag Akureyr-
ar sker sig einnig úr að þessu leyti
en einungis 2.600 krónur kostar á
söngleikinn Óvitann.
Lítil verðsamkeppni
í stóru leikhúsunum
Við erum bræður, ég og Rumsfeld