Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 25
Sampo flaggaði nýverið 5,4 pró-
senta hlut í Nordea, stærsta fjár-
málafyrirtæki Norðurlanda.
Aðeins einn hluthafi fer með
stærri hlut í Nordea en Sampo,
en það er sænska ríkið sem held-
ur utan um fimmtungshlut.
Sænska hægri stjórnin hefur
boðað sölu á hlut sínum og má ætla
að Sampo muni fylgjast grannt
með gangi mála.
Markaðsvirði hlutarins er um
137 milljarðar króna.
Sampo, sem er að stærstum
hluta í eigu Existu, situr á digr-
um sjóðum eftir sölu á banka-
starfsemi fyrirtækisins. Talið er
að fimm milljarðar evra liggi í
sjóðum finnska fjármálafyrir-
tækisins um þessar stundir.
Flaggaði í Nordea
Sampo lét vita af 5,4 prósenta eignarhlut í félaginu.
Viðræður FL Group um yfirtöku á
breska leikjafyrirtækinu Inspired
Gaming Group ganga snurðulaust
fyrir sig samkvæmt heimildum og
má ætla að yfirtökunni ljúki form-
lega um næstu mánaðamót. Gengið
hefur verið frá fjármögnun vegna
kaupanna.
Yfirtökutilboð FL Group hljóðar
upp á 385 pens á hlut í Inspired
Gaming Group og er markaðsvirði
félagsins samkvæmt því 35,5 millj-
arðar íslenskra króna. FL Group á
fyrir 18,9 prósenta hlut í Inspired
Gaming Group, en á vordögum
keypti FL Group tíu prósenta hlut í
félaginu á 240,5 pens á hlut.
Inspired Gaming Group er skráð
á AIM-markaðinn í Kauphöllinni í
London, sem er sérsniðinn fyrir
smærri og millistór fyrirtæki. Bréf
í félaginu stóðu í tæpum 366 pens-
um á hlut um miðjan dag í gær og
eiga því talsvert í land með að ná
þeirri upphæð sem FL Group býður.
Inspired Gaming Group selur
leikjavélar og hugbúnað fyrir
afþreyingar- og leikjamarkað.
FL Group lýkur yfir-
töku um mánaðamót
Fyrir endann sér á yfirtöku FL Group á Inspired
Gaming Group. Fjármögnun vegna kaupanna er klár.
Heildarlaunakostnaður hækkaði
um 0,7 prósent í verslun og ýmissi
viðgerðarþjónustu á öðrum árs-
fjórðungi, samkvæmt tölum frá
Hagstofu Íslands. Launakostnað-
ur lækkaði hins vegar um 2,7 pró-
sent í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð, um tæp tvö pró-
sent í samgöngum og flutningum
og um 0,1 prósent í iðnaði.
Árshækkun heildarlaunakostn-
aðar frá öðrum ársfjórðungi árs-
ins 2006 var á bilinu 6,5 prósent til
11,3 prósent. Mest var hækkunin í
iðnaði, en minnst í verslun og
ýmissi viðgerðarþjónustu.
Mest hækkun í verslun
á öðrum ársfjórðungi
Tólf mánaða verðbólga mælist nú
4,2 prósent. Vísitala neysluverðs
hækkaði um 1,32 prósent milli
mánaða, samkvæmt nýjustu mæl-
ingum Hagstofunnar. Það er í sam-
ræmi við spár greiningardeilda
bankanna. Þær bjuggust við hækk-
un á bilinu 1,2 til 1,4 prósent.
Eins og vanalegt er vógu útsölu-
lok þungt í hækkun vísitölunnar.
Verð á fatnaði og skóm hækkaði til
að mynda um 13,5 prósent. Þá
hafði veruleg hækkun á fasteigna-
verði og hækkandi matvælaverð
jafnframt áhrif til hækkunar.
Í Tilefni, útgáfu greiningardeild-
ar Kaupþings, segir að hætta sé á
að lækkun á gengi krónunnar að
undanförnu hafi í för með sér tals-
verðan verðbólguþrýsting. Gengis-
lækkun sé líkleg til að kynda undir
frekari verðhækkunum á næstu
mánuðum. Þá sé vinnumarkaður-
inn enn yfirspenntur og því allt
útlit fyrir að frekari kostnaðar-
áhrifa muni gæta í náinni framtíð.
Verðbólguhorfur til skamms tíma
hafi því versnað.
Verðbólgan eykst í
samræmi við spár
17:00
www.hi.is/ams
Rannsóknasetur
um smáríki
Fjallað verður um hvernig smáríki í Evrópu hafa breyst úr fátækum kotríkjum
í auðug borgríki. Áhersla verður lögð á að skýra hvernig smáríkjum eins og Íslandi
og Írlandi hefur tekist að byggja upp auð og hefja útrás til stærri og voldugri ríkja.
The Source of Wealth in Small States
Opin ráðstefna föstudaginn 14. september frá kl. 9:00 til 17:00 í hátíðarsal
Háskóla Íslands á vegum Rannsóknaseturs um smáríki
Uppspretta auðæfa
í smáríkjum
Ireland's Experience
Small States an Financial Centres
Hádegisverðarhlé frá 11:45 til 13:00
Kaffiveitingar milli 14:30 og 14:45
13:00
Kristín Ingólfsdóttir
rektor Háskóla Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Íslands
Björn Rúnar Guðmundsson
forstöðumaður í greiningadeild Landsbankans
Liechtenstein's Ongoing
Economic Success
Georges Baur, Deputy Head of Mission,
Mission of Liechtenstein to the EU
The Celtic Tiger: Tax Cuts
and Economic Reforms
Brendan Walsh, Professor Emeritus,
University College Dublin
The Icelandic Economic
Miracle, 1991-2007
Hannes H. Gissurarson, Professor of Political Science,
University of Iceland
Reynir Harðarson
listrænn stjórnandi, CCP Games
Rakel Garðarsdóttir
framkvæmdastjóri Vesturports
Hilmar Sigurðsson
framkvæmdastjóri Caoz
Sóley Stefánsdóttir
grafískur hönnuður
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens
Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður
utanríkisráðherra
Ireland: The Road to Globalisation
Alan Dukes, Director General,
Institute for European Affairs
The Internationalisation
of the Irish Economy
Frank Barry, Professor of International Business
and Development, Trinity College Dublin
Ireland's Celtic Tiger: The Social
Impact of Economic Growth
Paedar Kirby, Professor of International Politics and
Public Policy at the University of Limerick, Ireland
Fundarstjóri: Baldur Þórhallsson
formaður stjórnar Rannsóknaseturs um smáríki
Commentator: Katrín Ólafsdóttir
Associate Professor, Reykjavík University
Commentator: Gunnar Ólafur Haraldsson
Director, Institute of Economic Studies
Málstofustjóri: Frú Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi forseti Íslands
Dagskrá:
Opnunarávörp09:00
Sköpunargleði í útrás
Samantekt og ráðstefnuslit
Útrás Promens14:45
Móttaka
Ráðstefnan hefst stundvíslega kl. 9:00 og
eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Húsið verður opnað kl. 8:30 og er kaffi
og meðlæti í boði fyrir opnun.
Fyrri hluti ráðstefnunnar, frá 9:00 til 14:30,
fer fram á ensku en eftir það á íslensku.
Kristín Ingólfsdóttir
rektor HÍ
Ólafur Ragnar
Grímsson
forseti Íslands
Björn Rúnar
Guðmundsson
forstöðumaður
Georges Baur, Dep.
Head of Mission,
Liechtenstein to the EU
Hannes H.
Gissurarson, Prof.
of Political Science
Brendan Walsh,
Prof. Emeritus
Reynir Harðarson,
listrænn stjórnandi,
CCP Games
Hilmar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri
Caoz
Sóley Stefánsdóttir,
grafískur
hönnuður
Rakel Garðarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Vesturports
Ragnhildur
Geirsdóttir,
forstjóri Promens
Alan Dukes, Director
General, Institute for
European Affairs
Frank Barry, Prof. of
International Business
and Development
Paedar Kirby, Prof. of
International Politics
and Public Policy
Baldur Þórhallsson
form. stjórnar
Rannsóknaseturs
Katrín Ólafsdóttir,
Associate Professor,
Reykjavík University
Frú Vigdís
Finnbogadóttir
fv. forseti Íslands
Kristrún Heimisdóttir,
aðstoðarmaður
utanríkisráðherra
Gunnar Ó. Haraldsson
Director, Institute of
Economics Studies
Landsbankinn styrkir ráðstefnuhaldið