Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 28
Osteópatinn Haraldur Magnús-
son hefur gagnrýnt notkun
sætuefnisins aspartams harð-
lega í gegnum tíðina og segir
efnið skaðlegt. Í gagnrýni sinni
bendir hann á fjölda skýrslna
og rannsókna fagaðila um
efnið sem sýni fram á miklar
aukaverkanir sem komi fram
við neyslu aspartams.
„Deilan um hvort aspartam sé
öruggt eða skaðlegt virðist engan
endi ætla að taka enda miklir hags-
munir í húfi,“ segir Haraldur og
bætir við: „Þegar aspartam var
fyrst sett á markað af lyfjafyrir-
tækinu Searle í Bandaríkjunum
setti bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitið á fót tvær nefndir til
að rannsaka starfshætti Searle. Í
ljós kom að fyrirtækið hafði fals-
að skýrslur og haldið undan rann-
sóknum sem sýndu fram á skaðleg
áhrif efnisins sem fór þó á markað
að því er virðist sökum pólitískra
áhrifa frekar en vísindalegs stuðn-
ings,“ segir Haraldur og nefnir
sem dæmi eina rannsókn sem
Searle hélt undan þar sem sjö
öpum var gefið aspartam í 52
vikur með þeim afleiðingum að
fimm fengu flogaveiki og einn dó.
„Innihald aspartams er fenyl-
alanín, aspartiksýra og tréspíri en
öll þessi efni geta haft skaðleg
áhrif,“ segir Haraldur og nefnir
dæmi: „Fenylalanín getur hindrað
myndun gleðihormónsins serótón-
íns í líkamanum en lækkun á því er
þekkt orsök þunglyndis og annarra
geðrænna vandamála. Aspartik-
sýran hefur það hlutverk í líkaman-
um að vera taugaboðefni en þegar
magn þess í líkamanum eykst, eins
og við neyslu aspartams, oförvast
taugafrumur og geta eyðilagst í
kjölfarið. Um skaðsemi tréspírans
þarf nú lítið að fjölyrða því flestir
þekkja áhrif hans. Tréspírinn breyt-
ist í formalín í líkamanum og þar á
eftir í maurasýru sem eru bæði
þekkt eiturefni sem skemma tauga-
kerfi og frumur og valda krabba-
meini.“
Haraldur segir að í samantekt á
164 rannsóknum er vörðuðu
öryggi aspartams sem gerð var af
dr. Ralph G. Walton árið 1996 hafi
komið fram að 100% rannsókna
framkvæmdar af hagsmunaaðil-
um sýndu fram á engar aukaverk-
anir en nálægt 100% rannsókna
hlutlausra aðila sýndu fram á
aukaverkanir af neyslu
aspartams.
Þá bendir hann á skýrslu frá
bandaríska matvæla- og lyfjaeft-
irlitinu sem sýnir að yfir 90 mis-
munandi aukaverkanir hafa fund-
ist af eituráhrifum aspartams og
nefnir sem dæmi: höfuðverk,
svima, skapgerðarbreytingar,
ógleði, krampa og flog, magaverki
og -krampa, sjónskerðingu, niður-
gang og vöðva- og liðamótaverki.
„Aspartam finnst í fjölda vara
hér á landi eins og gosdrykkjum,
tyggjói, mjólkurvörum, ýmsum
megrunarvörum og sorglega
mörgum vörum sem eru markaðs-
settar fyrir börn,“ segir Haraldur
að lokum.
Öruggt
eða skaðlegt?
Um þessar mundir stendur
yfir norræn gigtarráðstefna á
Íslandi.
Þekking, meðferð og lífsgæði eru
einkunnarorð á norrænni þverfag-
legri gigtarráðstefnu sem hefst í
Reykjavík í dag og stendur til 15.
september.
Meðal þess sem fjallað verður um
er nýjasta þekking á gigtarsviðinu
og verkjameðferðir. Einnig mun
Össur hf. kynna spelkur sem hafa
nýlega verið markaðssettar og veita
nýja möguleika í meðferð á slitgigt í
hné. Hnéspelkan sem Össur hf. fram-
leiðir dregur verulega úr verkjum
og slagorð Össurar hf. á ráðstefn-
unni er verkjameðferð án lyfja. Nán-
ari upplýsingar er að finna á: www.
ossur.is/unloaderone.
Norræn gigtarráðstefna
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS
NÝTT
Fáðu fæturna mjúka og fína
á 2 vikum með Flextiol
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum,
Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur.
FDA
Approved
KILL
99,8 %
GERMS*
Le
yft
um
bo
rð
í
flu
gv
élu
m
*C
o m
pl
ie
sw
ith
E N
15
00
Vörn gegn bakteríum,
vírusum og sýklum
Flensa
Áblástur o.fl.
Kvef
Sveppasýking
Meltingarsýking
Fuglaflensa
Blöðrubólgusýking
Sótthreinsandi
blautklútar