Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 46
13. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR14 fréttablaðið ísmót 2007
Dómnefnd valdi Carat - Hauk gullsmið, Smáralind í
Kópavogi, skartgripaverslun ársins í flokki gullsmiða.
Dómnefndin horfði þar einkum til nútímalegrar
hönnunar með fáguðu yfirbragði, fagmennsku og
gæða.
Unnið er markvisst starf í markaðsmálum og
markaðsáætlun vel útfærð.
Fyrirtækið er vel staðsett og aðgengilegt og vel er
hugsað um viðskiptavini og starfsmenn.
Stöðug hugmyndavinna er í gangi, vöruþróun er
stunduð, vörur smekklega settar fram og starfsmenn
sýnilegir við vinnu sína.
Carat – Haukur gullsmiður
skartgripaverslun ársins
Dómnefnd valdi Snyrtistofuna
Ágústu, Hafnarstræti 5 í Reykjavík,
stofu ársins í flokki snyrtistofa.
Dómnefndin horfði þar einkum
til fagmennsku, langrar forystu,
aðlaðandi hönnunar, hlýleika og
traustvekjandi starfsemi.
Við rekstur stofunnar hefur
verið lögð áhersla á að fylgjast vel
með og vera leiðandi í nýjungum.
Áhersla hefur alltaf verið á fag-
mennsku, góða þjónustu og áreið-
anleika.
Stofan er björt og notaleg og
mikið lagt upp úr því að viðskipta-
vininum líði vel meðan á meðferð
stendur.
Faglega er staðið að markaðs-
setningu stofunnar, samskiptum við
viðskiptavini og mannauðsmálum.
Framtíðaráform og framtíðarsýn
stofunnar ber vitni um framhald
árangursríks rekstrar og að stofan
verði áfram í fararbroddi.
Snyrtistofan Ágústa – snyrtistofa ársins