Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 78
„Þetta kom okkur óvart og við
erum frekar miður okkar yfir
þessu,“ segir Örn Árnason leikari
um brotthvarf kollega síns og
vinar, Randvers Þorlákssonar, úr
Spaugstofunni. Að sögn Arnar
var það Þórhallur Gunnarsson,
dagskrárstjóri RÚV, sem tók
ákvörðunina um brotthvarf
Randvers.
Randver er einn af upphafs-
mönnum Spaugstofunnar. Í sam-
tali við Fréttablaðið í gær stað-
festi hann brotthvarf sitt en vildi
að öðru leyti lítið tjá sig um málið.
Randver gat ekki gefið neina eina
ástæðu fyrir brotthvarfi sínu,
sagðist bara ekki verða með og að
svona hefðu kaupin gengið fyrir
sig á eyrinni. Randver sagðist
ekki vita hvort hann myndi snúa
aftur að ári, hann hugsaði einfald-
lega ekki svona langt fram í tím-
ann.
Örn Árnason sagði þetta ekki
hafa verið þeirra ákvörðun held-
ur hefði hún komið frá Þórhalli
Gunnarssyni, dagskrárstjóra
RÚV. Þórhallur vildi hins vegar
ekki tjá sig neitt frekar um brott-
hvarf Randvers og sagði það leik-
arans að greina frá sínum starfs-
lokum í Efstaleitinu. Hann sagði
að töluverðar breytingar yrðu á
Spaugstofunni og nefndi meðal
annars gestaleikara sem yrðu
reglulega hjá þeim. Meðal þeirra
sem koma fyrir í fyrsta þættinum
eru Hilmir Snær Guðnason, Edda
Björg Eyjólfsdóttir og Sigrún
Edda Björnsdóttir.
„Þórhallur vildi breytingar,“
segir Örn. „Auðvitað erum við
ekki sáttir, en hvað eigum við að
gera? Við erum fimm verktakar
sem erum að vinna fyrir Sjón-
varpið og ef dagskrárstjórinn vill
breytingar þá verður svo að
vera,“ heldur Örn áfram. Ekki
verður ráðinn maður í stað
Randvers. Á vef Mannlífs kom
fram í gær að drög hefðu verið
lögð að brotthvarfi Randvers síð-
astliðið vor.
Randver hefur verið með
Spaugstofunni frá því að hún birt-
ist fyrst á skjám landsmanna árið
1985. Frá árinu 1989 hefur Spaug-
stofan krufið mikilvæg mál á
laugardagskvöldum og notið ein-
stakra vinsælda hjá landsmönn-
um. Í fyrra náði Spaugstofan
þeim einstaka árangri að taka upp
sinn 300. þátt.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Það er nú bara kaffi og kleina
í mötuneyti Ríkissjónvarpsins
og kannski eitt rúnstykki með
svona á góðum degi.“
„Jú, við leigjum auðvitað flugvél,
þetta er beint flug til Kína. Hvað
hún verður stór á hins vegar enn
eftir að staðfesta, en enn eru nokk-
ur sæti laus,“ segir Dögg Hjalta-
lín, fjárfestatengill hjá Eimskipum.
Fyrirtækið býður starfsmönnum
sínum og helstu viðskiptavinum í
sannkallaða lúxusferð á kjaraverði
til Kína í tilefni af því að fyrirtæk-
ið opnar risastóra frystigeymslu í
borginni Quingdao. Verðið er
aðeins 119 þúsund krónur fyrir
tvíbýli í fimm daga en 139 þúsund
fyrir einbýli. Eimskip hyggjast
greiða niður ferðina að hluta. Ef
bókað er sæti á Business Class
hækkar verðmiðinn ögn, 214 þús-
und í tvíbýli en 234 þúsund í ein-
býli.
Herlegheitin hefjast á Keflavík-
urflugvelli miðvikudaginn 3. okt-
óber. Flogið verður beint til hafn-
arborgarinnar sem er rómuð fyrir
náttúrufegurð. Þar er allt sem
hugurinn girnist; veitingastaðir,
verslanir og fallegar baðstrendur.
Gestirnir munu sofa úr sér
ferðaþreytuna á Shangri La, fimm
stjörnu hóteli í miðborg Quingdao
en þaðan er stutt í verslanir og á
ströndina. Dögg segir fyrirtækið
ekki taka allt hótelið á leigu en
stærstur hluti þess verður þó und-
irlagður starfsmönnum og við-
skipavinum Eimskipa. Fyrirtækið
býður í kvöldmat á föstudeginum
en Dögg gat ekki staðfest hvort
einhverjir skemmtikraftar á
vegum fyrirtækisins myndu halda
uppi stemningunni. Hún bjóst þó
fastlega við því að borgaryfirvöld
í Qingdao myndu bjóða upp á ein-
hverjar slíkar skemmtanir.
Eimskip í lúxusferð til Kína
Ljósmyndarinn Aldís Pálsdóttir
býr í Kaupmannahöfn og starfar
þar hjá Steen Evald en hann er
annar af tveimur opinberum ljós-
myndurum dönsku konungsfjöl-
skyldunnar.
Undanfarið hafa þau unnið að
því að mynda herferðina ONE
fyrir Bono, söngvara U2, sem
miðar að því að útrýma fátækt í
þriðja heiminum og vekja almenn-
ing til vitundar um ástandið sem
þar ríkir.
Margar af þekktustu stjörnum
Dana mættu í myndatöku og lögðu
málefninu lið, meðal annars fyrir-
sætan Helena Christensen sem er
einmitt góðvinkona Bono sjálfs.
Helena tók jafnframt myndir fyrir
bandarísku herferðina, enda ein-
beitir hún sér nú að ljósmyndun.
„Ef allir þeir sem geta gæfu
bara eitt prósent af tekjum sínum
gætum við gert eitthvað ótrúlegt í
sameiningu. Þetta virkar svo ein-
falt,“ segir Aldís. Afraksturinn úr
myndatökunum verður sýndur í
sýningarrými Normann Copen-
hagen á Østerbrogade 70. „Sýn-
ingin opnar í dag og stendur út
september. Hún inniheldur bæði
myndir og myndbönd frá okkur.
ONE-bolirnir verða líka til sölu en
allur ágóði rennur til samtakanna.
Merkið á bolunum er hannað af
eiginkonu Bono, Ali Hewson, en
þau verða líklega bæði þarna á
morgun,“ segir Aldís.
Áhugasamir geta kynnt sér ONE
og lagt sitt af mörkum á www.one.
Myndaði Helenu Christensen fyrir Bono
Hvað er að
frétta af
skjálftanum?
Auglýsingasími
– Mest lesið