Fréttablaðið - 18.10.2007, Page 96

Fréttablaðið - 18.10.2007, Page 96
Frá því fyrsta nútímahljómsveit Íslands, Hljómar, kom fram hafa metnaðarfullar hljómsveitir átt í ástar/haturssambandi við klak- ann. Hér er fæðingardeildin og heimavöllurinn, en Ísland er örmarkaður sem hljómsveitir klára á fyrsta æviskeiði sínu. Ekk- ert kálar góðri hljómsveit eins hratt og örugglega og að hanga hér í fámenninu spilandi endalaust fyrir sama fólkið. Því hafa poppar- ar verið með meikið á bakvið eyrað frá fyrstu tíð. breyttu sér í Thor’s Hammer en urðu því miður ekki heimsfrægir. Þrátt fyrir stórglæsi- lega hljómsveitarbúninga gerðist ekkert hjá Change. Mezzoforte braut ísinn með Garðveislunni en það var ekki fyrr en Björk og Sigur Rós ráku upp sitt hreinskilna gól að boltinn fór að rúlla. Ísland, sem einu sinni var ekkert í eyrum umheimsins, er nú þekkt sem upp- spretta ótrúlegrar tónlistar. eru kallaðir en fáir útvaldir. Opinberir sjóðir hafa lok- ist upp og það er sem betur fer af sem áður var þegar til dæmis Syk- urmolarnir þvældust á milli ráðu- neyta án þess að fá krónu í styrk þegar þeim var boðið að hita upp fyrir U2. Í hverju einasta viðtali eru böndin spurð um Ísland; land- ið, veðrið, álfana. Hvernig hefur náttúran áhrif á tónlist ykkar, spyrja blaðamenn, og síðan: Hvern- ig stendur á öllum þessum fjölda frábærra hljómsveita frá svona litlu landi? Böndin stama eitthvað en hafa í raun ekkert svar, bara: „Svona er að vera Íslendingur, skill jú?“ er gegndarlaust hark og taumlaust rugl. Tíu tíma flugferð til að spila fyrir fimmtíu manns í horni þar sem pool-borðið á að vera í holu í Montréal. Þessir fimmtíu vilja miklu frekar spila pool en hlusta á náttúrubörnin rokka. Mán- aðarlangur túr um skítakamra- pöbba, allir fúlir og svekktir í rút- unni, timbraðir og þreyttir. Koma svo heim, reyna að láta þetta líta vel út í viðtölum og langar ekkert meira en að komast aftur á túr. Airwaves byrjaði í gær og stendur fram á mánudagsmorg- un. Þetta er frábærasti tónmenn- ingaratburður ársins, hin eina sanna uppskeruhátíð tónlistar- bransans. Hér sameinast íslenska útrásin og innrás heitustu band- anna í iðandi hrærigraut. Í tæplega viku breytist Reykjavík úr svefn- bæ í alvöru stórborg með pökkuð- um kofum, hljómsveitum að gera sitt besta í öllum hornum og sendi- boðum meiksins sveimandi um með tékkheftið. Nú er gaman. Alvöru útrás Gríptu augnablikið og lifðu núna Sjáðu Enska boltann í mestu gæðum á Sýn2 HD. Everton – Liverpool verður fyrsti leikurinn í háskerpu, laugardaginn 20. október. Sala er hafin og verður Sýn2 HD áskrift á sérstöku tilboðsverði til 1. desember, 990 kr. viðbótargjald fyrir áskrifendur að Sýn2. Náðu þér í háskerpumyndlykil í verslun Vodafone, Skútuvogi 2. Nánari upplýsingar á www.vodafone.is/hd og í þjónustuveri 365, sími 512 5100. Enski boltinn í háskerpu á Digital Ísland Loksins á Íslandi Sjáðu muninn F í t o n / S Í A F I 0 2 3 4 5 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.