Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 8
Ekki stendur til að einka-
væða Landsvirkjun (LV), en þeirri
spurningu hvort rétt sé að hluta-
félagavæða fyrirtækið hefur ekki
verið svarað. Þetta kom fram í
máli Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra í umræðum á Alþingi í gær.
„Hvað ætlar ríkisstjórnin sér að
gera varðandi eignarhald á Lands-
virkjun?“ spurði Höskuldur Þór-
hallsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, í umræðum um störf
þingsins við upphaf þingfundar í
gær. Hann spurði enn fremur
hvort til stæði að breyta LV í hluta-
félag.
„Sjálfstæðisflokkurinn er einka-
væðingarflokkur, og nú eru öll
merki þess að í skjóli Samfylkingar-
innar eigi að ráðast í sölu og einka-
væðingu á Landsvirkjun,“ sagði
Höskuldur. Hann sagði stefnu
Framsóknarflokksins þá að LV yrði
áfram í eigu ríkisins.
„Það stendur ekki til af hálfu
núverandi ríkisstjórnar að einka-
væða Landsvirkjun,“ sagði Geir H.
Haarde. „Hvort félaginu verður
breytt í hlutafélag er önnur spurn-
ing, og henni hefur ekki verið
svarað. Það hefur ekki verið tekin
afstaða til þess hvort þessu stóra
og öfluga félagi sem nú er allt í eigu
ríkisins verði breytt í hlutafélag.“
Bjarni Harðarson, þingmaður
Framsóknarflokksins, benti á að
ríkisstjórnin væri ekki samstiga í
einkavæðingarmálum. Undan-
farið hefði mikið verið rætt um þá
skýru stefnu Sjálfstæðisflokksins
að hið opinbera ætti ekki að koma
að áhættusömum rekstri, og LV
væri sannarlega í áhætturekstri.
„Ég kalla eftir samkvæmni í
þessum málflutningi hjá stærsta
stjórnmálaflokki þjóðarinnar,“
sagði Bjarni að lokum.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra sagði fullkomna sam-
stöðu meðal stjórnarflokkanna
um þetta mál. Forsætisráðherra
hefði talað skýrt; LV yrði ekki
einkavædd. Það skipti höfuðmáli
að þær auðlindir sem væru á for-
sjá ríkisins yrðu það áfram.
„Ég óska Samfylkingunni til
hamingju, þeir ætla að standa í
lappirnar, þeir ætla að standa
gegn þessu. Til hamingju Sam-
fylking, þið hafið tekið við okkar
hlutverki, Framsóknarflokksins,
að þessu leyti,“ sagði Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins, og uppskar hlátrasköll í
þingsalnum.
„Ég hef efasemdir um að það sé
heppilegt fyrir ríkisvaldið að
standa í stóriðjurekstri,“ sagði Ill-
ugi Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins. „Ég tel að þegar
rætt er um fyrirtæki eins og
Landsvirkjun, með 85 prósent af
sinni orkusölu til áliðnaðar fyrst
og fremst, þurfi að rökstyðja það
sérstaklega að það sé í eigu hins
opinbera.“
Hlutafélagavæðing
ekki verið ákveðin
Forsætisráðherra segir ekki standa til að einkavæða Landsvirkjun. Öll merki
þess að ráðast eigi í sölu á Landsvirkjun, segir þingmaður Framsóknar. Hef efa-
semdir um að ríkið standi í stóriðjurekstri, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Pakistans, sneri aftur heim úr útlegð í gær
og var vel fagnað af þúsundum stuðningsmanna
sinna.
Hún hyggst taka þátt í þingkosningum í janúar og
vonast til þess að verða forsætisráðherra í þriðja
sinn. Sumir telja þó að möguleikar hennar til þess
hafi minnkað mjög eftir að hún gerði samkomulag
við Pervez Musharraf forseta sem nýtur lítilla
vinsælda.
Þingið í Pakistan kaus í byrjun október Musharraf
í forsetaembættið eitt kjörtímabil í viðbót. Hann
lofaði hins vegar Bhutto að segja af sér sem
yfirmaður hersins ef hæstiréttur landsins staðfestir
að forsetakjörið brjóti ekki í bága við stjórnarskrá
landsins.
Bhutto er leiðtogi Þjóðarflokksins í Pakistan,
stjórnmálaflokks sem faðir hennar, Zulfikar Ali
Bhutto, stofnaði árið 1967. Hann var tekinn af lífi
árið 1979 og tók dóttir hans þá við formennsku
flokksins.
Benazir Bhutto varð forsætisráðherra fyrst árið
1988 en var steypt af stóli vegna ásakana um
spillingu tæpum tveimur árum síðar. Hún náði aftur
kjöri árið 1993 en var þá aftur rekin þremur árum
síðar vegna svipaðra ásakana.
Komin heim úr útlegðinni
Ég kalla eftir samkvæmni
í þessum málflutningi hjá
stærsta stjórnmálaflokki þjóðar-
innar.
OKTÓBER
TILBOÐ
TIL SAFNKORTSHAFA
Safnkortstilboðin færðu á næstu
N1 þjónustustöð.
Upplýsingar um Safnkortið og
Safnkortstilboðin er að finna á www.n1.is.
Punktar
gilda tvöfalt
0 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Fullt verð: 1.990 kr. Tilboðið gildir til 30. 11. 2007 eða á meðan birgðir endast.
PlayStation2 leikir
Nú ættu allir að geta fengið
PlayStation2 leik við sitt hæfi. 11 nýir
og gamlir leikir á frábæru tilboði.x2
Braun hitamælir
Stafrænn eyrnamælir í hæsta gæðaflokki sem
mælir hitann á einfaldan og öruggan hátt. Gefur
niðurstöðu á 1 sekúndu. Lítill, mjúkur og
sveigjanlegur nemi. Rafhlaða fylgir.
1.900 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Fullt verð: 6.900 kr. Tilboðið gildir til 30. 11. 2007 eða á meðan birgðir endast.Vr. 81835573
Punktar
gilda fimmfalt
x5
Eitt öflugasta fitubrennsluefnið á markaðnum sem
völ er á. Hydroxycut hækkar hitastig líkamans
ásamt því að minnka matarlyst. Hægt er að velja
um þrjár stærðir: 70 hylkja, 140 hylkja og 240 hylkja.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Fullt verð frá: 3.990 kr. Tilboðið gildir til 30. 11. 2007 eða á meðan birgðir endast.Vr. 85060614 / 85060615 / 85060616
Punktar
gilda tvöfalt
x2
Hydroxycut
1.990 kr.FRÁ
Vr. 85060622
Eiðfaxi áskriftarpakki
2.850 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Fullt verð: 5.850 kr. Tilboðið gildir til 31. 12. 2007 eða á meðan birgðir endast.
Glæsilegt áskriftartilboð á Eiðfaxa. Tölublöð 3,
4, 5, 6 og Stóðhestar 2007 ásamt næstu
tölublöðum til áramóta. Eiðfaxi er glæsilegt
tímarit um málefni hesta og hestamanna.
Punktar
gilda þrefalt
x3
Valið stendur á milli Langferðalaga KK &
Magga Eiríks annars vegar og Óvita hins
vegar. Tveir frábærir geisladiskar – annar
fyrir fullorðna fólkið og hinn fyrir börnin.
0 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Fullt verð: 1.990 kr. Tilboðið gildir til 30. 11. 2007 eða á meðan birgðir endast.
Punktar
gilda tvöfalt
Langferðalög / Óvitar CD
Vr. 82158069 / 82158071
x2
Á fyrsta fundi borgar-
ráðs eftir að nýr meirihluti tók við-
var lögð fram tillaga um stofnun
starfshóps um mál Orkuveitu
Reykjavíkur undir stjórn Svandísar
Svavarsdóttur.
Auk þess að kanna allar hliðar
samruna Reykjavík Energy Invest
og Geysis Green Energy er starfs-
hópnum ætlað að vinna og leggja
fram stefnu Reykjavíkurborgar í
orkumálum, sem tekur meðal ann-
ars til stefnumótunar Orkuveitu
Reykjavíkur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
samþykktu stofnun starfshópsins
en lögðu fram bókun þar sem vissir
hlutar tillögunnar eru gagnrýndir.
„Við styðjum stofnun hópsins en
þykir skjóta skökku við að Björn
Ingi Hrafnsson eigi að vera í hópn-
um og eigi að rannsaka eigið mál.
Þá er líka einkennilegt að í hópnum,
sem kallaður er þverpólitískur, eru
fimm fulltrúar meirihlutans á móti
einum fulltrúa minnihlutans,“ segir
Gísli Marteinn Baldursson borgar-
fulltrúi.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri telur gagnrýni sjálfstæðis-
manna framhald af deilum sem hafi
verið undanfarið. „Meginatriði er
að allir studdu stofnun þessa hóps.
Hópurinn er eins samsettur og
hópurinn sem stofnaður var um
hlutafélagavæðingu OR.“
Björn Ingi rannsaki eigið mál
Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í
hæstarétti í fjögurra mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir kynferðis-
brot. Héraðsdómur Norðurlands
vestra hafði áður sýknað mann-
inn.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa tekið mynd á GSM-síma sinn
af nafngreindri, nakinni stúlku án
hennar vitneskju. Jafnframt að
hafa síðar sýnt öðrum þessa mynd
ásamt annarri mynd sem hann
sagði vera af kynfærum sömu
stúlku.
Í dómi hæstaréttar kemur fram
að með brotinu rauf hann skilorð
dóms frá 26. janúar 2004.
Nektarmynd á
GSM-síma
Hvaða íslenski söngvari söng
á góðgerðasamkomu í London í
gærkvöldi?
Hve mikið reyndist magn
fíkniefnanna í Pólstjörnumál-
inu vera?
Hvernig fór leikur Íslands og
Liechtensteins á miðvikudag?