Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 70
Iceland Airwaves-hátíðin hefur tekið miklum breytingum frá því
fyrsta hátíðin var haldin í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli árið 1999.
Eitt af því sem hefur einkennt þróunina undanfarið er að hún er alltaf
að færast meira út í samfélagið. Hátíðin setur alltaf meiri svip á
bæjarlífið þessa daga sem hún stendur yfir og atriðum sem eru utan
hinnar eiginlegu dagskrár er alltaf að fjölga.
Það er uppselt á Airwaves í ár eins og undanfarin ár en þeir sem ekki
náðu sér í armband geta samt valið úr miklum fjölda tónleika. Það er
dagskrá í 12 Tónum, Smekkleysubúðinni og Skífunni bæði í dag og á
morgun en líka á Kaffibarnum, Sirkus, Dillon, Prikinu, Máli og
menningu og fleiri stöðum. Í ár er líka í fyrsta skipti viðamikil dagskrá
í Norræna húsinu hluti af Airwaves og eins og viðburðirnir hér að ofan
er sú dagskrá ókeypis og öllum opin. Í dag spila þar Lay Low og hin
sænska Jenny Wilson og á
morgun eru það Ólöf Arnalds,
Frost frá Noregi, Seabear, Benni
Hemm Hemm, hin sænska
Radio LXMBRG, Deathmetal
Supersquad, Snake & Jets Amaz-
ing Bullit Band frá Danmörku
og Motion Boys.
Á meðal annarra atriða sem
hægt er að mæla sérstaklega
með má nefna Singapore Sling
og Annuals í 12 Tónum í dag kl.
17.00, Best Fwends, Slow Club,
Bob Justman og Jenny Wilson í
Smekkleysubúðinni í dag frá
klukkan 16.00, Retro Stefson og
Ólöf Arnalds í Máli og menningu
í dag klukkan 16.00, Hafdís Huld, Computerclub, Jakobínarína og
Mugison í Skífunni á morgun frá kl. 17.10 og Bloodgroup og Solid Gold
á Hressó annað kvölk klukkan 22.00. Nóg að gerast! Nánari upplýsing-
ar um dagskrána má fá t.d. í Airwaves-bæklingnum og á icelandairwa-
ves.com...
Ókeypis og öllum opið á Airwaves
Luke Burbank, útvarps-
maður bandarísku útvarps-
stöðvarinnar NPR, fékk
nýverið rokkblaðakonuna
Jancee Dunn til að greina
með sér hvað fór úrskeiðis
í frægu viðtali hans við
Sigur Rós á dögunum.
Burbank og félagar á
útvarpsstöðinni töldu
viðtalið eitt það versta í
fjölmiðlasögunni og birtu
það í heild sinni á
heimasíðu sinni. Fengu
þeir gríðarlega mikil
viðbrögð og ákváðu því að greina betur
hvað fór úrskeiðis.
Dunn hrósar Burbank í byrjun fyrir að
bera fram nöfn hljómsveitarmeðlima sem
sýnir að hann hafi virkilegan áhuga á að ná
tengslum við þá. Bur-
bank viðurkennir þó að
sumar spurningar sínar
hafi verið undarlegar og
ekki líklegar til að fá
mikil viðbrögð frá með-
limum Sigur Rósar.
Engu að síður hefði
hljómsveitin alveg mátt
spila betur með í sumum
tilvikum.
Dunn skammar Bur-
bank fyrir að spyrja
yfir allan hópinn í stað
þess að beina athygl-
inni að einum hljómsveitarmeðlim í einu
og telja þau trommarann Orra Pál Dýrason
hafa verið sérstaklega líklegan til að svara
spurningum en fengið fá tækifæri til
þess.
Hvað fór úrskeiðis?
Söngvari ofurrokkhljóm-
sveitarinnar System of
a Down sendir í næstu
viku frá sér sína fyrstu
sólóplötu. Steinþór Helgi
Arnsteinsson athugaði hvað
Serj Tankian ætlar sér með
plötunni.
„Spennan sem ég hafði fyrir gerð
þessarar plötu var sama spennan
og ég hafði við gerð fyrstu System
plötunnar,“ segir Serj Tankian. Á
nýju plötunni, Elect the Dead, er
Serj þó nokkuð mikið við sama
heygarðshornið. Yfirbragðið er
allt mjög System of a Down-legt,
samfélagsgagnrýnin er í fyrir-
rúmi og pólitísk vandamál af ýmsu
tagi fyrirferðarmikil.
Serj, sem fæddur er í Líbanon en
er þó af armenskum uppruna,
hefur alltaf verið þekktur fyrir
sterkar pólitískar skoðanir sínar.
Hefur hann til dæmis stofnað
samtökin Axis of Justice ásamt
Tom Morello, gítarleikara Rage
Against the Machine. Samtökin
hafa það að markmiði að sameina
hljómsveitir, aðdáendur og ýmiss
konar grasrótarsamtök í baráttunni
fyrir samfélagsréttindum um allan
heim. Serj er einnig fluttur til
Nýja-Sjálands en þar hyggst hann
búa allt þar til Íraksstríðinu lýkur.
Því er ekki hægt að segja annað en
að pólitískt óréttlæti og önnur mál
því tengd séu Serj hjartans mál.
Á Elect the Dead fer heldur enginn
varhluta af skoðunum Serj. Í fyrsta
laginu sem fékk að hljóma á öldum
ljósvakans, Empty Walls, segir
meðal annars: „Don’t you see their
bodies burning / Desolate and full
of yearning / Dying of anticipation
/ Choking from intoxication.“
Lagaheitin The Unthinking
Majority, Beethoven’s Cunt, Lie,
Lie, Lie, Lie og Praise the Lord and
Pass the Ammunition segja manni
líka margt um boðskap Elect the
Dead.
Síðastnefnda lagið, Praise the
Lord and Pass the Ammunition, er
tilvísun í lag eftir Frank Loesser
sem samdi lagið eftir árásirnar á
Pearl Harbor. The Unthinking
Majority gaf Serj reyndar út fyrr í
sumar sem „yfirlýsingu um
stórslys okkar fallandi lýðveldis
sem ríkir í dag“.
Serj ætlar sér einnig að fara ýmsar
skemmtilegar leiðir varðandi
plötuna. Serj fer víst í
tónleikaferðalag með Foo Fighters
á næstunni en hefur gefið það út að
á tónleikum sínum muni hann ekki
taka neitt lag með System of a
Down. Með Serj í för er hljómsveit
sem hann hefur sett saman og
nefnist The FCC (nafnið stendur
fyrir The Flying Cunts of Chaos en
samkvæmt nýlegu viðtali við
Kerrang segir Serj að hann hafi
upprunalega viljað að það yrði
nafnið á plötunni). Meðal liðsmanna
The FCC er Larry LaLonde úr
Primus.
Ætlunin er einnig að gera
myndband við hvert einasta lag
plötunnar, alls tólf stykki. Hafa tólf
mismunandi leikstjórar verið
fengnir til verksins og meðal þeirra
er Diran Noubar. Lagið sem hann
mun leikstýra myndbandi við heitir
Baby, en Noubar er helst þekktur
fyrir að hafa gert heimildarmyndina
Armenia, A Country Under
Blockade.
Empty Walls markar ekki stór
kaflaskipti í ferli Serjs og þetta
einmenningsverkefni hans virðist
ekki ætla að hafa áhrif á System of
a Down enda hjálpuðu nokkrir
meðlimir sveitarinnar til við gerð
plötunnar. Við skulum samt vona
að ádeila Serjs og System of a
Down muni að lokum hafa einhver
áhrif.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Pétur
Emil Gunnarsson er önnum kafinn
við að taka upp nýja tónlistarþætti
þar sem skyggnst verður á bak við
tjöldin hjá átta íslenskum hljóm-
sveitum. Á meðal þeirra eru Mínus,
Brain Police, Á móti sól, XXX Rott-
weiler og Jeff Who?
„Ég fékk hugmyndina í fyrra og
ákvað að fylgja henni eftir,“ segir
Pétur, sem hefur átt fundi með
RÚV og Skjá einum um að sýna
þættina, sem nefnast Þráður. „Ég
var að koma frá Berlín þar sem ég
var að taka upp Brain Police sem
var þar á tónleikaferð. Síðan ætla
ég að fara á Airwaves og taka þar
upp efni.“
Kynnir þáttanna verður Davíð
Þór Jónsson. „Hann er klassamað-
ur í þetta. Málfar hans er gott og
hann fer fínt að þessum körlum,“
segir hann.
Hljómsveitirnar átta koma síðan
til með að spila á tvennum tónleik-
um á Nasa í desember til að binda
endahnútinn á verkefnið.
Pétur er einnig að leggja loka-
hönd á mynd um Þjóðhátíðina í
Eyjum. „Við höfum verið að vinna í
henni í tvö ár. Við erum með mynd-
efni allt frá fimmta áratugnum og
erum búnir að taka mjög mikið af
viðtölum við fólk og tónlistarmenn
sem hafa spilað á hátíðinni. Það er
fullt af efni þarna sem gæti orðið
umdeilt, til dæmis þegar Árni
Johnsen er að henda Rottweiler út
af sviðinu. Þetta verður mjög
skemmtilegt.“
Skyggnist á bak við tjöldin