Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 22
[Hlutabréf] Gengi hlutabréfa lækkaði á fjár- málamörkuðum í Bandaríkjunum í gær eftir að Bank of America, næststærsti banki landsins, skil- aði inn lélegra uppgjöri fyrir afkomuna á þriðja ársfjórðungi en reiknað hafði verið með. Hagnaður bankans nam 3,7 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 222 milljarða króna, samanborið við 5,4 milljarða dala í fyrra. Þetta er 32 prósenta samdráttur á milli ára og talsvert undir væntingum. Markaðsaðilar höfðu reiknað með því að hagnaður á hlut myndi nema 1,06 dölum en raunin varð hins vegar önnur, 82 sent. Gengi bréfa í bankanum féll í kjölfarið um 3,5 prósent á hluta- bréfamarkaði en lélegar afkomu- tölur fjármálafyrirtækja vestan- hafs skýra að mestu neikvæð áhrif á gengi hlutabréfa í gær. Greinendur telja nú meiri líkur en minni á að vandræði banda- rískra fjármálastofnana á borð við Bank of America geti leitt til þess að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti á næsta fundi sínum í lok þessa mánaðar. Lélegt uppgjör lækkar markaðinn Landsbankinn hefur fengið að rýna í uppgjör írska sparisjóðsins og fasteignalánafélagsins Irish Nationwide Building Society (INBS) fyrir fyrri hluta ársins. Hann hefur óskað eftir afkomutöl- um fyrir árið allt gangi sala á sparisjóðnum ekki eftir fyrir árs- lok, að sögn írska dagblaðsins Irish Times. Tinna Molphy, fjár- festatengill Landsbankans, vildi ekki tjá sig um fréttir írskra fjöl- miðla af málinu þegar eftir því var leitað í gær. Uppgjör INBS fyrir afkomuna á þriðja ársfjórðungi hefur ekki verið birt. Blaðið hefur hins vegar eftir heimildum að afkoman hafi verið góð þrátt fyrir óróleika á fjármálamarkaði upp á síðkastið og geti svo farið að Landsbankinn verði að leggja fram hærra yfir- tökutilboð en rætt hafi verið um. Írskir fjölmiðlar hafa fram til þessa sagt tilboðið geta numið einum milljarði evra, jafnvirði 85 milljarða króna en líkur eru nú á að það muni ríma við eignastöðu sparisjóðsins, sem hleypur á 1,3 til 1,5 milljörðum evra, tæpum 130 milljörðum króna hið mesta. Landsbankinn vill ársreikninga INBS Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, er að kanna hvort lög um kynjakvóta í stjórnir skráðra fyrirtækja í Noregi gangi gegn Evrópurétti. Hefur ESA óskað eftir upp- lýsingum frá norsku ríkis- stjórninni í því sambandi. „Mín skoðun er sú að lagasetning sé þrautalending og fyrst beri að skoða allar aðrar leiðir að því sjálf- sagða markmiði að jafna hlut kvenna og karla í stjórnum íslenskra fyrirtækja,“ sagði Björg- vin G. Sigurðsson viðskiptaráð- herra á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga og Frjálsrar verslunar í gær. Félög Kaupþings og Glitnis eru meðal þeirra félaga sem Karita Bekkemellem, jafnréttisráðherra Noregs, hefur hótað að loka upp- fylli þau ekki lög sem kveða á um að hvort kynið um sig skuli skipa að minnsta kosti fjörutíu prósent stjórnarsæta í skráðum félögum. Lögin taka gildi um næstu ára- móti og segir Karita að þau fyrir- tæki sem uppfylli ekki ákvæði laganna muni fyrst fá bréf þar sem krafist verði úrbóta. For- svarsmenn fyrirtækjanna hafi þá fjórar vikur til að bregðast við. Í kringum mars á næsta ári verði svo látið til skara skríða verði engar breytingar gerðar. Jan Petter Sissener, forstjóri Kaupþings í Noregi, segir að ekki hafi enn verið brugðist við þess- um tilmælum. Á stjórnarfundi Kaupþings 30. október næstkom- andi verði tekin ákvörðun um hvort félagið í Noregi muni heyra undir Kaupþing á Íslandi, sem þá þurfi ekki að lúta þessum reglum. Mikilvægt sé í þessu sambandi að félagið sé að öllu leyti í eigu Kaup- þings á Íslandi. Verði það ekki gert verði að sjálfsögðu farið að norskum lögum og tvær konur til- nefndar í stjórnina. Sissener segir marga í Noregi styðja þessa stefnu norskra stjórn- valda þó að margir gagnrýni hana og segi að það eigi að vera í verka- hring hluthafa og stjórnenda að skipa stjórnir fyrirtækjanna. Pétur Þ. Óskarsson, forstöðu- maður hjá Glitni, segir að bankinn muni að sjálfsögðu fylgja norsk- um lögum í hvívetna. Eftir laga- breytingarnar um áramótin verði gerðar nauðsynlegar breytingar til að uppfylla skilyrði sem stjórn- völd hafi ákveðið að setja. „Noregur er eina landið sem mér er kunnugt um sem tekið hefur upp kynjakvóta í atvinnulíf- inu með lögum,“ sagði viðskipta- ráðherra í gær. „Þar eru aðstæður einnig allsérstakar þar sem norska ríkið á sextíu prósent hlutafjár í markaðsskráðum fyrirtækjum og ráðandi hlut í sjö af tíu stærstu fyrirtækjum landsins.“ Eftirlitsstofnun kannar lögmæti kynjakvóta Peningaskápurinn ... Draga mun úr því ójafnvægi sem skapast hefur með háum vöxtum, miklum viðskiptahalla og íþyngj- andi erlendum skuldum á næstu árum segir í nýrri hagspá ASÍ. Í stað hagvaxtar sem byggir á mikl- um fjárfestingum og einkaneyslu muni hagvöxtur vegna útflutnings taka við. Hagvöxtur verði minni en undanfarin ár en þó viðunandi. Í spánni er gert ráð fyrir að krónan verði áfram sterk fram á mitt næsta ár. Þá muni vaxtamun- ur við útlönd minnka og áhugi erlendra fjárfesta á krónunni dvína. Gengisvísitalan verði þá á bilinu 118 til 123 stig. Spáð er hárri verðbólgu fram á næsta ár. Búast megi við verð- bólguskoti í kjölfar veikingar krónunnar á seinni hluta ársins 2008. Verðbólgan hjaðni svo hratt. Líkur séu á að 2,5 prósenta verð- bólgumarkmið Seðlabanka Íslands náist á miðju ári 2009. Útflutningur mun knýja hagvöxtinn AMR, móðurfélag bandaríska flugfélagsins American Airlines, hagnaðist um 175 milljónir Banda- ríkjadala, jafnvirði 10,5 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við 15 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er betri afkoma en markaðsaðilar gerðu ráð fyrir. FL Group, sem á rúman níu pró- senta hlut í AMR og næststærsti hluthafi þess, sendi stjórn flug- félagsins harðort bréf í síðasta mánuði þar sem þrýst var á leiðir til að auka virði eigna félagsins, svo sem með aðskilnaði Advantage, vildarklúbbs AMR, frá félag- inu. Tillögurnar fengu jákvæðar undirtektir á símafundi félagsins í gær. „Við erum ánægðir enda sýnir þetta að þrýstingur okkar á stjórn AMR hefur skilað árangri,“ segir Hall- dór Kristmannsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group. Hann bætir við að fleiri leiðir séu í skoðun hjá AMR. Gengi bréfa í AMR rauk upp um rúm fjögur prósent á fjármála- mörkuðum vestanhafs á miðviku- dag en lækkaði um rúm tvö pró- sent við opnun markaða í gær og stóð við 24,5 dali á hlut um miðjan dag. Þrýstingur á AMR að skila sér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.