Fréttablaðið - 30.10.2007, Page 1

Fréttablaðið - 30.10.2007, Page 1
mest lesna dagblað á íslandi Þriðjudagar *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið D V 41% 73% 4% DD Sími: 512 5000 ÞRIÐJUDAGUR 30. október 2007 — 295. tölublað — 7. árgangur Jenný Erla Guðmundsdóttir stundar bæði and- lega og líkamlega líkamsrækt til að halda sér í góðu formi. „Ég þjáðist af mikilli streitu á sínum tíma og fór að stunda jóga til að ná betra andlegu jafnvægi. Jóga er að vissu leyti andleg leið og eftir tímabil þar sem ég kenndi jóga í sex ár náði ég ákveðnum árangri og fann hve mikilvægt er að sinna bæði andlegri og lík- amlegri heilsu,“ segir Jenný Erla Guðmundsdóttir grafíklistakona, sem sendi nýverið frá sér hugleiðslu- bókina Sköpun heimsins. „Bókin er mín leið til að stuðla að andlegu heil- brigði fyrir mig og aðra. Markmiðið er að senda les- andann í andlegt ferðalag með hugleiðslu með texta og myndum sem ég vann í tilefni þúsund ára kristni- töku fyrir sjö árum,“ segir Jenný, sem í dag stundar sígilda líkamsrækt ásamt því að sinna andlegu hlið- inni af alúð. „Ég leitaði aftur í barnatrúna og á í dag mjög lifandi trú þar sem ég fann ákveðið jafnvægi milli þess andlega og líkamlega. Þetta finnst mér sér- lega mikilvægt fyrir fólk sem er í skapandi störfum þar sem alltaf þarf visst áreiti til þess að geta skapað,“ útskýrir Jenný sem nefnir þætti eins og streitu og ótta sem veikja líkamann. „Aðalatriðið er að sinna sjálfum sér og sjá heil- brigði sem heild,“ útskýrir Jenný, sem segir bókina vera eins konar andlegt góðgæti sem hentar vel sam- hliða alls konar líkamsrækt. „Við erum upptekin af því að fitna ekki og halda okkur í formi en það má ekki gleyma andlegri næringu. Þess vegna má segja að bókin sé konfekt fyrir anda og sál. Nema það er hægt að njóta hennar að vild og vaxa án þess að þyngjast og fitna,“ segir Jenný hlæjandi. Sætindi fyrir anda og sál Guðbjörg Ósk Rakel rakel@osk.is osk@osk.is 29.900,-Peaceful Warrior dvd og námsgögn innifalið.Rope yoga stöðin Ósk.is Bæjarhrauni 22, 220 Hafnarfirði. Einstakt helgarámskeið þar sem þú læriröfluga leið til að hafa líf þitt nákvæmlegaeins og þú óskar þér. Aukið sjálfsöryggi,jákvæðari samskipti við fólk, góð heilsa og líkamleg meðvitund, er hluti af því sem þú öðlast á þessu námskeiði. Þú lærir að ná árangri og njóta þess að lifa. Símar: 555 3536 / 695 0089 P R O D E R M TMhúðvörn gegn kuldaog snertiofnæmi Lagar fljótt húðþurrk,roðaflekki, þurrkablettisviða og kláða í andliti og höndum. Verndar húðinafyrir efnum á pH1 – pH12. Engin fituáferð. Fyrir börn, hlífirhúðinni við kulda,munnvatni, tárumog nefrennsli. Proderm er læknavara.Rannsóknir staðfesta virkni. Fæst í apótekum www.celsus.is veðrið í dag Jenný erla guðmundsdóttir Sinnir bæði andlegri og líkamlegri heilsu sinni heilsa bækur í miðJu blaðsins austurland Austfjarðaþokan liðast inn með fjöllunum Sérblað um Austurland Fylgir Fréttablaðinu í dag AusturlandÞriðjudagur 30. október 2007 Dagar myrkursLífgað er upp á dimman nóvembermánuð með ýmsum uppákomum um allt austurland. bLs. 10 Fréttablaðoið/GVa fólk „Það er greinilegt að veðurfar er að breytast á Íslandi,“ segir Heiðar W. Jones, sem hefur ásamt eiginkonu sinni, Marsibil Erlendsdóttur, verið vitavörður á Dalatanga í fimmtán ár. Einangr- un á Dalatanga hefur minnkað mikið síðastliðin ár en áður voru þau hjónakorn oft innilokuð frá byrjun nóvember og fram í júní. Þá urðu börn þeirra að hafa vetursetu hjá móðursystur sinni frá því þau byrjuðu sex ára gömul í skóla í Brekku í Mjóafirði. „Það var einfaldlega ekki hægt að fara á milli vegna ófærðar,“ segir Heiðar. Í viðtali við hjónin í sérblaði um Austurland í miðju Fréttablaðsins segja þau frá lífinu á Dalatanga. - sg Vitaverðir á Dalatanga: Veðrið hefur batnað mikið dalatangi „Við erum ekki undarlegri en aðrir,“ segja vitaverðirnir á Dalatanga, Heiðar og Marsibil. MynD/KAren jenny Ölvuð og týnd Hver Lost- stjarnan á fætur annarri gerist sek um ölvunarakstur. fólk 29 Til liðs við Regnbogabörn Þorgrímur Þráinsson reynir fyrir sér á nýjum vettvangi í stjórn Regn- bogabarna. fólk 34 Ólafur í stað Eyjólfs KSÍ réð Ólaf Jóhannes- son í starf landsliðsþjálf- ara karla í gær. Ólafur stýrir sínum fyrsta leik á Parken í lok nóvember. íÞRóttIR 30 BJARt SUÐAUStAN tIl - Í dag verður norðan strekkingur austast á landinu, annars mun hægari. Él norðan og vestan til en lengst af bjart veður á landinu suðaust anverðu. Hiti nálægt frostmarki. veÐUR 4 � ���� �� �� � � � � � � � SlyS Karlmaður á áttræðisaldri lést í bílslysi við Ærlæk, skammt norðan við Egilsstaði, á fimmta tímanum í gær. Hann var einn á ferð í jepplingi þegar hann fór út af veginum. Óskar Bjartmarz, yfirlögreglu- þjónn á Egilsstöðum, segir að bifreið mannsins hafi farið yfir endann á ræsi við veginn og farið út af honum vinstra megin við akstursstefnu. Þar hafi hann lent á staur og stöðvast. Bíllinn valt ekki við útafaksturinn. Að sögn Óskars voru aðstæður með góðu móti þegar slysið varð, engin hálka á veginum. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. - sþs Karlmaður á áttræðisaldri lést: Ók af veginum og lenti á staur tölvUleIkIR Um þúsund erlendir gestir leggja leið sína til landsins um helgina vegna uppskeruhátíðar EVE Online-tölvuleiksins frá CCP. Hátíðin, sem kallast Fanfest, verður haldin í Laugardalshöll að þessu sinni, en hún hefur sprengt utan af sér Loftkastalann og Hótel Nordica undanfarin ár vegna stærðar. „Við erum ekki að fara að fylla Laugardalshöllina, en ef áfram heldur sem horfir gætum við þurft að finna stærra húsnæði fyrir árið 2009,“ segir Hilmar Veigar Péturs- son, framkvæmdastjóri CCP. „Ég man ekki eftir fjölmennari ráð- stefnu á Íslandi í svipinn, það er helst Airwaves eða eitthvað slíkt sem gæti slegið þetta út.“ Á annað þúsund erlendir gestir, blaðamenn og tónlistarmenn komu til landsins vegna Airwaves-tón- leikahátíðarinnar sem haldin var 17. til 21. október síðastliðinn. Flestir erlendu gestanna koma frá Bretlandi, en sumir fljúga yfir hálfan hnöttinn frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi til að taka þátt í hátíðinni. En hvað fær fólk til að ferðast þúsundir kílómetra til Íslands vegna tölvuleiks? „Ég held að fólk komi hingað til að hitta þá sem það hefur verið að spila með, hitta okkur sem erum að gera leikinn og spjalla um hvað er að gerast í heiminum,“ segir Hilmar. „Þetta er miklu frekar fögnuður yfir EVE Online-leiknum sem slíkum en að fólk sé að koma til að sjá eitthvað ákveðið.“ - sþs / sjá síðu 28 Þúsund til landsins vegna tölvuleiks Um þúsund manns koma til Íslands um helgina til þess að sækja uppskeruhátíð fjölspilunarleiksins EVE Online. Hátíðin er orðin svipuð Airwaves að stærð. Fram- kvæmdastjóri CCP segir félagsskapinn, spjallið og skemmtunina laða fólk að. BRetlAND Íslenskættaður maður, Ian Strachan, situr í gæsluvarð- haldi í Bretlandi grunaður um að hafa reynt að kúga fé af bresku konungsfjölskyldunni. Mál hans verður tekið fyrir í lok desember. Málið snýst um kynlífsmynd- band þar sem meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar er sagður koma fyrir en Strachan og félagi hans eru sagðir hafa komist yfir það. Þeir eru sakaðir um að hafa reynt að nota myndbandið til að hafa sex milljónir króna af þeim sem kemur fram í myndbandinu. Verjandi Strachans í málinu er Giovanni Di Stefano, fyrrverandi verjandi Slobodans Milosevic og Saddams Hussein. Hann segist sannfærður um sakleysi skjólstæð- ings síns. „Hann líður fyrir það að aðalbor- inn maður á hlut að máli. Þetta væri ekki svona ef þetta væru bara þú og ég,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið. Ástæðan fyrir því að Di Stefano tók þetta mál að sér er að sonur hans og Strachan eru góðir vinir. Ian Strachan heitir fullu nafni Paul Einar Ian Adalsteinsson og ólst upp í skosku borginni Aber- deen. Hann er sonur Aðalsteins Aðalsteinssonar og Elizabeth Strachan. Þau skildu þremur árum eftir að Ian kom í heiminn. Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og hafa dagblöð fjallað ítarlega um það. - sþs / fgg / sjá síðu 34 Hálfíslenskur maður varinn af lögfræðingi Slobodans Milosevic í sakamáli: Sakaður um að kúga konungborna skúli bJörn sigurðsson Lomber, bókavaka og herragarðskvöld Margt á döfinni á Skriðuklaustri austurland í miðJu blaðsins snör handtök Mikið var að gera á dekkjaverkstæðum landsins í gær, enda til siðs hjá Íslendingum að setja vetrardekkin undir eins seint og mögulegt er. Björn, rafau og rimas á Max 1 dekkjaverkstæðinu í jafnaseli strituðu allan liðlangan daginn við að koma sem flestum af sleipu sumardekkjunum og á eitthvað gripbetra. frÉttABlAðið/VilHelM BANDARíkIN Of mikið er um skýrslur í Texas-ríki. Þetta er nið- urstaða skýrslu sem ríkisbóka- safnið hefur gert í samvinnu við skjalasafnsnefnd Texas. Skýrslan er 668 síður og tók eitt og hálft ár að skrifa. Samkvæmt niðurstöðum þess- arar viðamiklu skýrslu væri hægt að spara þúsundir vinnu- stunda og álíka mörg tonn af pappír ef hægt væri að draga úr skýrslugerðarþörf ríkisstarfs- manna. Stofnanir séu látnar skila skýrslum um hitt og þetta, þó að engin sé þörfin. Skýrsluskýrslan er þó ekki full- gerð, heldur verður unnið í henni næsta árið. - sþs Niðurstaða 668 síðna skýrslu: Allt of margar skýrslur í Texas Börn og dagheimili „Öll börn sem eru að vaxa úr grasi í mínu umhverfi hafa verið á dag- heimilum eða hjá dagmæðrum og síðan í leikskólum,“ skrifar Jónína Michaelsdóttir. í DAG 18

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.