Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 11
Vel hefur gengið að
fækka mink í veiðiátaki á
Snæfellsnesi og í Eyjafirði sem
hófst í janúar síðastliðnum. Fram
kemur á vef Umhverfisstofnunar
að 312 minkar hafi veiðst það
sem af er árinu.
Ríflega 220 minkar hafa veiðst
í gildrur en hundar veiddu
tæplega 80. Afgangurinn var
ýmist skotinn eða fannst dauður.
Óvenju hátt hlutfall af læðum
veiddist í vorveiðinni, allt að
helmingi fleiri en áður hefur
verið, segir í frétt á vef
Umhverfisstofnunar.
Alls verður varið 135 milljón-
um króna til að fækka mink á
Snæfellsnesi og í Eyjafirði í
átaki sem standa á til ársloka
2009.
Minkaveiðin
minnkar ekki
„Lending vélarinnar
var með eðlilegum hætti en við lok
lendingarbruns varð áhöfninni
ljóst að bremsuskilyrði voru alger-
lega ófullnægjandi og önnur en
samkvæmt upplýsingum frá flug-
turni.“
Svo segir í yfirlýsingu frá flug-
félaginu JetX ehf. vegna atviksins
um helgina þegar vél frá flug-
félaginu rann út af flugbrautinni á
Keflavíkurflugvelli.
Rannsóknarnefnd flugslysa fer
með rannsókn málsins, sem hún
lítur á sem alvarlegt flugatvik.
Nefndin mun taka flugritagögn
til greiningar og rannsaka flug og
lendingu flugvélarinnar nánar.
Í tilkynningu frá rannsóknar-
nefndinni segir að í aðflugi að
Keflavíkurflugvelli hafi bremsu-
skilyrði verið uppgefin sem góð
með ís á stöku stað. Í lendingar-
bruni hafi áhöfnin orðið vör við að
bremsuskilyrðin voru ekki eins og
búist hafði verið við.
Í tilkynningu JetX segir að með
tilliti til þessara aðstæðna og í
samræmi við almennar verklags-
reglur í flugi hefði flugstjórinn
valið að beita harðri lendingu.
Karlmaður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Austur-
lands til að greiða 160 þúsund
krónur til ríkissjóðs fyrir
ölvunarakstur. Hann var einnig
sviptur ökuleyfi í eitt og hálft ár
og látinn greiða tæpar tvö
hundruð þúsund krónur í sakar-
kostnað.
Maðurinn ók ölvaður eftir
þjóðveginum frá Einarsstöðum í
Fljótsdalshéraði í átt til Egilsstaða
13. maí síðastliðinn. Bílferðinni
lauk með því að hann missti stjórn
á bílnum og lenti utan vegar. Fyrir
dómi hélt maðurinn því fram að
hann hefði ekki ekið bílnum, en
dómurinn tók ekki mark á því.
Stútur dæmdur
í sektargreiðslu
Mánudaga - föstudaga
10 - 18
Laugardaga
10 - 14
Verð 5.985.000 kr.
5.685.000 kr.
MAMMA
BIRTÍNGUR
VÍNBÚÐIN
HEIÐRÚN
PRENTMET HARÐVIÐARVAL
JDC
Fulltrúar
Sjálfstæðisflokks í velferðarráði
Reykjavíkur segja áhersluatriði
nýs meirihluta ráðs byggja að
nánast öllu leyti á áherslum fyrri
meirihluta. „Enda snúast þessi
atriði um hlutverk okkar og lúta
að því að auka velferð borgar-
anna,“ segja sjálfstæðismenn.
Meðal þess sem nýi meirihlut-
inn kveðst ætla að leggja áherslu
á eru húsnæðismál og málefni
barna og aldraðra. Hvað börn
snertir segir meirihlutinn að
áhersla verði aukin á barnavernd
og forvarnastarf og stuðning og
aðstoð við fátæk börn og börn í
áhættuhópi.
Einhugur í
velferðarráði