Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 13
Skákborðsmorðing-
inn í Rússlandi var í síðustu viku
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
að hafa myrt 48 manns.
Alexander Pichushkin, 33 ára
gamall smiður, merkti fórnar-
lömb sín inn á reiti skákborðs og
var markmið hans að fylla alla 64
reitina. Aðeins náðist að sanna á
hann 48 morð en Pichushkin
gortaði af því að hafa myrt 63
manns.
Ekkert hliðstætt morðmál í
Rússlandi hefur vakið jafn mikla
athygli síðan Andrei Chikatilo var
líflátinn árið 1994 fyrir morð á 52
börnum og ungum konum á tólf
ára tímabili.
Lífstíðardómur
fyrir 48 morð
„Velferðarráð
Reykjavíkurborgar varar við
hugmyndum um aukið frelsi á
áfengissölu sem lagt er til í nýju
frumvarpi sem nú
er til meðferðar á
Alþingi Íslend-
inga,“ segir í
ályktun velferðar-
ráðsins.
„Rannsóknir í
Svíþjóð, Finnlandi,
Bandaríkjunum og
Kanada sýna fram
á margföldun á
neyslu þegar
aðgengi er aukið
með afnámi
einkasölu,“ segir
velferðarráðið og bætir við:
„Líklegt er að þeir sem muni nýta
sér aukið aðgengi að áfengi séu
þeir sem síst skyldi. Afleiðingarn-
ar munu bitna á börnum og
ungmennum sem nú þegar búa
við erfið uppeldisskilyrði vegna
áfengisneyslu forráðamanna
sinna.“
Gegn frjálsari
sölu áfengis
Bandarísk kona,
Lisa Montgomery, var í síðustu
viku sakfelld fyrir mannrán sem
leiddi til dauða eftir að hún skar
barn úr móðurlífi óléttrar konu
sem lést síðar. Barnið tók hún
heim með sér. Montgomery, sem
er 39 ára gömul, var dæmd til
dauða fyrir glæpinn.
Verjendur sögðu hana þjást af
geðröskun og ranghugmyndum
um að hún væri ólétt, og þar sem
komið hefði verið að lokum
ímyndaðrar óléttu Montgomery
og blekkingin í hættu hefði hún
verið í draumkenndu ástandi
þegar hún framdi verknaðinn.
Saksóknari sagði Montgomery
hafa stjórnast af ótta við að fyr-
verandi eiginmaður hennar
myndi komast að því að hún væri
að ljúga til um óléttuna og nota
það gegn henni í forræðisdeilu
yfir tveimur börnum þeirra.
Montgomery hafði sagst eiga
von á sér í desember 2004. Þegar
sá tími nálgaðist setti hún sig í
samband við 23 ára ólétta konu,
Bobbie Jo Stinnet, undir því yfir-
skyni að ætla að kaupa af henni
hvolp og mælti sér síðan mót við
hana.
Saksóknari segir Montgomery
hafa reynt að kyrkja Stinnet, sem
var gengin átta mánuði, með
reipi. Stinnet hafi þó verið með
meðvitund og reynt að verja sig
þegar Montgomery byrjaði að
skera barnið úr kviði hennar með
eldhúshnífi.
Skar barn úr móðurkviði
Betur fór en á horfð-
ist þegar lítil þyrla hrapaði á olíu-
flutningabifreið í Noregi í gær.
Þrír menn voru um borð í
þyrlunni og sluppu þeir allir
ómeiddir. Enginn var í bifreiðinni
sem var kyrrstæð á bygginga-
svæði.
Þyrlan lenti á hvolfi á bifreið-
inni og munaði minnstu að hún
lenti á olíutanknum, en í tanknum
voru sjö þúsund lítrar af eldfimri
dísilolíu.
„Þetta er býsna ótrúlegt,“ sagði
Rune Arneberg, yfirmaður lög-
reglunnar í Sarpsborg.
Þyrlan var á sveimi yfir bygg-
ingasvæðinu í þeim tilgangi að
kvikmynda það þegar óhappið
varð.
Þyrla hrapaði á
olíuflutningabíl
Björgunar-
menn fundu lík tveggja skipverja
vöruflutningaskips sem hvolfdi á
Femern-sundi á milli Danmerkur
og Þýskalands á sunnudag.
Björgunarmenn eru vonlitlir um
að finna fimm manns, sem enn er
saknað, á lífi. Ellefu voru um borð
í skipinu sem er skráð í Slóvakíu
og var þremur bjargað stuttu eftir
að það sökk um borð í rússneskt
skip. Þrjú lík hafa fundist.
Skipið, sem er 80 metrar að
lengd, var að flytja ammóníum-
klóríð. Ekkert benti til þess að
farmurinn né eldsneyti hefði lekið
úr skipinu í gær. Óljóst er hvers
vegna skipinu hvolfdi.
Talið að fimm
hafi drukknað
Þrettán manns
sem segjast „raunverulegar
ofurhetjur“ tíndu rusl og dreifðu
forvarnarbæklingum gegn
glæpum á sunnudaginn í New
York. Kvikmyndagerðarmaðurinn
Chaim Lazaros myndaði hópinn
eftir að hann rakst á ofurhetjurn-
ar í netsamfélaginu MySpace og
vinnur nú að heimildarmynd um
þær.
Ofurhetjurnar vildu ekki gefa
upp nöfn sín en sögðust flestar
starfa í nágrenni heimila sinna.
Fyrrverandi vændiskona sem
kallar sig Götuhetjuna gætir nú
öryggis annarra vændiskvenna.
Maður sem kallar sig Húsvörðinn
lagar hins vegar rafmagn hjá
fólki.
Ofurhetjur tína
rusl á götum
New York