Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 19
Jenný Erla Guðmundsdóttir stundar bæði and-
lega og líkamlega líkamsrækt til að halda sér í
góðu formi.
„Ég þjáðist af mikilli streitu á sínum tíma og fór að
stunda jóga til að ná betra andlegu jafnvægi. Jóga er
að vissu leyti andleg leið og eftir tímabil þar sem ég
kenndi jóga í sex ár náði ég ákveðnum árangri og
fann hve mikilvægt er að sinna bæði andlegri og lík-
amlegri heilsu,“ segir Jenný Erla Guðmundsdóttir
grafíklistakona, sem sendi nýverið frá sér hugleiðslu-
bókina Sköpun heimsins.
„Bókin er mín leið til að stuðla að andlegu heil-
brigði fyrir mig og aðra. Markmiðið er að senda les-
andann í andlegt ferðalag með hugleiðslu með texta
og myndum sem ég vann í tilefni þúsund ára kristni-
töku fyrir sjö árum,“ segir Jenný, sem í dag stundar
sígilda líkamsrækt ásamt því að sinna andlegu hlið-
inni af alúð. „Ég leitaði aftur í barnatrúna og á í dag
mjög lifandi trú þar sem ég fann ákveðið jafnvægi
milli þess andlega og líkamlega. Þetta finnst mér sér-
lega mikilvægt fyrir fólk sem er í skapandi störfum
þar sem alltaf þarf visst áreiti til þess að geta skapað,“
útskýrir Jenný sem nefnir þætti eins og streitu og
ótta sem veikja líkamann.
„Aðalatriðið er að sinna sjálfum sér og sjá heil-
brigði sem heild,“ útskýrir Jenný, sem segir bókina
vera eins konar andlegt góðgæti sem hentar vel sam-
hliða alls konar líkamsrækt. „Við erum upptekin af
því að fitna ekki og halda okkur í formi en það má
ekki gleyma andlegri næringu. Þess vegna má segja
að bókin sé konfekt fyrir anda og sál. Nema það er
hægt að njóta hennar að vild og vaxa án þess að
þyngjast og fitna,“ segir Jenný hlæjandi.
Sætindi fyrir anda og sál
Guðbjörg Ósk
Rakel
rakel@osk.is
osk@osk.is
29.900,-
Peaceful Warrior dvd
og námsgögn innifalið.
Rope yoga stöðin Ósk.is Bæjarhrauni 22, 220 Hafnarfirði.
Einstakt helgarámskeið þar sem þú lærir
öfluga leið til að hafa líf þitt nákvæmlega
eins og þú óskar þér. Aukið sjálfsöryggi,
jákvæðari samskipti við fólk, góð heilsa og
líkamleg meðvitund, er hluti af því sem þú
öðlast á þessu námskeiði.
Þú lærir að ná árangri og njóta þess að lifa.
Símar: 555 3536 / 695 0089
P R O D E R M TM
húðvörn gegn kulda
og snertiofnæmi
Lagar fljótt húðþurrk,
roðaflekki, þurrkabletti
sviða og kláða
í andliti og
höndum.
Verndar húðina
fyrir efnum á
pH1 – pH12.
Engin fituáferð.
Fyrir börn, hlífir
húðinni við kulda,
munnvatni, tárum
og nefrennsli.
Proderm er læknavara.
Rannsóknir staðfesta virkni.
Fæst í apótekum www.celsus.is