Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Fangelsið Kvíabryggja, sem
er steinsnar frá Grundar-
firði, er skilgreint sem opið
fangelsi. Fangarnir hafa
meira frjálsræði en í öðrum
fangelsum landsins. Að-
staðan á Kvíabryggju er nú
boðleg jafnvel vandlátustu
vistmönnum.
Miðvikudaginn 3. október síðast-
liðinn var fangelsið Kvíabryggja
tekið formlega í notkun eftir
endurbætur. Í fangelsinu má nú
hýsa 22 fanga af báðum kynjum í
vistlegum herbergjum með fyr-
irtaks aðstöðu til leiks og starfs.
Kvíabryggja er nú skilgreind
sem „opið fangelsi“. Engir rimlar
eru fyrir gluggunum og engin
girðing er kringum fangelsis-
svæðið. Klefar fanganna, ef svo
mætti kalla þá, eru notalegir og
úr mörgum þeirra er glæsilegt
útsýni yfir fjöruna. Í tómstund-
um sínum geta fangar nýtt sér
líkamsræktarsalinn, spilað billj-
arð, grúskað í bókasafninu eða
slappað af í setustofunni.
Á Kvíabryggju eru vistaðir
fangar með stuttan sakaferil og
þeir sem hafa hegðað sér til
sóma. Fangarnir skrifa undir
samning við upphaf afplánunar
og heita því að endurgjalda
traustið og axla þá ábyrgð sem
fylgir frjálsræðinu. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
segir það vera stefnu yfirvalda
að auka möguleika fanga á vistun
í „opnu fangelsi“ og til stendur að
koma upp svipaðri aðstöðu á
Litla-Hrauni.
Boðlegt vandlátustu
vistmönnum Kvíabryggju
Hið besta mál að greiða
laun í evrum
Bara kanínan Með góðum óskum
Rúta til Akureyrar og flug suður