Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 8
Hvað heitir forsetafrúin sem
nú er orðin forseti Argentínu?
Hvað heitir bandaríska leik-
konan sem gaf kærasta sínum
endajaxl í afmælisgjöf?
Hvað heitir danski gaman-
þátturinn sem verður á dagskrá
Ríkissjónvarpsins í fyrsta sinn í
vikunni?
Cristina Fernández
de Kirchner hafði, þegar meira en
96 prósent atkvæða höfðu verið
talin í gær, hlotið um 45 prósent
atkvæða í fyrri umferð forseta-
kosninganna í Argentínu á sunnu-
dag.
Þar með hafði hún tryggt sér
embættið, því seinni umferð kosn-
inganna er ekki haldin nema efsti
frambjóðandi hafi hlotið innan við
fjörutíu prósent atkvæða eða
minna en tíu prósent muni á
tveimur efstu frambjóðendum.
Fernández er 54 ára lögfræð-
ingur og þingmaður í öldunga-
deild landsins og hefur auk þess
verið forsetafrú Argentínu síð-
ustu fjögur árin.
Fréttaskýrendur segja að hún
muni njóta þess að eiginmaður
hennar hafi nú þegar komið land-
inu út úr alvarlegri efnahags-
kreppu, en á hinn bóginn verði
hún að nota tækifærið og lag-
færa ýmislegt sem aflaga hefur
farið í stjórnartíð eiginmanns-
ins, meðal annars himinháa verð-
bólgu og síminnkandi afgang á
fjárlögum, að öðrum kosti njóti
hún varla stuðnings kjósenda
lengi.
Kosningabarátta hennar þótti
heldur óvenjuleg. Hún neitaði að
taka þátt í kappræðum við mót-
frambjóðendur, en sást þeim mun
oftar á ferðalögum erlendis þar
sem hún stillti sér upp til mynda-
töku með þjóðhöfðingjum.
Mörgum þykir hún minna svo-
lítið á Evitu Peron, hina vinsælu
eiginkonu Juans Peron forseta –
að minnsta kosti þykir klæðaburð-
urinn svipaður, hvað svo sem út
úr því má lesa.
Cristina Fernández verður
önnur konan sem gegnir forseta-
embætti í Argentínu. Isabel Peron,
sem giftist Juan Peron eftir að
Evita lést, var varaforseti hans og
tók við embættinu þegar Peron
féll frá árið 1974. Hún gegndi
starfinu í 20 mánuði en þá steypti
herinn henni af stóli.
Stóra spurningin í argentínsk-
um stjórnmálum nú er hins vegar
hvað eiginmaður hennar ætlar að
gera þegar hann víkur úr embætti
fyrir Cristinu. Sjálfur segist hann
hæstánægður með að verða eigin-
maður forsetans, en fáir virðast
þó trúa því að hann ætli að halda
sig alveg baksviðs.
Jafnvel hafa heyrst vangaveltur
um að þau hafi hug á að skipta
aftur um hlutverk í næstu forseta-
kosningum árið 2011.
Forsetafrú
verður forseti
í Argentínu
Cristina Fernández de Kirchner hlaut yfirburða-
kosningu í forsetakosningunum í Argentínu sem
fram fóru á sunnudag. Cristina, sem er 54 ára lög-
fræðingur, tekur við af eiginmanni sínum, Nestor.
G
O
T
T
F
O
L
K
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
Vegagerðin og
framkvæmdasvið Reykjavíkur-
borgar kynntu í gær hugmyndir
sínar um nýjan veg sem tengja á
Grafarvog annars vegar og
Hamrahlíðar hins vegar með mis-
lægum gatnamótum við Vestur-
landsveg.
Um er að ræða svokölluð drög
að tillögu að matsáætlun vegna
fyrirhugaðra framkvæmda. Þar
er sagt frá því hvaða atriði er
áætlað að verði til skoðunar þegar
umhverfisáhrif þeirra eru metin.
Frestur þeirra sem hagsmuna
hafa að gæta til að skila athuga-
semdum við drögin er til og með
12. nóvember næstkomandi.
Tilgangurinn með framkvæmd-
unum er að tengja Grafarvogs-
hverfið og hverfi í Hamrahlíðum
saman, og tengja þau Vestur-
landsveginum.
Mislægu gatnamótin eru á sam-
gönguáætlun 2007-2010, en fjár-
veiting er þó ekki á áætlun þeirra
ára, þó gera megi ráð fyrir henni
á árunum 2011-2014, að því er
fram kemur í frétt frá Vegagerð-
inni.
Tillaga að tengingu við Vesturlandsveg
1
430
Egilshöll
Ve
gh
ús
ús
g hús
Ví
ku
rv
eg
ur
Fossa
leynir
Vík
Ve
stu
rla
nd
sve
gu
r
Keldnaholt Leirtjörn
Hj
al
la
r
Skiggnis-
t