Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 43
Catherine Zeta-Jones hefur
vakið athygli undanfarið fyrir
að fara minnkandi með hverj-
um degi. Hún vísar sögusögn-
um um átraskanir hins vegar
algjörlega á bug og segir eigin-
mann sinn, Michael Douglas,
gera slíkt hið sama. „Michael
hló að mér. Hann sagði mér
hvað fólk hefði sagt – sögur um
að ég væri með anorexíu. Lít
ég út fyrir það?“ sagði hún í
viðtali við tímaritið People.
Zeta-Jones viðurkennir þó
að hafa lést. Hún segist hafa
borðað mikið af brauði á árum
áður, en hafi síðan reynt að
breyta venjum sínum. „Ég fer í
líkamsrækt og belgi mig ekki
út af því sem ég geri venju-
lega,“ sagði hún.
Engin átröskun
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Erlendur Eiríksson málarameistari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“
Lyktarlaus
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
M
A
L
3
97
08
1
0.
2
0
0
7
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari,
Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri,
Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig.
Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík • Fóðurblandan, Selfossi, Hvolsvelli og Egilsstöðum.
Söngkonan Kylie Minogue fær á
næstunni afhent heiðursverðlaun
í London fyrir framlag sitt til
tónlistarinnar. Verðlaunin eru
veitt árlega af samtökunum
Music
Industry
Trust sem
safna fé til
góðgerða-
mála. Á meðal
þeirra sem
hafa fengið
verðlaunin
eru Sir Elton
John og Peter
Gabriel.
Kylie, sem
er 39 ára, á að
baki tuttugu
ára feril í
tónlistinni.
„Ég er virkilega ánægð með að fá
þennan heiður,“ sagði hún.
Söngkonan er um þessar mundir
að snúa aftur í sviðsljósið eftir að
hafa sigrast á brjóstakrabba-
meini sem hún greindist með
fyrir tveimur árum.
Kylie heiðruð
Kvikmyndin Walk the Line, sem fjallar um ævi
kántrísöngvarans Johnny Cash, hefur verið kjörin
besta myndin sem gerð hefur verið um ævi tónlistar-
manns.
Í öðru sæti varð 8 Mile sem fjallar um Eminem,
næst kom Amadeus um ævi Mozarts og í því fjórða
varð Ray sem fjallar um Ray Charles. Í fimmta
sætinu lenti síðan The Doors þar sem Val Kilmer fór
með hlutverk rokkgoðsagnarinnar Jim Morrison.
Rúmlega tvö þúsund kvikmyndaaðdáendur tóku
þátt í könnuninni, sem var gerð á vegum DVD-
netfyrirtækisins Lovefilm. Nýlegasta myndin sem
komst inn á topp tíu var Control, sem fjallar um ævi
Ian Curtis, söngvara Joy Division.
Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon fóru með
aðalhlutverkin í Walk the Line. Witherspoon lék
eiginkonu Cash, June Carter, og fékk hún óskars-
verðlaun fyrir frammistöðu sína á síðasta ári.
„Kvikmyndir og tónlist passa vel saman og hafa
margir leiksigrar unnist í slíkum myndum,“ sagði
talsmaður Lovefilm.com. „Þessi könnun sýnir það
besta sem þessi kvikmyndategund hefur upp á að
bjóða, hvort sem það er blótandi rappari, goðsögn úr
Motown-heiminum eða klassískt tónskáld.“
Walk the Line besta myndin
Leikkonan Angelina Jolie hefur
ekki í hyggju að semja frið við
fyrrverandi eiginkonu spúsa síns,
Brad Pitt, þrátt fyrir ítrekuð
loforð hennar um betra samband
við Jennifer Aniston. Vinur
hjónakornanna segir Angelinu
sífellt valda manni sínum
vonbrigðum með slíkum loforðum
sem hann geri sér nú grein fyrir
að séu orðin tóm. Vinurinn segir
helstu ástæðuna fyrir brestum í
sambandinu hversu svikul
Angelina sé.
Ólík sýn hjónanna á barnaupp-
eldi og álag vegna hinnar stóru
nýtilkomnu fjölskyldu þeirra
þykja einnig álagsvaldar en Brad
og Angelina eiga saman fjögur
börn, þar af þrjú ættleidd. Brad
mun hafa sagst ætla að taka með
sér einu blóðskyldu dóttur þeirra,
Shiloh, skyldi flosna upp úr
hjónabandinu. Hann hafi ekki
endilega hug á sameiginlegu
forræði.
Svikul Angel-
ina Jolie