Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 49
Hryllingsmyndin Saw IV fór
beint á toppinn í Norður-Ameríku
eftir frumsýningarhelgi sína. Í
öðru sæti lenti nýjasta gaman-
mynd Steve Carrell, Dan in Real
Life.
Í þriðja sætinu lenti síðan
vampírumyndin 30 Days of Night,
sem var í efsta sætinu um síðustu
helgi. Saw IV náði álíka miklum
aðsóknartekjum og forveri sinn
og virðast vinsældir þessa
hryllingsmyndabálks engan endi
ætla að taka. „Það er eitthvað
sérlega ógeðslegt og stuðandi við
þessar myndir. Ég veit ekki hvað
það segir um samfélagið en þetta
virkar í miðasölunni,“ sagði
forseti kvikmyndafyrirtækisins
Media by Numbers.
Hryllingur
á toppinn
Daniel Dae Kim varð á dögunum
fjórði leikarinn úr sjónvarpsþáttaröð-
inni vinsælu Lost til að lenda á bak við
lás og slá. Þrjár af handtökunum hafa
verið vegna ölvunaraksturs á töku-
staðnum, Havaí-eyjum.
Daniel Dae, sem leikur Jin-Soo Kwon í Lost, var
fullur eftirsjár eftir að hann var tekinn fyrir
ölvunarakstur af lögreglunni í Honolulu. „Mér
þykir það mjög leitt hvernig ég hef lagt hina
ljúfu íbúa Havaí í hættu með hegðun minni.
Havaí er samfélag sem mér þykir afar vænt um
og lít ég á það sem mitt heimili,“ sagði Dae.
Var áfengismagnið í blóði hans tvöfalt það sem
leyfilegt er við handtökuna. „Ég vil þakka
vinum mínum, fjölskyldu, samstarfsfélögum
og aðdáendum fyrir stuðninginn. Ykkur sem
ég hef valdið vonbrigðum með hegðun minni
bið ég innilegrar afsökunar,“ sagði hann.
Svo virðist sem leikararnir úr Lost eigi erfitt
með að fylgja settum reglum því Daniel er
fjórði leikarinn úr Lost sem er handtekinn á
Havaí fyrir umferðarlagabrot. Fyrst voru stöll-
urnar Michelle Rodriguez og Cynthia Watros,
sem fóru með hlutverk Ana Lucia og Libby,
teknar með stuttu millibili fyrir ölvun við
akstur eftir undarlegt aksturslag þeirra. Í fót-
spor þeirra fetaði síðan Adewale
Akinnuoye-
Agbaje,
sem lék
Hr. Eko.
Var hann
tekinn
hönd-
um
fyrir
að
vera ekki með ökuskírteini á sér og fyrir að
hlýða ekki lögregluþjóni. Þurfti hann að dúsa í
sex klukkutíma í fangelsi þar til honum var
sleppt gegn lausnarfé.
Sex leikarar til viðbótar hafa verið áminntir
fyrir umferðarlagabrot en annars sloppið með
skrekkinn. Þeir eru Josh Holloway (Sawyer),
Dominic Monaghan (Charlie), Naveen Andrews
(Sayid), Ian Somerhalder (Boone), Christian
Bowman (Steve Jenkins) og Harold Perrineau
(Michael Dawson). Hlýtur þessi fjöldi að gefa í
skyn að eitthvað mikið sé að hjá leikaraliðinu,
sem virðist vera gjörsamlega úti á þekju þegar
kemur að akstri bifreiða. Kannski þurfa þau
bara á góðri og gildri umferðarfræðslu að
halda?