Fréttablaðið - 30.10.2007, Blaðsíða 50
Ætlar að verða betri en pabbi
Nýráðinn landsliðsþjálf-
ari, Ólafur Jóhannesson, lék á als
oddi þegar Knattspyrnusamband-
ið kynnti hann á blaðamannafundi
í höfuðstöðvum KSÍ í gær.
Ólafur hefur náð frábærum
árangri með FH-liðið undanfarin
fimm sumur en nú bíður hans að
reyna að rífa upp gengi landsliðs-
ins, sem hefur verið afleitt undan-
farið. Ólafur stjórnar sínum fyrsta
landsleik gegn Dönum á Parken
21. nóvember næstkomandi og er
með samning til 31. desember
2009.
„Ég er þakklátur þessum mönn-
um fyrir að sýna mér þann heiður
að bjóða mér þetta starf. Ég tel
það vera mikinn heiður að mér sé
treyst fyrir því. Það fylgja auðvit-
að einhverjar breytingar nýjum
mönnum,“ sagði Ólafur, sem var
fyrsti kostur hjá Geir Þorsteins-
syni, formanni KSÍ.
„Við vorum í þeirri stöðu sem
mér fannst ekki ákjósanleg að
vera að fara að spila við Dani eftir
nokkrar vikur og ekki með neinn
þjálfara. Ég gat ekki séð annan
kost fyrir okkur en að ganga vel
og hratt til verksins. Það komu
nokkrir þjálfarar til greina.
Ólafur var í mínum huga sá sem
við áttum að ræða fyrst við. Hann
hefur náð glæsilegum árangri sem
þjálfari, hann á langan og farsæl-
an feril að baki bæði sem leikmað-
ur og þjálfari. Hann er með mikla
reynslu og hefur náð góðum
árangri,“ segir Geir, sem taldi
betra að ráða íslenskan þjálfara
en að leita erlendis.
„Það kom vel til greina að ráða
erlendan þjálfara en við vorum
undir ákveðinni tímapressu núna
og eftir að hafa hugsað málið
fannst mér það eina rétta að bjóða
þjálfara hér starfið til framtíðar
en ekki yfir einn leik eða tíma-
bundið. Ólafur var fyrsti kostur
og eini maðurinn sem hefur verið
rætt við um starfið,“ sagði Geir.
Ólafur gerir sér grein fyrir að
hann er að fara að takast á við
öðruvísi þjálfarastarf en hann er
vanur.
„Ég hef bara þjálfað félagslið og
ég geri mér alveg grein fyrir því
að þetta er pínulítið öðruvísi. Ég
nota mínar aðferðir og legg þær
undir. Þegar maður er að þjálfa
félagslið hefur maður úr að velja
20 til 25 leikmönnum en nú getur
maður valið úr 200 leikmönnum.
Auðvitað eiga allir jafna mögu-
leika og í mínum huga skiptir ekki
máli hvar menn spila heldur hvað
þeir geta í fótbolta,“ sagði Ólafur
og hann ætlar að einbeita sér að
varnarleik liðsins.
„Íslenska landsliðið þarf að
verjast. Það er númer eitt, tvö og
þrjú í mínum huga. Íslenska lands-
liðið er ekki þekkt fyrir að gera
mikið af mörkum þannig að við
þurfum að verjast. Það er algjört
skilyrði og það er málið sem ég
kem til með að leggja mikla
áherslu á,“ sagði Ólafur Jóhannes-
son á blaðamannafundinum sem
var einmitt haldinn í salnum sem
ber nafnið Vörnin.
Ólafur ætlar að ræða við fyrr-
verandi þjálfara liðsins, Eyjólf
Sverrisson, um það sem má betur
fara í sambandi við liðið.
„Ég fer inn í þetta starf sem
þjálfari og beiti mínum aðferðum.
Það kemur mér ekki við hvað hefur
gengið á. Ég átti mjög gott samtal
við Eyjólf og kem til með að setj-
ast niður með honum og spjalla við
hann. Hann getur kannski sagt
mér eitthvað,“ sagði Ólafur, sem
ætlar að sinna smíðunum með
landsliðsþjálfarastarfinu.
„Ég mun reyna að hagræða því
að ég geti gripið eitthvað í hamar-
inn,“ segir Ólafur, sem játaði að
konunni hans hefði ekki alveg lit-
ist á að hann væri að fara að bjóða
mikilli gagnrýni heim með því að
taka að sér þetta starf.
„Síðustu þrír landsliðsþjálfarar
hafa verið afhausaðir af frétta-
mönnum og það var gott sem
konan mín sagði við mig þegar ég
bar þetta upp við hana. Hún spurði
hvort ég ætlaði að koma mér í þá
stöðu að þora ekki að fara út úr
húsi eftir tvö ár. Ég vona að það
verði ekki,“ sagði Ólafur í léttum
tón en hann á enn eftir að finna sér
aðstoðarmann.
Ólafur ætlar ekki að nota Dana-
leikinn í tilraunastarfsemi heldur
stilla þar upp sínu sterkasta liði.
Við fáum því að sjá það strax á
Parken hverju Ólafur ætlar að
breyta til þess að koma A-landslið-
inu aftur á réttan kjöl.
Geir Þorsteinsson er mjög ánægður með að fá einn sigursælasta þjálfara okkar til starfa fyrir landsliðið og
segir Ólaf Jóhannesson hafa verið fyrsta kost í stöðunni og þann eina sem rætt var við um starfið. Tíma-
pressa vegna Danaleiksins útilokaði að leitað yrði að erlendum þjálfara. Ólafur samdi til 31. desember 2009.
ÍR og Grindavík unnu
heimasigra í fjórðu umferð
Iceland Express deildar karla í
gær. ÍR-ingar léku án erlendu
leikmanna sinna og unnu 76-74
sigur á Skallagrími í spennuleik.
Á sama tíma unnu Grindvíkingar
öruggan sigur á Hamar, 85-67, og
var það þriðji sigur liðsins í röð.
Hreggviður Magnússon var
með 19 stig fyrir ÍR og þeir
Sveinbjörn Claessen og Steinar
Arason gerðu 13 stig hvor. Ólafur
Jónas Sigurðsson var dýrmætur í
lokaleikhlutanum en fimm stig og
einn risastór stolinn bolti áttu
mikinn þátt í sigri Breiðhyltinga.
Erlendu leikmenn Skallagríms,
Miljoca Zekovic (24 stig), Darrel
Flake (21 stig og 19 fráköst) og
Alan Fall (12 stig og 7 stoðsend-
ingar) skoruðu 77 prósent stiga
liðsins í gær en tap þýðir að
Borgnesingar hafa tapað þremur
af fyrstu fjórum leikjum sínum.
ÍR og Grinda-
vík unnu í gær