Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.10.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 30.10.2007, Qupperneq 4
Pósthúsið - S: 585 8300 - www.posthusid.is Nú þegar farið er að myrkva úti viljum við vinsamlega minna íbúa á að hafa kveikt á útiljósum við heimili sín til að auðvelda blaðberum Fréttablaðsins aðgengi að lúgu. Munum eftir útiljósunum ! Fyrirfram þakkir, dreifing Fréttablaðsins Ökumaður mældist á 186 kílómetra hraða á klukku- stund á þjóðvegi 1 á Jökuldal aðfaranótt laugardags. Enginn hefur mælst á jafn miklum hraða í umdæmi Seyðisfjarðarlögregl- unnar, en mesti hraði sem mælst hafði þar fram að þessu var 159 kílómetrar á klukkustund fyrir nokkrum árum. Maðurinn var sviptur ökuleyfi í þrjá mánuði samkvæmt fréttatil- kynningu frá lögreglunni á Seyðisfirði. Einn ökumaður var tekinn fyrir ölvun við akstur á sunnudagskvöld, en að öðru leyti var helgin róleg hjá lögreglu- mönnum. Setti hraðamet á Seyðisfirði Tveir af hverjum þremur Íslendingum styðja þá ákvörðun Einars K. Guðfinns- sonar sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út hvalveiðikvóta fyrr en markaðsaðstæður breytast. Þetta kemur fram í niður- stöðum könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Náttúru- verndarsamtök Íslands og Alþjóðlega náttúruverndarsjóð- inn (IFAW). Alls sögðust 66,3 prósent sammála ákvörðun Einars, 11 prósent tóku ekki afstöðu og 22,6 prósent sögðust ósammála. Rúmlega 1.200 Íslendingar á aldrinum 16-75 ára lentu í úrtakinu könnunarinnar, valdir af handahófi úr þjóðskrá. Svarhlut- fallið var um 62 prósent. Meirihluti styð- ur ráðherrann Reykjavík mun teygja anga sína allt til Hólms- heiðar á næstu árum. Nú er þar vatnsból Reykvíkinga, losunar- svæði fyrir mengaðan jarðveg og skógræktarland. Ráðgert er að þar rísi fangelsi milli nýs athafna- svæðis og Reykjavíkurflugvallar, verði hann færður á heiðina. Flestar þessar framkvæmdir hafa valdið nokkrum deilum. Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur mót- mælir áætlunum um að reisa nýtt athafnasvæði mitt í skóglendi sem skólabörn hafa ræktað síðan um miðjan níunda áratuginn á Hólms- heiði. Deiliskipulagið nær yfir svæði sem er samanlagt um 170 hektarar að stærð og afmarkast svæðið af Suðurlandsvegi og Hólmsá í suðri og borgarmörkum Reykjavíkur í austri. Aðkoma að athafnasvæðinu er um Hafravatnsveg og um tengi- braut að vestan, neðan við hest- húsasvæði í nágrenninu. Í tillögunni frá skipulagssviði Reykjavíkurborgar segir að mark- mið borgarinnar séu að á svæðinu verði fjölbreytt framboð lóða með góðum tengingum við meginum- ferðarkerfi ásamt því að fella byggðina vel að landi og náttúru- legum aðstæðum. „Við höfum gert ráð fyrir mót- vægisaðgerðum vegna skógræktar- innar á svæðinu. Í því felst að nýta þann gróður sem fyrir er innan lóða og er kvöð á lóðahöfum að fimmtán prósent lóðarinnar séu skógi vaxin. En við gerum okkur grein fyrir að heilmikið af skógi fer undir bílastæði og byggingar,“ segir Björn Axelsson hjá skipu- lagssviði Reykjavíkurborgar. Á athafnasvæðinu er gert ráð fyrir að nýtt fangelsi rísi í þeim til- gangi að færa gæsluvarðhalds- fanga nær lögreglu og dómstólum í höfuðborginni. Því hafa fangaverð- ir á Litla-Hrauni mótmælt, enda eru þeir margir búsettir á Suður- landi í nágrenni fangelsisins. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvert eigi að færa Reykjavíkur- flugvöll og þykir Hólmsheiðin vera heldur langt frá miðborginni fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Þá hefur hugsanleg staðsetning flug- vallarins verið gagnrýnd því hann þykir vera of nálægt vatnsbóli Reykvíkinga og má sama segja um losunarsvæði mengunarvarna borgarinnar sem ráðgert er að stækki á næstunni. Lúðvík Gústafsson, deildarstjóri mengunarvarna umhverfissviðs Reykjavíkurborgar telur ekki ástæðu til að óttast mengun. „Samkvæmt mínum upplýsing- um frá Orkuveitu Reykjavíkur renna ekki grunnvatnsstraumar undir losunarsvæðið, auk þess sem ekki er um marga staði að ræða til þess að hreinsa mengaðan jarð- veg.“ Héraðsdómur Reykja- víkur úrskurðaði í gær að litháísk- ur karlmaður sem dvalið hefur hér á landi að undanförnu skyldi fram- seldur til Litháen að kröfu þar- lendra dómsyfirvalda. Þau höfðu lagt fram beiðni um framsal mannsins, sem er átján ára, til dómsmálaráðherra sem varð við beiðninni. Í framsalsbeiðninni kom fram að maðurinn sætti rannsókn lög- reglu í Raseiniai-sýslu í Litháen vegna fimm þjófnaðarbrota sem hann er grunaður um að hafa fram- ið í félagi við fleiri á síðasta ári. Var um að ræða innbrot í íbúðar- hús og atvinnuhúsnæði. Maðurinn kannaðist við brotin og að hafa framið þau þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kynnti honum framsalsbeiðnina. Hann hefur ekki gerst brotlegur hér á landi. Maðurinn vildi hins vegar ekki yfirgefa landið og kærði lög- maður hans úrskurð ráðuneytisins til héraðsdóms, sem staðfesti úrskurðinn. Þá sitja nú í farbanni hér á landi til 1. nóvember þrettán Litháar sem grunaðir eru um stórfelldan þjófnað úr fjölmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Farið var fram á farbann yfir þeim þar til fyrir lægi ákvörðun um það hvort sækja ætti þá til saka. Skal framseldur til Litháen Árekstrar á Hólmsheiði Fjölmargar hugmyndir eru um uppbyggingu Hólmsheiðar. Séu þær birtar á einu korti má sjá stóra athafnabyggð inni í skógi vöxnu landi þétt uppi við flugvöll, fangelsi og losunarsvæði mengunarvarna borgarinnar. Ekki eru allir á eitt sáttir og hafa borist mótmæli vegna allra framkvæmdanna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.