Fréttablaðið - 30.10.2007, Side 26

Fréttablaðið - 30.10.2007, Side 26
fréttablaðið austurland 30. OKTÓBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 Egilsstaðaskóli hélt upp á sex- tíu ára afmæli sitt síðastliðinn laugardag. Um 600 manns mættu á sérstaka afmælissýninu um dag- inn og virtu fyrir sér ýmislegt af því sem tengist skólahaldi fyrr og nú. Þar mátti meðal annars sjá kennslutæki, námsgögn, muni í eigu „gamalla“ nemenda, gömlu skólabjölluna, gamlar og nýjar myndir úr skólalífinu og sitthvað fleira. Um kvöldið var haldin glæsileg árshátíð í Íþróttamið- stöðinni á Egilsstöðum en þangað mættu um 800 manns; nemendur, foreldrar, kennarar og aðrir vel- unnarar. Þótt Egilsstaðaskóli eigi sér langa sögu var núverandi Grunn- skóli Egilsstaða og Eiða stofnaður árið 1999 en hann varð til við sam- einingu Barnaskólans á Eiðum og Egilsstaðaskóla. Skólinn er deildaskiptur og stunda nemendur 1. og 2. bekkjar nám á Eiðum en aðrir nemendur eru á Egilsstöðum. Starfsmenn skólans eru 60 og er skólinn einn stærsti vinnustaðurinn á Fljóts- dalshéraði. Nemendur eru um 360 talsins, 23 þeirra eru búsettir í dreifbýli og er ekið daglega á milli. Í Barnaskólanum á Eiðum stunda 60 nemendur nám en í Egilsstaðaskóla stunda 300 nem- endur 3. til 10. bekkjar nám. Egilsstaðaskóli 60 ára Á sýningunni mátti sjá ýmislegt sem tengist skólahaldi fyrr og nú. Árshátíð skólans var haldin um kvöldið en á hana mættu yfir 800 manns. Ferð á Dalatanga er ekki hefðbund- inn sunnudagsbíltúr. Staðurinn er utan alfaraleiðar; vegurinn hlykkjast um þverhnípi og brattar skriður, en á leiðarenda stendur elsti viti landsins við eitt afskekktasta byggða bólið þar sem heiðurshjónin Heiðar W. Jones og Marsibil Erlendsdóttir hafa staðið vörðinn í fimmtán ár. „Hér er dásamlegt að vera og alltaf nóg að gera,“ segir Heiðar, sem er Reykvíkingur í húð og hár og hafði aldrei kynnst sveita- mennsku fyrr en Amor skaut ástarörvum að þeim Marsibil í Neskaupstað þar sem Heiðar vann í afleysingum. „Ég fór fimmtán ára á sjóinn og lærði síðar til loftskeytamanns og að hluta til sím- virkjun líka. Það hefur komið sér vel því hér höfum við mikið þurft að standa í við- gerðum og ekki hlaupið á verkstæði,“ segir Heiðar, sem lengst af hefur búið við mikið vetrarríki á Dalatanga. „Það er greinilegt að veðurfar er að breytast á Íslandi. Síðastliðin ár hefur ein- angrunin minnkað mikið. Hér áður vorum við oft innilokuð frá því í byrjun nóvember og fram í júní. Vegurinn verður jú enn ófær og liggur um skriður í hrikalegu landslagi en Fúsi á Brekku hefur verið duglegur að halda honum opnum upp á sitt eindæmi síðan hann fékk sér jarðýtu,“ segir Heiðar um hina sextán kílómetra löngu leið frá Dalatanga að Brekku í Mjóafirði. „Fyrir langa vetrarmánuðina þurfti að birgja sig vel upp af vistum, en einstaka sinnum kom hingað póstbátur á leið sinni frá Mjóafirði í Neskaupstað. Þá þurfti að vera ansi gott í sjóinn til að komast að Dal- atanga, því víkin er fyrir opnum sjó og reru menn í gúmmíbát til landsins,“ segir Heiðar og neitar því að menn verði skrítnir af svo mikilli einangrun. „Ja, okkur finnst við að minnsta kosti ekkert undarlegri en annað fólk, og þetta hefur ekki háð okkur,“ segir hann hlæjandi. „Konan mín er fædd norður á Siglunesi, þar sem líka var mikil einangrun, og hefur frá átta ára aldri búið hér utan þess tíma sem hún lærði til búfræðings í Hólaskóla. Hún gæti ekki hugsað sér að flytja í margmennið nema í nauðina ræki og sjálfum finnst mér þetta miklu eðlilegra en að vera úti á sjó því á togurum var ég stundum tvo mánuði úti í einu,“ segir Heiðar og kannast vel við rómantíska tilveru vitavarðarins. „En hér er líka nóg við að vera í bú- skapnum. Við erum með belju til heimil- isins, kindur, hesta, svín, hænur, endur, holdakanínur og sérþjálfaða border collie smalahunda, en konan er á kafi í hunda- ræktun. Þessar skepnur eru nauðsynlegar því nú fækkar svo í sveitum og ekki gott að smala hundlaus í fjalllendinu hér,“ segir Heiðar en þau Marsibil eru með fjóra hunda á bænum. „Börnin okkar tvö eru að nálgast tví- tugt. Þau byrjuðu sex ára gömul í skóla á Brekku í Mjóafirði og höfðu þá vetur- setu hjá móðursystur sinni, Helgu Erlends- dóttur. Sjálfsagt voru þau með heimþrá en það var einfaldlega ekki hægt að fara á milli vegna ófærðar þótt alltaf væri reynt að koma þeim heim í jóla- og páskafrí og þá farið á hestum á móti þeim,“ segir Heiðar og bætir við að verkefni vitavarðarins sé orðið lítið miðað við það sem áður var. „Þetta eru aðallega veðurathuganir og eftirlit og svo tilfallandi bilanir; en hér er líka radíóviti fyrir flugið og símkerfi sem hvort tveggja bilar stundum. Veðurstofan kom hingað með tölvu en oft hamlar sam- bandsleysi því að hana sé hægt að nota. Við erum déskoti góð ef við náum 22,4 kíló- bætum í hraða. Hér var einnig þokulúður sem nú hefur verið lagður af því nú er nán- ast aldrei þoka en það var næstum dag- legt brauð hér fyrir nokkrum árum,“ segir Heiðar, sem gleðst yfir miklum gestagangi á Dalatanga. Þar eru tvö hús og alltaf pláss ef fólk langar að gista. „Það var sagt að það væri reimt í vitanum og jú, jú, maður hefur svo sem orðið var við það, en hér er ekkert illt svo maður skiptir sér ekkert af þeim draugagangi,“ segir hann íbygginn og brosmildur. thordis@frettabladid.is Ekki undarlegri en aðrir „Það er greinilegt að veðurfar er að breytast á Íslandi. Síðastliðin ár hefur einangrun létt mikið en áður vorum við oft innilokuð frá því í byrjun nóvember og fram í júní,“ segir Heiðar um lífið á Dalatanga. MYND/KAREN JENNY HEIÐARSDÓTTIR Heiðar og Marsibil hafa búið á Dalatanga í fimmtán ár. MYND/KAREN JENNY HEIÐARSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.