Fréttablaðið - 30.10.2007, Síða 28

Fréttablaðið - 30.10.2007, Síða 28
fréttablaðið austurland 30. OKTÓBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR6 Lög unga fólksins, kvöldþáttur í beinni, er yfirskrift hinnar árlegu rokkveislu í Egilsbúð í Neskaupstað að þessu sinni. Þar hjálpast söngvarar, hljóðfæraleikar- ar og dansarar að við að skapa dúndur- stemningu að aflokinni dýrindis máltíð. Frumsýning rokkveislunnar var síðasta vetrardag að vanda og Áslaug Lárusdóttir, okkar maður á staðnum, var yfir sig hrifin. „Geggjuð sýning,“ svo notuð séu óbreytt hennar orð. Þeir sem misstu af geta bókað sig um næstu helgi því haldið verður áfram með sýningar fram eftir nóvembermánuði. Nýir menn á vegum Blús-, rokk- og jazz- klúbbsins á Nesi (BRJÁN) sjá um skemmti- atriðin en þó slæðast vanir menn með eins og Þorvaldur Einarsson. Við náðum tali af honum. „Það er mikið lagt í rokkveisluna og fyrir utan tónlistina eru sviðsmynd, ljós og hljóð með allra glæsilegasta móti,“ segir Þorvaldur, sem rekur sögu rokkveislnanna í Egilsbúð allt aftur til ársins 1989. Þá var þemað „Fyrstu ár rokksins“. „Dagskráin er alltaf með svipuðu sniði, eitthvert tónlistar- þema og blandað smá leik og fíflagangi með. BRJÁN tók við stjórninni árið 1996 en fastur kjarni hefur tekið þátt frá upphafi, Ágúst Ármann og Smári Geirsson hafa til dæmis verið drjúgir. Þó hafa alltaf verið breytingar á hópnum og í ár er algerlega nýtt fólk í liðinu, nema hvað ég lem húðirn- ar. Við eigum fjölmargt hæft tónlistarfólk enda erum við með afar góðan tónlistar- skóla hér og hann er grunnurinn að þessu öllu saman. Við höfum þar góða kennara sem við getum alltaf leitað til. Svo erum við farin að teygja okkur yfir á næstu firði líka til að auka enn á fjölbreytnina. Menn skutlast yfir Oddsskarðið eins og ekkert sé. Þrír brottfluttir Norðfirðingar að sunn- an eru líka með í ár, menn sem hafa verið viðriðnir austfirskar hljómsveitir. Þeir hafa flogið austur í haust og tekið stífar æfingahelgar. Það er mikil stemning sem myndast í kringum þetta,“ segir Þorvaldur, sem ávallt leggur sitt af mörkum til sýning- anna. „Ég hef verið í ljósum og sviðsmynd, sungið og gengið í það sem hefur þurft að gera. Þetta er ómissandi partur af rútín- unni á haustin,“ segir hann. En það er ekki bara tónlist sem er í boði í Egilsbúð heldur eru líka krásir á borðum. Guðrún Egilsdóttir starfsmaður kann að lýsa þeim: „Það er lax í forrétt, lambafillet í aðalrétt og súkkulaðikaka í eftirrétt og sýn- ingin byrjar um leið og fyrsti diskur af eftir- réttinum fer inn í sal. Hingað kemur fólk úr allri Fjarðabyggð og við getum tekið á móti 230 manns á hverja sýningu.“ gun@frettabladid.is Kvöldþáttur í beinni Hlynur Benediktsson heillaði viðstadda. Katrín Sigurðardóttir þáttarstjórnandi fór á kostum. Þorvaldur einbeittur á trommunum. Sungið af innlifun. Sturla Már Helgason á hljómborðinu og bak við eru þau Ragna Jara Rúnarsdóttir, Bergey Stefánsdóttir og Benedikt Stefánsson. MYNDIR/ÁSLAUG

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.