Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 2
Notkun Hæstaréttar og óbyggða-
nefndar á Landnámu sem heimild um jarðir við
landnám er furðuleg að mati sagnfræðinga, enda
bókin afar óáreiðanleg heimild. Landnáma hefur
meðal annars verið notuð sem heimild í svokölluðum
þjóðlendumálum.
„Bókstafstrúarmenn telja Biblíuna og Kóraninn
birta rétta kenningu og það þarf alls ekki að ræða.
Sama eðlis er trú lögfræðinga á Landnámu,“ segir
Einar G. Pétursson, rannsóknarprófessor við Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Einar segir talsvert hafa skort á að gamlar
heimildir um landamerki og jarðir hafi verið
prentaðar og þeim komið á aðgengilegt form. Það sé
afar slæmt ef réttaróvissa verði hér á landi vegna
þess að gögnin séu ekki aðgengileg, og dómstólar
kjósi heldur að nota Landnámu.
Hann tekur sem dæmi að á Árnastofnun megi finna
þúsundir skjala sem stutt gætu eða kollvarpað
kröfum ríkis og landeigenda í deilum um þjóðlendur.
Engin tilraun hafi verið gerð til að kynna sér hvað
þar sé að finna, sem sé mjög ámælisvert.
„Það er öruggt að einhver gögn eiga eftir að koma í
ljós sem geta þá orðið grundvöllur nýrra málaferla,
burtséð frá því hvernig þjóðlendumálin enda.“
Óforsvaranlegt er að Hæstiréttur notist við
fornritið Landnámu sem heimild fyrir því hvernig
landinu hafi verið skipt við landnám, segir Einar.
Landnáma sé til í þremur mismunandi útgáfum með
ósamhljóða texta. Þá séu gerðirnar skrifaðar um
1300, en lýsi atburðum sem áttu sér stað við landnám,
fjórum öldum áður.
Að nota slíka bók sem heimild í Hæstarétti sé
svipað, ef ekki verra, og ef rétturinn felldi dóma
byggða á Biblíunni sem sögulegri heimild um
aðstæður í landinu helga í kringum fæðingu Krists.
Enginn sagnfræðingur líti svo á að Landnáma sé
áreiðanleg heimild, þvert á móti sé heimildagildi
hennar afar vafasamt.
Talsvert öðru máli gegnir um Jónsbók, lögbók frá
árinu 1281 sem enn er vitnað til í dómum. Sú bók
hefur varðveist í hundruðum eintaka sem eru
nokkurn veginn samhljóða, segir Einar.
Frægur dómur Hæstaréttar frá árinu 1994,
svokallaður Geitlandsdómur, markar tímamót í
notkun réttarins á Landnámu. Karl Axelsson hæsta-
réttarlögmaður gerir þá breytingu sem varð á
dómum Hæstaréttar að umfjöllunarefni í grein sem
birtist árið 2006. Í grein Karls kemur fram að það
hafi ekki verið fyrr en á tíunda áratug síðustu aldar
að dómurinn hafi farið að leggja svo mikið upp úr
frásögnum í Landnámu.
Á þriðjudaginn í næstu
viku ganga Danir til þingkosninga.
Mikil óvissa ríkir um úrslit kosn-
inganna, en flest bendir til að
splunkunýr stjórnmálaflokkur
Nasers Khader komist í þá aðstöðu
að ráða því hvernig stjórn verður
mynduð.
Anders Fogh Rasmussen for-
sætisráðherra boðaði óvænt til
kosninga með stuttum fyrirvara í
síðasta mánuði, að því er virðist í
trausti þess að hægri stjórn hans
myndi halda velli, eins og skoðana-
kannanir sýndu þá.
Síðan skipuðust veður í lofti og
fátt bendir nú til að stjórnarflokk-
arnir þrír, Íhaldsflokkurinn,
Venstre og Danski þjóðarflokkur-
inn, muni halda meirihluta sínum.
Samkvæmt nýjustu könnunum
fyrir dagblaðið Politiken fá þeir 82
þingmenn samtals, en þurfa 90 til
að hafa meirihluta á þingi.
Flokkur Nasers Khader, Nýtt
bandalag, er miðjuflokkur en hefur
lýst áhuga á að ganga til stjórnar-
samstarfs með Fogh Rasmussen.
Flokkurinn tók stökk í skoðana-
könnunum eftir að boðað var til
kosninga, en hefur verið að dala
smám saman og nú er reyndar svo
komið að óvíst er að stjórninni nægi
að fá þingmenn hans til liðs við sig.
Þá gæti farið svo að Radikale
Venstre komist eina ferðina enn í þá
stöðu að ráða úrslitum um stjórnar-
myndun. Í nýjustu skoðanakönnun
fær Nýtt bandalag 8 þingmenn en
Radikale Venstre 12.
Ólíklegt að stjórnin haldi
Gæsluvarðhald yfir
þremur mönnum sem eru í haldi
vegna Pólstjörnumálsins svokall-
aða var framlengt um sex vikur í
gær. Þeir munu því sitja inni til
20. desember.
Um er að ræða menn sem
handteknir voru þegar lögregla
tók fjörutíu kíló af fíkniefnum í
skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn. Um
var að ræða amfetamín, e-
töfluduft og e-töflur. Einn þessara
þriggja manna var tekinn um
borð í skútunni. Hinir tveir voru
teknir í landi.
Annar þeirra hefur setið í
einangrun en henni hefur nú
verið aflétt.
Stórsmyglarar
áfram í gæslu
Ótækt að grundvalla
dóma á Landnámu
Þúsundir skjala á Árnastofnun gætu komið þjóðlendumálum í uppnám, segir
rannsóknarprófessor. Hann gagnrýnir tilvísanir Hæstaréttar í Landnámu, sem
hann segir svipað og að byggja á Biblíunni sem áreiðanlegri sögulegri heimild.
Annar af tveimur
eftirlifandi farþegum skipsins
Titanic lést 16. október síðastlið-
inn á bresku hjúkrunarheimili.
Barbara West Dainton, sem var
96 ára gömul þegar hún lést, var
eins árs þegar hún ferðaðist með
Titanic árið 1912. Dainton var of
ung til að muna eftir nóttinni
þegar Titanic sökk eftir að hafa
rekist utan í ísjaka. 1.500 létust
þessa nótt, þar á meðal faðir
hennar sem veifaði henni, móður
hennar og systur af þilfarinu
þegar björgunarbátur með þær
innanborðs var látinn síga niður
með skipshliðinni. Lík hans fannst
aldrei.
Eini eftirlifandi farþeginn er
Elizabeth Gladys Dean, sem var
tveggja mánaða gömul í ferðinni.
Einn farþegi
Titanic á lífi
Lesendahópur Nyhedsa-
visen, systurblaðs Fréttablaðsins
í Danmörku, heldur áfram að
vaxa. Sam-
kvæmt nýrri
könnun er
blaðið með 550
þúsund
lesendur, en í
síðustu könnun
mældist það
með 503 þúsund
lesendur.
Einnig sló
blaðið met í
auglýsingasölu
í vikunni, eftir
því sem fram kemur á vefsíðu
danska dagblaðsins Børsen.
Fríblöðin 24timer og metroX-
press eru bæði með meiri lestur
en Nyhedsavisen, 24timer með
606 þúsund lesendur en metroX-
press með 551 þúsund. Í fjórða
sæti er síðan Jyllandsposten með
524 þúsund lesendur og önnur
áskriftarblöð eru þar fyrir neðan.
Í borgunum þremur, Kaup-
mannahöfn, Árósum og Óðins-
véum, er Nyhedsavisen samtals
með mesta lesturinn. Sömuleiðis
lesa konur á aldrinum 25-59 ára
Nyhedsavisen frekar en önnur
blöð.
Í fyrsta sæti í
þéttbýlinu
Snorri, verður þetta alveg
ótrúleg bænastund?
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri segir að Orkuveita
Reykjavíkur
haldi áfram í
útrásarstarfsemi
og að samstarf
við Geysi Green
Energy kunni
áfram að koma til
greina. Þetta
sagði hann á
fundi með
starfsmönnum
Orkuveitunnar í
gær.
Borgarstjóri sagði að stjórn
Orkuveitunnar þyrfti að finna
útrásinni nýjan grundvöll, nú
þegar samruni Reykjavík Energy
Invest og GGE væri genginn til
baka. Umhverfismál og stuðning-
ur við þróunarríki væru helstu
forsendur útrásarinnar. Þekkingu
Íslendinga ætti að nýta sem
víðast.
Orkuveitan
áfram í útrás
Fastlega má gera ráð fyrir því að ákæra verði gefin út
í svokölluðu DC++ máli, samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið
hefur aflað sér. Búast má við því að allt að tíu manns verði ákærðir í
málinu.
Umfangsmikilli rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra lauk nýverið, eins og Fréttablaðið hefur greint frá.
Meira en þrjú ár eru liðin frá því að lögregla lagði hald á tölvur og
gögn hjá tólf manns vegna gruns um brot á höfundarréttarlögum.
Mennirnir voru hluti af stórum hóp Íslendinga sem notaði DC++
skráarskiptaforritið til að skiptast á tónlist, kvikmyndum, forritum
og tölvuleikjum. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur enn
ekki skilað tölvunum sem teknar voru.
Eftir húsleitirnar árið 2004 fækkaði mjög í hópi þeirra sem notuðu
DC++ forritið á Íslandi, og lagðist notkun þess meira og minna af.
Einn vinsælasti skráaskiptamáti Íslendinga er nú torrent-tæknin,
sem notuð er með hjálp Istorrent-vefjarins.
Samtök myndrétthafa á Íslandi og samtök allra rétthafa tónlistar
á Íslandi hafa ásamt fleirum lagt fram kæru á hendur forsvars-
mönnum vefjarins, eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu.
Finnska sendiráðið í
Reykjavík hefur samúðarbók
liggjandi frammi í sendiráðinu
við Túngötu 30 í dag og gefur
Íslendingum og öðrum búsettum
á Íslandi þannig kost á að votta
finnsku þjóðinni samúð sína með
því að rita nafn sitt í bókina.
Finnska sendiráðið er opið milli
eitt og fjögur.
Samúðarbókin er lögð fram í
tilefni þess að ungur maður myrti
skólafélaga sína og rektor Jokela-
menntaskólans í Tuusula í Finn-
landi á miðvikudag en finnska
sendiráðið flaggaði í hálfa stöng
vegna árásarinnar.
Tuusula gefur fólki kost á að
senda samúðarkveðjur til íbúa í
Tuusula á netfangið condolences@
tuusula.fi og munu þær birtast á
vefsíðu sveitarfélagsins.
Tuusula er 35 þúsund manna
sveitarfélag sjö kílómetra frá
Vantaa, alþjóðaflugvellinum í
Finnlandi.
Bókin liggur
frammi í dag