Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 11

Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 11
 „Við verðum að spyrja okkur, hver eru sérkenni Íslands í dag og hver viljum við að þau séu til framtíðar?“ segir Svafa Grönfeldt, formaður nefndar um ímynd Íslands sem forsætisráð- herra skipaði í gær. „Öll samskipti okkar við aðrar þjóðir varpa ákveðinni ímynd,“ segir Svafa. „Helstu áhrifavald- arnir eru þjóðin og svo landið og náttúran. Í hvert sinn sem einhver hittir Íslending, heimsækir landið eða kaupir íslenska tónlist hefur það áhrif á ímyndina.“ Nefndin hefur nú þegar fundað einu sinni og mun hún ráðfæra sig við fólk úr atvinnu- og menningar- lífinu. „Við viljum fá innlegg frá sem breiðustum hópi á ýmsum aldri og frá ýmsum atvinnugreinum og menningarlífi,“ segir Svafa og hvetur fólk til að leggja fram hug- myndir. Svafa segir að mikilvægt sé að greina hverjir styrkleikar Íslands séu. „Við getum varpað upp ein- hverri ímynd, en ef hún á sér ekki stoð í raunveruleikanum mun hún aldrei vera sönn,“ segir Svafa. Nefndin mun skila tillögum til forsætisráðherra í síðasta lagi 1. mars á næsta ári. Sérkennin eru náttúra og þjóð Markaðsráð Þingeyinga fagnar því að koma eigi upp þjónustu við Dimmuborgir í formi upplýsingagjafar, fræðslu og snyrtiaðstöðu. Aðstöðuleysið hafi valdið þar vandræðum og Landgræðslan eigi þakkir skildar fyrir að byggja upp þjónustu í Dimmuborgum, segir í ályktun. Komi hið opinbera ekki með fjármagn til að leysa þessi aðkallandi þjónustumál styður Markaðsráð Þingeyinga að Landgræðslan hafi umsjón með Dimmuborgum, sem kostuð verði af greiðslum ferðamanna sem þangað leita eftir þjónustu og aðgangi að svæðinu. Fagnar nýrri þjónustu við Dimmuborgir Fjórir þingmenn Vinstri grænna leggja til að heimild til að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar verði felld út af fjárlögum. Frumvarp þessa efnis hefur verið lagt fram á Alþingi. Í greinargerð með frumvarpinu er bent á að hitaveitan eigi meðal annars vatnsréttindi í Deildar- tungu. Þar sé einn vatnsmesti hver heims, Deildartunguhver. „Æ fleiri stuðningsmönnum einkavæðingar og sölu almenn- ingsveitna og orkulinda lands- manna hefur snúist hugur og leggjast nú á sveif með Vinstri grænum um þjóðareign á náttúruauðlindum,“ segir í greinargerðinni. Ríkið selji ekki hlut í hitaveitu Hæstiréttur hefur staðfest sex mánaða fangelsis- dóm yfir rúmlega þrítugum manni sem sló annan mann með glerflösku í andlitið í apríl í fyrra. Flaskan brotnaði og maðurinn hlaut tvö djúp skurðsár á andliti. Árásin átti sér stað fyrir utan Hressingarskálann í Austur- stræti. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að árásarmaðurinn ætti sér engar málsbætur og staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann var látinn greiða um 900.000 krónur í skaðabætur, málsvarnarkostnað og áfrýjunarkostnað. Sló mann með flösku í andlit „Ríkið hefur ekki leitað til mín ennþá,“ segir Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri, sem í apríl féllst á að gerast sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í kvikmyndamál- um. Spurður hvað þetta starf muni fela í sér segir Friðrik: „Það geta komið upp mál eins og þegar Miramax kom hingað og vildi byggja kvikmyndaver, þá þurfa þeir að taka á þeim málum og þá hafa þeir aðgang að mér.“ Friðrik telur alls óvíst að hann verði nokkurn tíma kallaður til. Ríkið ekki kallað ennþá

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.