Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 22

Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 22
taekni@frettabladid.is Geimferjan Discovery lenti heilu og höldnu á Cape Canaveral í Flór- ída í Bandaríkjunum í fyrradag. Þar með lauk fimmtán daga við- burðaríkri geimferð til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, ISS, og aftur heim. Ferjan flaug yfir Bandarík- in úr norðvestri og lenti á tæplega fimm kílómetra langri flugbraut- inni rétt eftir hádegi á staðar- tíma. Tilgangurinn með ferðinni, sem hófst 23. október, var meðal ann- ars að setja upp nýja álmu í geim- stöðinni og færa stóra sólarraf- hlöðu stöðvarinnar á annan stað. Tilfærslan á rafhlöðunni tókst ekki betur en svo að hún rifnaði á tveimur stöðum. Til þess að koma í veg fyrir að rafhlaðan skemmd- ist meira þurftu geimfararnir að halda í hættulega geimgöngu og „sauma“ saman rifuna með heima- tilbúnum tækjum. Geimgangan heppnaðist vel. Á blaðamannafundi eftir lend- inguna sagði Michael Griffin, einn stjórnenda hjá geimferðastofnun Bandaríkjanna, að bygging geim- stöðvarinnar væri mun flóknara og erfiðara verkefni en ferðin til tunglsins árið 1969. „Það sem hefur gerst hér er stórmerkilegt, og langt umfram allt sem mann- kynið hefur nokkru sinni gert,“ sagði hann. Fimmtán daga geimferð lokið Ætla að leysa farsíma úr fjötrum framleiðenda Flestir notast við lyklaborð á hverjum degi, en fáir vita hvers vegna íslensku stafirnir eru þar sem þeir eru. Jóhann Gunnarsson skýrsluvélafræðingur situr í lyklaborðsnefnd Skýrslu- tæknifélags Íslands. Jóhann Gunnarsson skýrsluvéla- fræðingur segir að þegar ritvélar hafi fyrst verið fluttar til landsins eftir síðari heimsstyrjöldina hafi staðsetning íslensku táknanna verið eingöngu undir framleiðend- um viðkomandi tegundar komin. Fyrir vikið hafi ekkert samræmi verið á lyklaborðum ritvéla, og því þurfti fólk að læra fingrasetn- inguna upp á nýtt þegar skipt var um vél. „Við fórum að vinna í því í sam- vinnu við IBM árið 1975 að staðla lyklaborðið, og gáfum út fyrstu tillöguna að staðli um það þremur árum síðar,“ segir Jóhann. „Síðan hefur staðsetning íslensku staf- anna lítið breyst.“ En hvað olli því að íslensku stafirnir voru settir þar sem þeir eru? „Það var ekki mikið svigrúm til að bæta við stöfum á lyklaborðum á þessum tíma þannig að það má segja að staðan hafi verið þvinguð. Þessi staðsetning var ákveðin á sínum tíma eftir að rætt hafði verið við ritvélarframleiðendur og -notendur.“ Spurður hverju hann myndi helst vilja breyta á lyklaborðinu ef hann mætti ráða segist hann vilja færa ö-ið neðar. „Það væri æskilegt að ná því niður, það tefur að hafa það þar sem það er. Ég veit samt ekki alveg hvar væri hægt að setja það án þess að breyta öllu öðru.“ Jóhann segir endur- bætur hafa verið gerðar á lyklaborðsstaðlinum síðan 1978, og verið sé að endur- skoða staðalinn núna. Það lúti þó ekki að staðsetn- ingu íslensku stafanna heldur evrutákninu og @- merkinu fyrir Macintosh- notendur svo eitthvað sé nefnt. „Ég reikna ekki með að við munum breyta ö-inu þótt það sé óþægilegt að hafa það þarna uppi.“ Myndi vilja færa ö-ið neðar á lyklaborðinu Frábært tilboð 75 sm breiðir Liebherr kæliskápar AFSLÁTTUR 30%
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.