Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 24

Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 24
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ... ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi. KOMDU VEL ÚT Í Mercedes-Benz B-Class situr þú hátt, hefur góða yfirsýn og hönnunin á innanrými tryggir hámarksþægindi og frábært aðgengi. Takmarkað magn Mercedes-Benz B-Class er til afgreiðslu strax á góðu verði. Innifalin eru vetrardekk og Íslandspakki. Gengi helstu hlutabréfavísitalna tók enn eina dýfuna á fjármála- mörkuðum víða um heim í gær, fjórða daginn í röð. Ástæðan liggur í slæmum uppgjörum fjármála- fyrirtækja vestanhafs og afskrifta úr bókum þeirra auk áframhald- andi neikvæðra frétta vegna lausa- fjárþurrðarinnar sem fylgt hefur undirmálslánakreppunni. Fjár- málaskýrendur óttast nú að krepp- an muni vara lengur en í fyrstu var ætlað auk þess sem vísbendingar eru um að hún sé að smita út frá sér í aðra geira, svo sem í upplýsinga- tækni og dregið mjög úr hagvexti, líkt og fram kom í máli Bens Bern- anke seðlabankastjóra í gær. Allt stefndi í hækkun á banda- rískum hlutabréfamarkaði í gær en von var á uppgjörum nokkurra stærstu verslanakeðja landsins, svo sem Wal-Mart og Macy‘s. Afkoman reyndist hins vegar undir væntingum. Inn í sveifluna í Evrópu spilar sú ákvörðun Englandsbanka og evr- ópska seðlabankans í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum. Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð áður en ákvörðun seðlabankanna lá fyrir en hækkaði eftir það. Íslenskur hlutabréfamarkaður fór ekki varhluta af lækkana- hrinunni en hann sveiflaðist allt frá því að fara niður um rúm 3,4 pró- sent í tvö prósent upp. Svipuðu máli gegnir um helstu vísitölur í Evr- ópu. Um stundir fór gengi fjöl- margra félaga sem skráð eru á markað hér svo langt niður að öll hækkun ársins þurrkaðist út. Greiningardeild Kaupþings bendir á það í Hálffimmfréttum sínum í gær að snörpu hækkunina stuttu eftir upphaf viðskiptadags- ins hér megi helst rekja til innkomu fjölmargra fjárfesta sem töldu sig sjá kauptækifæri á markaði síðustu daga. Fjárfestar sáu tækifæri Óttast er að fjármálakreppan geti smitað út frá sér og dregið úr hagvexti. Hagnaður japanska bílaframleið- andans Toyota nam 450,9 milljörð- um jena, jafnvirði rúmra 233 millj- arða íslenskra króna, á síðasta fjórðungi, sem er annar fjórðung- ur félagsins. Til samanburðar nam hagnaðurinn 405,7 milljörðum jena á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um ellefu prósent á milli ára. Mitsuo Kinoshita, aðstoðarfor- stjóri Toyota, segir í samtali við Associated Press að salan hafi auk- ist í öllum heimsálfum samhliða verðhækkunum á eldsneyti, sem hafi leitt til þess að kaupendur hafi í auknum mæli leitað eftir spar- neytnum ökutækjum. Toyota græðir 233 milljarða

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.