Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 31
Karl Helgi Jónsson fékk vél-
sleðabakteríuna fyrir um fimm
árum og þá varð ekki aftur
snúið.
„Ég hef átt um tvo vélsleða á ári
og hef núna skipt á hverju ári.
Maður vill bara það besta og að
mínu mati eru þetta nokkurs
konar trúarbrögð,“ segir Karl
Helgi kíminn og hlær.
En til að fara á snjósleða þarf
að hafa snjó. „Síðasti vetur var
mjög góður. Það var hægt að
byrja snemma og enda seint
þannig að tímabilið í fyrra var
mjög gott,“ segir Karl Helgi sem
á allar græjur sem til þarf. „Við
höfum farið mikið norður og svo
förum við mikið austur upp í
Laugar og þar í kring og er það
mjög skemmtilegt svæði.“
„Það þarf náttúrulega kerru til
að flytja sleðana. Sleði með öllu
kostar rúmar tvær milljónir og
kerran er kannski hálf milljón. Ef
þú ert að fara í dagstúr þá ertu að
eyða 30-40 lítrum af bensíni sem
kostar líka sitt og svo er olía og
ýmislegt annað sem þarf að huga
að,“ segir Karl Helgi og ljóst er
að vélsleðaiðkun kostar sitt. Bil-
anatíðni virðist hins vegar ekki
vera mikil. „Það hefur aldrei bilað
hjá mér en það gerist helst þegar
maður veltir þeim en annars hef
ég sloppið vel,“ segir Karl Helgi
og bætir við að ef skipta þarf um
eitthvað þá sé þjónustan og verk-
stæðið hjá Arctic Cat góð.
Karl Helgi er félagi í LÍV sem
er Landssamband íslenskra vél-
sleðamanna en bætir við að hann
sé líka í gengi. „Það eru alls konar
gengi í þessu líka. Það kallast nú
Bilaða gengið sem ég er í en það
er umdeilt hversu mikið má segja
um það,“ segir Karl Helgi glett-
inn og heldur áfram: „Þetta er
mikið á heimasíðunum þar sem
gert er grín að mönnum á milli
gengja og þá eru þetta spjallsíður
tiltekinna gengja og tenglar á
önnur gengi á síðunum.“
Þótt það sé mikið fjör að vera á
vélsleða þá þarf líka að gæta
fyllsta öryggis. „Við erum allir
með GPS tæki og keyrum eftir
GPS leiðum. Það er til mikið af
slóðum um allt landið og ef við
förum einhverja nýja slóð þá setj-
um við hana inn og eigum hana í
tækinu,“ segir Karl Helgi. Auk
þessa stjórnast ferðirnar óneitan-
lega af veðurfari. „Ef það er þoka
og leiðinlegt veður þá förum við
ekki en ef það er til dæmis sól og
gott veður á virkum degi þá
tökum við okkur bara frí í vinn-
unni og förum snemma á fjöll,“
segir Karl Helgi sem lætur helst
ekkert standa í vegi fyrir góðri
vélsleðaferð.
Nýir sleðar á hverju ári