Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 38
39,06%
36,39%
62,09%
Fí
to
n/
S
ÍA
Við rúllum upp samkeppninni
Fréttablaðið er með 59% meiri lestur en 24 stundir
M
eð
al
le
st
ur
á
tö
lu
bl
að
. K
ön
nu
n
C
ap
ac
en
t í
á
gú
st
–o
kt
ób
er
2
00
7. Allt sem þú þarft...
...alla daga
Mér finnst eiginlega öll störf sem ég
hef unnið um ævina hafa verið
skemmtileg,“ segir Siv Friðleifsdóttir
alþingiskona. „Þó man ég að á sínum
tíma á unglingsárunum, þegar ég
vann í fiski á Kirkjusandi í nokkur
sumur, var misskemmtilegt að
höndla fiskinn eftir því um hvaða
tegundir var að ræða. Þegar við
stelpurnar verkuðum karfa, ufsa eða
grálúðu var mikið fjör og líf í tusk-
unum. Þá kepptum við milli borða
hlógum og skemmtum okkur. Hins
vegar var þorskurinn óvinsælli.
Okkur fannst heldur seinlegt að tína
ormana úr og þegar þorskur var í
bakkanum í marga daga, þá gat tím-
inn liðið hægt.“ indiana@frettabladid.is
LEIÐINLEGASTA STARFIÐ:
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR „Okkur fannst heldur seinlegt að tína ormana úr og þegar
þorskur var í bakkanum í marga daga, þá gat tíminn liðið hægt.“
H elga Lilja Magnúsdóttir fatahönnuður útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið
2006. Meðfram því að hanna undir sínu eigin
merki, helicopter, vinnur hún sem verslunar-
stjóri í versluninni Trilogiu. „Frá því ég útskrif-
aðist hef ég selt hönnun mína í versluninni
Nakta apanum á Laugavegi. Ég deili vinnuað-
stöðu með öðrum hönnuðum á Seljavegi 2 og
reyni að vera þar eins mikið og færi gefst til að
anna eftirspurn.“
Hönnun Helgu Lilju flokkast sem „street-
wear“ og samanstendur línan af hettupeys-
um, buxum, leggings og kjólum. Fatnaður
hennar er skreyttur munstrum sem hún hand-
þrykkir á hverja flík og er því engin eins.
„Uppistaðan í nýjustu flíkunum sem ég er að
hanna núna er munstur sem ég þróaði út frá
hnýtingaraðferð sem kallast macramé, en
aðferðina rannsakaði ég á síðasta árinu mínu
í Listaháskólanum.“ Til gamans má geta að
macramé er aldagömul hnýtingaraðferð, í
gamla daga notaðist fólk við þessa aðferð
meðal annars til að festa niður tjöldin sín.
Þetta er aðferð sem samanstendur af nokkr-
um mismunandi gerðum af hnútum en sá
sem er mest þekktur er einfaldur og hafa
krakkar nota þá gerð af hnútum til að gera
vinabönd.
„Ég nota þessa aðferð við gerð munstranna
sem ég laga síðan að sniðunum mínum svo að
þau njóti sín. Ég hanna ekki með neinn sér-
stakan aldurs- eða markaðshóp í huga enda
virðist hönnunin mín falla að flestum aldurs-
hópum. Ég hanna og sauma vegna þess að
það er það sem mér finnst skemmtilegast að
gera og hef hugsað mér að halda þessu áfram
þangað til mér finnst það ekki gaman lengur,“
segir Helga Lilja, en fatnaður hennar verður
eflaust á óskalistanum hjá mörgum fyrir jólin.
http://www.helicopter-design.com/
bergthora@frettabladid.is
HELGA LILJA MAGNÚSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR:
FLÝGUR HÁTT MEÐ
MERKIÐ SITT HELICOPTER
ÞORSKURINN
VAR ÓVINSÆLL
KRINGLAN I SMÁRALIND I DEBENHAMS
www.oasis-stores.com