Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 40

Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 40
BLS. 8 | sirkus | 9. NÓVEMBER 2007 F riðrika Hjördís er að baka þegar Sirkus bankar upp á. Það er jóla- ilmur í loftinu og ilmkerti með kanillykt kemur manni í réttu stemn- inguna. Það fer ekki fram hjá neinum að húsmóðirin á Laufásveginum er komin í jólaskap. „Ég held að þetta sé einhver misskilningur, ég hefði átt að fæðast 24. desember,“ segir hún og hlær og heldur áfram að setja deig á bökunarplötu. Í ár ætlar hún að halda alvöru jól en í fyrra eyddu hún og maður hennar, Stefán Hilmarsson aðstoðarforstjóri Baugs, jólunum á vökudeild Barnaspítalans. Hún segist hafa þroskast heilmikið á þessu ári, þetta hafi bæði verið erfiðasta ár sem hún hefur lifað en á sama tíma það skemmtilegasta. „Það líður varla sá dagur að ég hugsi ekki um tímann á spítalanum. Við búum rétt hjá Barna- spítalanum og alltaf þegar ég keyri fram hjá horfi ég upp í gluggann á vökudeildinni og hugsa til þeirra sem þar dvelja. Ég er mjög þakklát fyrir hvað við vorum ofsalega heppin.“ Gunnar Helgi dvaldi á Barnaspítalan- um fyrstu þrjá mánuðina í lífi sínu en eftir að hann fékk að koma heim hefur allt gengið eins og í sögu. Hann dafnar og þroskast eins og ekkert hafi í skor- ist. Það er þungt í honum pundið enda hefur Friðrika lagt mikinn metn- að í að gefa honum gott fæði. „Ég hef búið til allan mat ofan í hann, gætt þess vel að hann fái öll vítamín og haft fæðuna mjög fjölbreytta. Ég er samt ekki að segja að börn sem fái mat úr krukku séu eitthvað verr á sig komin,“ segir hún og bætir því við að upp- áhaldsmaturinn hans sé sætar kart- öflur og gulrætur með smjörva og kanil. Þegar hún er spurð að því hvað hafi verið erfiðast á árinu nefnir hún óvissuna. Þegar hún var lögð inn á spítalann var hún komin 23 vikur á leið og búin að vera með hríðir í nokkra daga. Læknarnir náðu að fresta ferlinu um tvær vikur en Gunnari Helga lá mikið á að koma í heiminn. „Eftir fæðinguna fannst mér alveg hræðilegt að geta ekki fengið barnið í fangið. Það var farið með hann strax í glerkassa og ég átti bara að fara að sofa eftir að ég fæddi hann. Við sáum hann ekki almennilega fyrr en daginn eftir.“ Friðrika dvaldi meira og minna á spítalanum. Hún fylgdist með umönnuninni og fékk að hjálpa til. „Ég sat og horfði á hann, hugsaði fallegar hugsanir og vonaði það besta. Það var í rauninni ekkert annað sem maður gat gert. Svo þurfti maður að halda áfram að lifa venjulegu lífi, borða, brosa og borga reikninga.“ Eftir þessa reynslu finnst henni lífið mun dýrmætara. „Mér finnst líka miklu vænna um fólk og finn meiri þörf hjá mér til að hjálpa öðru fólki. Ef ég væri ekki að vinna við það sem ég er að gera í dag þá væri ég örugglega í Afr- íku að sinna hjálparstörfum. En von- andi á ég það eftir, það er allavega á langtímaplaninu.“ Óléttan er eins og haustflensan Þrátt fyrir að hafa upplifað erfiðan tíma við fæðingu Gunnars Helga eru Friðrika og Stefán ekki hætt að eiga börn. Nú er annað á leiðinni en hún er komin fjóra mánuði á leið og verður þetta fjórða barnið á heimilinu því Stefán á tvö börn fyrir. „Ólétta mín er að verða eins og haustflensan og kemur á hverju ári. Ég er að verða eins og útungunarvél. Ég kenni Svanhildi Hólm og Ingu Lind um þetta, því um leið og ég sest í þeirra stóla þá verð ég ólétt. Ég ætti kannski að krefja þær um að borga meðlag,“ segir hún og hlær en tvö síðustu sumur hefur hún leyst þær stöllur af í þættinum Ísland í dag á Stöð 2. „Ég afþakka hér með starf næsta sumar, held að þetta sé orðið fínt í bili.“ Það er von á barninu um miðjan apríl, en Friðrika segir að hún megi búast við því frá janúar til apríl ef eitthvað er að marka fyrri meðgöngu. Hún er undir mjög miklu eftirliti til að koma í veg fyrir að leik- urinn endurtaki sig. „Ég vona þó að það verði í apríl. Gyða vinkona mín á afmæli 25. apríl og yrði því mjög stolt ef barnið kæmi þá.“ Meðgangan leggst vel í hana. „Þetta var alls ekki planað, en ef ein- hvern langar svona óskaplega að koma til okkar þá er sá hinn sami hjartanlega velkominn. Börnin verða næstum því eins og tvíburar. Ég held að það verði mjög gaman fyrir Gunnar Helga að eiga félaga sem er á svipuðum aldri. Það er ár á milli eldri systkina minna og þau hafa alltaf verið náin.“ Þegar hún er spurð að því hvort hún sé ekkert hrædd um að leikurinn endurtaki sig segist hún hugsa lítið um það. „Það þýðir ekkert að velta sér upp úr því. Ég verð bara að vona það besta því það er of seint að snúa við. Ef barnið okkar fæðist fyrir tímann verðum við bara að taka því þegar þar að kemur. Þá vitum við allavega hvernig við eigum að bregð- ast við.“ Hún segir að þessi meðganga sé allt öðruvísi en sú fyrri. „Þegar ég gekk með Gunnar Helga fannst mér allt sætt ógeðslegt og gat ekki horft á súkkulaði en núna er það þveröfugt. Ég get ekki beðið eftir að byrja að baka fyrir jólin og gera konfekt. Ég hugsa stanslaust um mat. Fyrri með- gangan var líka erfiðari því þá var ég veik fyrstu þrjá mánuðina en núna uppgötvaði ég ekki að ég væri ólétt fyrr en á níundu viku.“ Friðrika segist vera mjög spennt yfir að vita kynið en er á báðum áttum hvort hún eigi að kíkja í pakkann. „Það er líka eitt- hvað rómantískt við það að vita ekki kynið og láta það koma sér á óvart.“ Hamingjusöm í draumahúsinu Í febrúar 2006 keyptu Friðrika og Stefán þrílyft einbýlishús við Laufás- veg en þau fengu það ekki afhent fyrr en í september sama ár. Síðan þá hafa framkvæmdir staðið yfir, þau létu hækka þakið og endurnýjuðu húsið að innan og utan og byggðu við það að hluta. „Húsið var mun verr farið en okkur grunaði og það þurfti að gera mikið fyrir það. Það fór miklu meiri vinna í þetta en við ætluðum í byrjun. Það var svolítið erfitt að stjórna þessu því við vorum svo mikið uppi á spítala og hugurinn var fyrst og fremst þar. Svo er maður ekki alltaf í sínu besta jafnvægi þegar barnið manns er á spítala og þetta var því svolítið stórt verkefni ofan á allt hitt. En við erum ofsalega ánægð með útkomuna,“ segir hún. Húsið hefur glæsilegt yfirbragð, með gegn- heilu parketi, granítflísum á gólfi og vönduðum innréttingum. Friðrika segir að þau hafi vitað nokkurn veg- inn hvernig þau vildu hafa heimili sitt og segir að þau Stefán hafi svip- aðan smekk. „Okkur lenti aldrei saman yfir því hvernig við vildum hafa hlutina, nema kannski í ein- hverjum smáhlutum. Það var mikill kostur. Svo erum við að velja hús- gögn í rólegheitunum, erum til dæmis ekki komin með sófa því við erum ekki búin að sjá draumasófann og viljum ekki kaupa neinn til bráða- birgða. Þá viljum við frekar hafa engan sófa í stofunni.“ Þegar þau voru að byrja að búa saman fyrir tæpum þremur árum var Stefán nýbúinn að fjárfesta í risastóru mál- verki eftir íslenskan listamann. „Skrímslið endaði á ganginum þang- að til það fór í sölu. Ég vann þetta mál og síðan höfum við verið sam- mála.“ Bílprófsaldur á milli þeirra Þegar Stefán og Friðrika byrjuðu að rugla saman reytum voru miklar gagnrýnisraddir á lofti varðandi ald- ursmuninn en hann er 17 árum eldri en hún. „Ég geri mér ekki grein fyrir því hvað ég er gömul enda finnst mér við alltaf jafn gömul. Ég á vini á öllum FRIÐRIKA HJÖRDÍS GEIRSDÓTTIR, FJÖLMIÐLAKONA OG MATAR- GÚRÚ ÍSLANDS, Á VON Á ÖÐRU BARNI SÍNU. HÚN SEGIR AÐ ÓLÉTTAN SÉ ORÐIN EINS OG HAUSTFLENSAN EN FYRIR Á HÚN GUNNAR HELGA SEM ER AÐ VERÐA ÁRS GAMALL. HONUM VAR VART HUGAÐ LÍF ÞEGAR HANN FÆDDIST Á 26. VIKU. Uppáhaldsmaturinn: Maturinn sem ég fæ bara einu sinni á ári og fæ aldrei nóg af: jólamatur. Uppáhaldsveitingastaðurinn: Austur-Indíafélagið hér á Íslandi en annars hef ég hvergi smakkað eins góðan mat og á Balí í Indónesíu. Uppáhaldsverslunin: Whole Food Store í New York er himnaríki á jörð. Líkamsræktin: Sonur minn er rúmlega 11 kíló, need I say more.Svo er ég reyndar líka með yndislegan einkaþjálfara í World Class sem heitir Billi og er einstaklega þolinmóður, því ég er ekki nógu dugleg að mæta. Geisladiskurinn: Allt með Astrud Gilberto, ítalska söngkonan Mina og margir fleiri. Bestu íslensku tónlistar- mennirnir eru tvímælalaust Sigur Rós. Bíllinn minn er: Algjört æði, BMW-X5 jepplingur. DRAUMAELDHÚSIÐ Innréttingin og tækin eru frá Miele og granítborðplatan sómir sér vel við hana og stálflísarnar á veggjunum. MYNDIR/VALLI DROTTNINGIN Á LAUFÁSVEGINUM HEFUR ALLTAF HAFT UNUN AF ELDAMENNSKU Þegar vinkonur hennar léku sér með Barbie-dúkkur bakaði hún upp úr uppskriftabók Mikka mús. PLOTTAR YFIR POTTUNUM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.