Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 52
BLS. 12 | sirkus | 9. NÓVEMBER 2007
Hverjir voru hvar
Ef einhver var bremslulaus um helgina þá
var það sirkusstjórinn. Hann var hárréttur
maður á hárréttum tíma. B5 stimplaði
sig inn sem einn hressasti skemmtistað-
urinn en þangað flykktust
helstu stælgæjar og
glansgellur borgarinnar.
Karen Millen-skvísurnar
skörtuðu sínu fegursta, en
þar voru líka Anna María
Ragnarsdóttir snyrtifræð-
ingur, Sif Björnsdóttir
ofurskutla, Ingibjörg
Stefánsdóttir leikkona og jógakennari,
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður á
Lex, í fjólublárri glansskyrtu, Birta Björns-
dóttir fatahönnuður og maður hennar,
Jón Páll húðflúrmeistari og starfsmaður
Latabæjar. Lilja Björk
Ketilsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Remax,
mætti með nýja
klippingu ásamt
vinkonu sinni, Kötlu
Jónasdóttur.
Árni Sigfússon arkítekt
og bróðir Péturs
Jóhanns sýndi ógleymanlega takta á
dansgólfinu ásamt Jóhanni lækni í
Svíþjóð. Á dansgólfinu var líka Dýrleif
Örlygsdóttir stílisti og jakkafataklæddu
vinkonurnar hennar. Þegar líða
tók á nóttina tók
Sirkusstjórinn Kára
Stefánsson til fyrirmynd-
ar og skellti sér á bak
Moooi-lampans sem
lítur út eins og
verðlauna-
hross.
ALLTAF SMART Kærustuparið Guðjón
Rúnarsson og Kristín Ásta Kristins-
dóttir eru alltaf vel til fara. Hér eru
þau ásamt Remax-drottningunni
Nönnu Guðbergsdóttur og Ólíver
Pálmasyni athafnamanni.
MYNDIR/DANÍEL RÚNARSSON
DÖKKHÆRÐAR OG DULARFULLAR Vero Moda-systurnar Helga
og Marta Árnadætur eru hér með Grétu vinkonu sinni. Þess
má geta að Helga er tengdadóttir Garðars Kjartanssonar
eiganda Apóteksins.
Í STUÐI Hanna, Sibba og
Elísabet skemmtu sér
konunglega í boðinu.
HUGMYNDARÍKAR Linda og
Valgerður hönnuðu arininn sem
sést hérna í bakgrunninn en
hann setur svip sinn á staðinn.
OPNUNARPARTÍIÐ
Á APÓTEKINU
Garðar og
Gunnar
eigendur
Apóteksins.
Nýi skemmtistaðurinn Apótekið var opnaður um
síðustu helgi og af því tilefni var boðið í veglegt
opnunarteiti. Eigendur staðarins, Gunnar Trausta-
son og Garðar Kjartansson, voru flottir á því en í
teitinu var opinn bar og gátu gestirnir drukkið eins
og þá lysti. Allt helsta djammlið landsins var mætt
til að lyfta sér upp og höfðu menn og konur orð á
því að staðurinn væri sérlega glæsilegur. Þess má
geta að staðurinn opnar formlega í kvöld.
- - -