Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 80
Verð að halda haus og standa mig áfram vel
Nýliðar Stjörnunnar
unnu fyrsta útisigur félagsins í
úrvalsdeild karla þegar þeir lögðu
Njarðvíkinga, 78-81, í Ljónagryfj-
unni í gærkvöldi. Þetta var jafn-
framt þriðja tap Njarðvíkurliðsins
í röð en liðið lék Kanalaust í gær
auk þess sem Brenton Birming-
ham var veikur og æfði ekkert í
vikunni fyrir leikinn.
Stjörnumenn voru með frum-
kvæðið allan leikinn, voru 18-21
yfir eftir fyrsta leikhluta og 37-40
yfir í hálfleik. Garðbæingar settu
síðan niður fimm fyrstu skot sín í
seinni hálfleik og komust 42-51
yfir og Njarðvíkingar voru að
vinna upp þann mun það sem eftir
var leiksins. Hörður Axel Vil-
hjálmsson fékk tækifæri til að
jafna leikinn í blálokin en þriggja
stiga skot hans geigaði.
„Ég er rosalega ánægður með
þennan sigur og þetta er í fyrsta
sinn á þremur árum mínum á
Íslandi sem ég vinn í Njarðvík. Við
erum með nýtt lið í þessari deild
og leggjum áherslu á að berjast
fyrir hverjum einasta bolta allar
40 mínúturnar. Það hefur þegar
skilað okkur þremur sigrum. Við
settum stefnuna á að komast í
úrslitakeppnina og það hefur ekk-
ert breyst,“ sagði Dimitar
Karadzovski eftir leikinn en
Njarðvíkingar réðu ekkert við
Makedóníumanninn.
Teitur Örlygsson, þjálfari Njarð-
víkur, er ekkert að örvænta. „Við
megum ekkert láta þetta brjóta
okkur niður. Það er bara nóvem-
ber og ég vil frekar horfa fram á
veginn. Við eigum bara eftir að
verða betri,“ sagði Teitur.
Nýliðar Stjörnunnar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Njarðvík í Ljónagryfjunni,
78-81. Þetta var fyrsti útisigur Stjörnunnar í úrvalsdeildinni. Allur botn virðist
dottinn úr leik Njarðvíkur, sem hefur tapað þrem leikjum í röð.
Stjarnan tyllti sér á
topp N1 deildar kvenna þegar liðið
lagði Val, 18-17, á heimavelli
sínum í Mýrinni í gærkvöldi.
Það var greinilegt frá fyrstu
mínútu að mikið var í húfi. Liðin
virkuðu stressuð og þá sérstak-
lega gestirnir þó þeir hafi skorað
fyrsta mark leiksins sem kom á
fimmtu mínútu. Níu mínútur voru
liðnar af leiknum þegar Stjarnan
loks fann netið í marki Vals en í
kjölfarið náðu heimamenn yfir-
höndinni í leiknum.
Gestirnir virkuðu hræddir við
Florentinu Grecu sem varði frá-
bærlega í leiknum fyrir aftan
mjög sterka vörn. Stjarnan náði
góðu forskoti fyrir hlé, 10-6, og
bætti um betur í upphafi seinni
hálfleiks og náði sjö marka for-
skoti, 14-7.
Í stað þess að leggja árar í bát
náðu Valsstelpur að minnka mun-
inn hratt og örugglega og þegar
þrjár mínútur voru eftir var stað-
an orðin 18-17. Valur fékk góð
tækifæri til að jafna leikinn en
Grecu sá til þess að Valur skoraði
ekki fleiri mörk.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar, var ánægður með að
lið sitt væri komið á toppinn. „Það
hefur verið gríðarlegt álag á mínu
liði og við höfum varla náð tveim-
ur æfingum í röð vegna leikja-
álags. Þær sýndu mikinn karakter
í þessum leik gegn sterku liði
Vals.“
Grecu of stór biti fyrir Val
NI-deild karla og kvenna: Iceland Express-deild karla:
UEFA-bikarinn:
HK náði Stjörnunni og
Haukum að stigum á toppi N1
deildar karla í gærkvöldi þegar
liðið lagði Stjörnuna, 29-21, í Mýr-
inni í Garðabæ. Frábær seinni
hálfleikur lagði grunninn að sigr-
inum en Stjarnan náði sér engan
vegin á strik.
Mikið jafnræði var með liðun-
um í fyrri hálfleik en HK hóf
seinni hálfleikinn með látum og
nýtti sér andleysi heimamanna
til hins ýtrasta. HK skoraði fjögur
fyrstu mörk seinni hálfleiksins
og lagði þar grunninn að sigrin-
um.
Frábær varnarleikur HK lagði
grunninn að sigrinum enda sakn-
aði Stjarnan Patreks Jóhannes-
sonar og Heimis Arnar Heimis-
sonar mikið. Lykilmenn vantaði
einnig í liði HK en varnartröllið
Sigurgeir Árni Ægisson er
meiddur og Agustas Strazdas,
besti leikmaður umferða 1-7, tók
út leikbann.
Gunnar Magnússon, aðstoðar-
þjálfari HK, var að vonum
ánægður í leikslok. „Við vorum
svekktir að tapa á sunnudaginn
og ákváðum að nýta tímann á
milli leikja vel og koma betur
undirbúnir til leiks.
Við vorum tilbúnir í leikinn og
hungraðir og skilaði hver einasti
leikmaður sínu. Það var frábært
að sjá liðið. Þetta var snúnings-
punkturinn fyrir okkur. Þetta var
spurning um hvort við ætluðum
að berjast um fjórða sætið eða
vera á toppnum. Við sýndum það
í dag að við erum hungraðir og
við viljum meira,“ sagði Gunnar.
HK á toppinn með sigri á Stjörnunni