Fréttablaðið - 09.11.2007, Qupperneq 82
Ragna Ingólfsdóttir
verður í sviðjósinu hér á landi
um helgina þegar hún tekur þátt í
Alþjóðlega badmintonmótinu Ice-
land Express International sem
hófst í TBR-húsunum í gær.
Íslandsmeistarinn nær vonandi
að fylgja eftir frábærum sigri á
Opna ungverska badmintonmót-
inu um síðustu helgi og komast
alla leið í úrslit en hún vann þetta
mót í fyrra, fyrst íslenskra bad-
mintonspilara.
Ragna hækkaði sig um tíu sæti,
upp í það 43., á nýjum heimslista
Alþjóða-badmintonsambandsins
og góður árangur um helgina gæti hjálpað henni enn frekar að
komast inn á Ólympíuleikana.
Mótið er hluti af Evrópumótaröð-
inni. Þar er keppt um 5.000
dollara verðlaunafé og það gefur
stig á heimslista Alþjóða-badmin-
tonsambandsins.
Ragna er númer þrjú í röðinni í
einliðaleik kvenna. Það þýðir að
hún er fyrir fram talin þriðja
sterkasta einliðaleikskonan í mót-
inu og er eini íslenski badminton-
spilarinn sem fær röðun í mótið.
Miðað við stöðu leikmanna á
heimslista eru því líkurnar á því
að íslensku leikmennirnir verði í
úrslitum ekki taldar miklar.
Ragna von Íslands á mótinu
HSÍ stóð í fyrsta skipti
fyrir vali á úrvalsliði karla í efstu
deild í handbolta í gær, þegar
úrvalslið umferða 1-7 í N1-deild
karla var valið. Þar fyrir utan voru
veitt verðlaun fyrir besta leik-
manninn, besta þjálfarann, besta
dómaraparið og bestu umgjörðina
hjá félagi í N1-deildinni. Valnefnd
á vegum Handknattleikssambands
Íslands sá um valið.
Ungverjinn Ferenc Buday, þjálf-
ari Fram, var valinn besti þjálfari
umferða 1-7 í N1-deildinni.
„Ég er mjög ánægður með þessi
verðlaun og þetta sýnir að HSÍ
telur að ég sé að vinna gott starf
fyrir Fram og það gleður mig.
Deildin er góð í ár og ég held að
það séu um 5-6 lið sem stefna að
sigri og geta unnið deildina. Við
hjá Fram höfum þau markmið að
sigra í deildinni og ég ætla að gera
mitt besta til þess að það gangi
eftir,“ sagði Buday að verðlauna-
afhendingunni lokinni.
HK-ingurinn Augustas Strazdas
var valinn besti leikmaðurinn en
hann hefur leikið einkar vel fyrir
HK, rétt eins og venjulega.
„Þetta kemur mér mjög á óvart,
en ég er mjög ánægður með þessa
viðurkenningu. Ég held að deildin
hér sé alltaf að verða sterkari og
sterkari og það virðist sem allir
geti unnið alla. En ég er ánægður
með HK-liðið í ár og við sjáum til
hvað kemur út úr þessu hjá okkur,
við reynum okkar besta bæði hér
á Íslandi og í Evrópukeppninni,“
sagði Strazdas.
Besta dómaraparið var Valgeir
Ómarsson og Þorlákur Kjartans-
son.
HSÍ tilkynnti val á úrvalsliði umferða 1-7 í N1-deild karla í gær. HK-ingurinn
Augustas Strazdas var valinn besti leikmaður fyrsta fjórðungsins. Ungverjinn
Ferenc Buday var besti þjálfarinn og Stjarnan fékk verðlaun fyrir umgjörð.