Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 1

Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 FIMMTUDAGUR 6. desember 2007 — 332. tölublað — 7. árgangur HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Nadia Banine er flestum sjónvarpsáhorfendum kunn og dylst engum að þar er smekkmann- eskja á ferð. Yfirleitt hafa föt ekke t étilfinni þar sem pabbi minn er frá Marokkó “ bæti hú Nadia segir marg tíi Klæðskerasaumaður kaftan Vinkona Nadiu gaf henni þennan límónugræna silki-kaftan í Marrakesh. HOLLT OG GOTTÁvaxtabíllinn ekur heim að dyrum með alls konar ávexti og hollusturétti. HEILSA 4 VANDAÐ Á BÖRNINÍ vefnaðarvöruversluninni Seymu má nú fá falleg og vönduð barnaföt sem eru flutt inn frá Ítalíu. TÍSKA 2 SMÁRALIND OG NÁGRENNI Piparkökugerð í Smáralind Sérblað um verslun, þjónustu og veitingar FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG smáralind og nágrenni FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 Konur ruddu brautina Sjötíu og fimm ár liðin frá setningu Barnaverndarlaga. TÍMAMÓT 40 Náum lendingu Guðmundur Ingi Markússon trúarbragðafræðingur bendir á leið sem tryggir skólafræðslu um trúarbrögð og sem allir foreldrar gætu sætt sig við. UMRÆÐAN 38 Friðrik fer- tugur í dag Fékk aukahlut- verk í kvikmynd í afmælisgjöf. FÓLK 66 NADIA BANINE Eignaðist sérstaka flík í Marrakesh í Marokkó tíska heilsa heimili Í MIÐJU BLAÐSINS LÖGREGLUMÁL Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu hefur á árinu haft afskipti af sex konum sem vitað er að komu hingað til lands til að stunda vændi. Rökstuddur grunur leikur á að þær hafi komið hingað á vegum dólga í heimalandinu. Þá hefur lögreglan á Suðurnesj- um haft afskipti af tíu til fimmtán konum við komu þeirra til landsins af sömu ástæðum. Ekkert þessara mála hefur þó leitt til lögreglu- rannsóknar þar sem konurnar hafa allar neitað að tjá sig nánar um hagi sína. Eftir breytingar á almennum hegningarlögum fyrr á árinu má nú stunda vændi á Íslandi. Hafi þriðji maður hins vegar atvinnu eða viðurværi sitt af vændi ann- arra skal hann sæta fangelsi allt að fjórum árum. Konurnar sem kynferðisbrota- deild hafði afskipti af komu frá Brasilíu, Portúgal og Rússlandi. „Konurnar sögðust vera á eigin vegum en sterkur grunur leikur á að þær hafi verið sendar af þriðja manni eða fyrirtæki,“ segir Björg- vin Björgvinsson, yfirmaður kyn- ferðisbrotadeildar. „Þeim hefur verið boðin aðstoð en þær þiggja hana ekki. Þær koma sér fyrir hér en staldra stutt við.“ Jón Pétur Jónsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn segist hafa orðið var við að konur komi hingað til lands í því skyni að stunda vændi. „Stundum eru konur tilbúnar til að segja okkur að þær séu að koma hingað í þeim tilgangi að selja sig. En þær eru ekki tilbúnar að tjá sig nánar um það við löggæsluna,“ segir Jón Pétur. „Þetta eru tiltölu- lega erfið mál og erfitt að finna nægilegar sannanir til að geta farið út í málssókn.“ - jss Dólgar flytja vændis- konur til landsins Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurnesjum hefur haft afskipti af allmörgum erlendum konum sem komið hafa hingað til lands til að selja sig. Þær neita að tjá sig nánar um hagi sína. Síðasti skiladagur fyrir jólakort utan Evrópu er á morgun Mamma segir, mamma segir www.postur.is SIMPLY CLEVER ER MEÐ SEX LOFTPÚÐUM www.kornax.is - veldu ferskasta hveitiÐ! RÓLEG NORÐLÆG ÁTT um allt land. Hiti um eða undir frostmarki, með slyddu eða snjóéljum við suð- vestur- og norðausturströndina. VEÐUR 4  VIÐSKIPTI „Erlent eignarhald fyrirtækja í Kauphöllinni var um 41 prósent í september,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinar. Þetta hlutfall var 27 prósent á sama tíma fyrir ári. Þórður telur að hluti af þessu sé fólginn í því að Íslendingar geymi hlutabréfaeign í erlendum félögum. - ikh/ sjá síðu 32 Bréf í erlendum félögum: Vaxandi erlent eignarhald ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON ÞÝSKALAND Þjóðverji á sextugs- aldri hefur verið sektaður um sem nemur fjörutíu þúsund krónum fyrir að aka of hratt í hjólastól. Lögreglan í bænum Geseke mældi hann á rúmlega 64 kílómetra hraða á klukkustund, um það bil tvöföldum hámarkshraða, á verslunargötu í bænum. Samkvæmt fréttavef Ananova viðurkenndi maðurinn að hafa breytt rafmótor hjólastólsins þannig að hann kæmist hraðar. Hann spænir ekki upp göturnar í Geseke í bráð því hjólastóllinn var gerður upptækur. - sþs Geystist um götur Geseke: Stöðvuðu öku- fant í hjólastól Keppir í Hollandi Ragnheiður Ragnars- dóttir, sundkona úr KR, keppir á sterku móti í Eindhoven. ÍÞRÓTTIR 58 VEÐRIÐ Í DAG FJÖLSKYLDUM HJÁLPAÐ Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsótti Fjölskylduhjálp Íslands í Eskihlíð í gær. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, var með í för og nutu þau leiðsagnar Ásgerðar Jónu Flosadóttur, formanns Fjölskylduhjálparinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR FÉLAGSMÁL „Ég legg áherslu á að þetta er bara skref, við erum alls ekki hætt,“ segir Geir H. Haarde forsætisráðherra um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu aldr- aðra og öryrkja, sem kynntar voru í gær. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra tekur undir þetta. „Stóra málið er eftir,“ segir hún og vísar til gagngerrar endur- skoðunar á almannatrygginga- kerfinu. Samkvæmt yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar miðast aðgerðirnar meðal annars við að skerðing tryggingabóta vegna tekna maka verði afnumin, frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyris- þega hækki í 100.000 krónur og að dregið verði úr of- og vangreiðsl- um tryggingabóta. Almennur fögnuður ríkir um aðgerðirnar. Formaður Félags eldri borgara og formaður Öryrkjabandalagsins segja þó að aðgerðirnar hefðu mátt koma fyrr. Formaður Vinstri grænna segir þær hafa mátt vera rausn- arlegri og formaður Framsóknar- flokksins óttast að verðbólgu- draugurinn kunni að láta á sér kræla. - kóþ, - bj / sjá síðu 6 Forsætisráðherra um fimm milljarða króna aðgerðir í þágu öryrkja og aldraða: Við erum alls ekki hætt LÖRGEGLUMÁL Ráðist var á leigubílstjóra í Hátúni í Reykja- vík um klukkan hálf tíu í gær- kvöldi. Bílstjórinn slapp með minni háttar áverka. Árásarmað- urinn flúði af vettvangi, og leituðu lögreglumenn hans þegar Fréttablaðið fór í prentun. Að sögn lögreglunnar var um tilraun til ráns að ræða. Ekki fengust frekari upplýsingar um árásina að svo stöddu, en málið er í rannsókn hjá lögreglunni. - sþs Flúði eftir tilraun til ráns: Réðst á leigubíl- stjóra í Hátúni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.