Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.12.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 06.12.2007, Qupperneq 4
4 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 BANDARÍKIN, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti segir að írönsk stjórnvöld standi nú frammi fyrir tveimur kostum: „Íranar geta gert hreint fyrir sínum dyrum gagn- vart alþjóðasamfélaginu um það hve viðamikla kjarnorkustarfsemi þeir stunda,“ sagði Bush í gær, „eða þeir geta haldið áfram að ein- angrast.“ Þetta sagði Bush daginn eftir að greint var frá nýrri skýrslu frá leyniþjónustu Bandaríkjanna þar sem sagði að engar vísbendingar væru um að Íranar hefðu nein áform um að koma sér upp kjarn- orkuvopnum. Bush ætlar að halda áfram að fá Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til þess að beita Írana þrýstingi í þeim tilgangi að fá þá til að hætta auðgun úrans, sem Íranar segja eingöngu gert í friðsamlegum til- gangi en sem gæti þó nýst þeim til þess að búa til kjarnorkuvopn síðar meir. „Það er greinilegt af nýjasta leyniþjónustumatinu að íranska stjórnin þarf að gefa frekari skýr- ingar á kjarnorkuáformum sínum og fyrri verkum,“ sagði hann. Mahmoud Ahmadinejad Írans- forseti hrósaði hins vegar sigri eftir að nýja leyniþjónustumatið var birt opinberlega: „Þetta er yfirlýsing um sigur írönsku þjóð- arinnar á stórveldum heimsins í kjarnorkumálinu,“ sagði hann þús- undum stuðningsmanna sinna í Ilam-héraði þar sem hann var á ferð í gær. „Það er þrautseigju ykkar að þakka að þeir sem vilja okkur illt hafa nú verið skotnir í kaf.“ Mohamed ElBaradei, fram- kvæmdastjóri Alþjóðakjarnorku- eftirlitsins, segir hins vegar að með skýrslu bandarísku leyni- þjónustunnar opnist nýtt tækifæri til þess að semja með friðsamleg- um hætti. Hann segir að Íranar ættu að nota þetta tækifæri til að sanna að kjarnorkuáform þeirra séu eingöngu friðsamleg. Í skýrslu bandarísku leyniþjón- ustunnar er fullyrt að Íranar hafi árið 2003 hætt við öll áform um að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Rússar sögðust hins vegar í gær ekki sannfærðir um að Íranar hafi nokkurn tímann haft uppi áform um að koma sér upp kjarnorku- vopnum. „Þau gögn sem við höfum séð gera okkur ekki kleift að segja með neinni vissu að Íran hafi nokkru sinni haft kjarnorkuvopna- áætlun,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þegar hann var spurður um nýja bandaríska leyniþjónustumatið. gudsteinn@frettabladid.is Bush hótar Írönum enn refsiaðgerðum Mahmoud Ahmadinejad hrósar sigri en George W. Bush skorar á Írana að gera hreint fyrir sínum dyrum. Nýtt mat bandarísku leyniþjónustunnar á stöðu kjarnorkumála í Íran er staðfesting á mati Alþjóðakjarnorkueftirlitsins. AHMADINEJAD FAGNAR Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti átti góða stund með stuðningsmönnum sínum þegar hann var á ferð í vestanverðu Íran í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TAÍLAND, AP Taílendingar fögnuðu í gær áttræðisafmæli konungs síns, Bhumibols Adulyadej, með hátíðarhöldum og bænastundum auk þess sem landsmenn klædd- ust gulu, lit sem táknar hollustu við þjóðhöfðingjann. Bhumibol hefur verið konungur í 61 ár, lengur en nokkur annar núlifandi þjóðhöfðingi. Í stjórnar- tíð sinni hefur hann þó ekki nema sex sinnum komið fram opinber- lega á svölum konungshallarinnar í Bangkok. Bhumibol hefur haft mikil áhrif á þjóðlífið í Taílandi á valdatíð sinni og þykir eiga stóran þátt í þeim stöðugleika sem þar ríkir. - gb Taílandskonungur áttræður: Taílendingar klæddust gulu KONUNGURINN Í HÁSÆTI SÍNU Bhumi- bol Adulyadej fagnaði með þjóð sinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NEYTENDUR Bónus hefur innkallað tegund af sprittkertum, vegna kvörtunar viðskiptavinar um að kerti hafi sprungið og orðið alelda. Samkvæmt fréttatil- kynningu hvetja forsvars- menn fyrirtækis- ins fólk til að taka enga áhættu heldur skila kertunum í næstu verslun fyrirtækisins. Kertin eru seld í pokum með fimmtíu stykkjum. Þau eru frá einum stærsta kertaframleiðanda í Evrópu, og er málið í skoðun þar. Kertin hafa verið tekin úr hillum í Bónus þangað til niðurstaða fæst í málið hjá framleiðandanum. - sþs Sprungu og urðu alelda: Kerti tekin úr hillum í Bónus SPRITTKERTI Strika- merkið á pokunum sem innkallaðir hafa verið er 20037932. Krefjast skaðabóta Tvær sænskar konur halda því fram að þekktir stjórnmálamenn hafi verið viðskiptavinir þeirra þegar þær voru vændiskonur í Svíþjóð sem fjórtán ára börn. Konurnar krefjast þess að sænska ríkið greiði þeim skaðabætur fyrir að hafa þaggað málið niður í áranna rás. Þetta kom fram í sænska blaðinu Dagens Nyheter í gær. Stjórn- málamennirnir hafna því að hafa verið viðskiptavinir kvennanna. SVÍÞJÓÐ                   ! # $ %   %   &       '(    )&  * # $  +,- ./,- +,- 01 2,- 01 2,- .3,- .4,- ..,- ./,- ./,- 01 .5,- ..,- 01 .+,-6 01 .4,- 77,-6 01                                   !    "#        $     #%                 && $ '()*+,,+-.* ,  /01 2 0/03      89"! : "   89"    ( ; ( 4! '$5#  #                  6 6 ALÞINGI Þingmenn stjórnarand- stöðunnar deildu harkalega á stjórnvöld fyrir að veita ekki upp- lýsingar og gögn um sölu eigna á fyrrverandi varnarsvæði á Kefla- víkurflugvelli. Geir H. Haarde forsætisráðherra flytur Alþingi skýrslu um málið í dag, og kvörtuðu þingmenn yfir því að fá ekki umbeðin gögn til að geta búið sig undir umræður. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segir að grunur leiki á því að eignir hafi verið seldir á óeðli- lega lágu verði, og sömu menn sitji beggja vegna borðsins við söluna. Atli sagði fulla ástæðu til að ætla að maðkur sé í mysunni þegar umbeðin gögn berist ekki þing- mönnum, sem þó hafi stjórnar- skrárbundnu hlutverki að gegna við að hafa eftirlit með fram- kvæmdavaldinu. Grétar Mar Jónsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, sagði það ekki eðlilegt að formaður skipulagsnefndar væri einnig hluthafi í einu félaganna sem braski með eignirnar. Árni M. Mathiesen fjármála- ráðherra sagði það ekki rétt að gögnum sé haldið frá þingmönn- um. Umbeðin gögn séu hjá Ríkis- endurskoðun, og ríkisendurskoð- andi meti þau svo að þar séu viðkvæmar upplýsingar um þriðja aðila. Því fái þingmenn ekki umbeðin gögn, en verið sé að ganga frá því að ríkisendurskoð- andi kynni þeim gögnin fyrir þingfund í dag. - bj Krefjast gagna um eignasölu ríkisins á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli: Maðkur í mysunni við söluna STÖRF ÞINGSINS Langar umræður fóru fram undir heimildum til að ræða fund- arstjórn forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Stefnt er á að bjóða út gerð Bakkafjöru og smíði og rekstur nýrrar ferju sem þjóna á Vestmannaeyjum í desember. Þetta kom fram í máli Kristjáns L. Möller samgönguráðherra í umræðum á Alþingi í gær. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi harðlega á þingi í gær að ekki stæði til að kaupa nýja ferju í stað Herjólfs til að brúa bilið þar til Bakkaferja taki við. Herjólfur sé löngu kominn á aldur, og verði nú frá vegna viðgerða í tvo daga. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók undir með Árna, og sagði nauðsynlegt að fá nýja ferju í stað Herjólfs. - bj Bakkaferja og höfn boðin út: Vilja nýja ferju í stað Herjólfs AUSTURRÍKI, AP Austurrísk kona sem vaknaði upp í miðri skurðað- gerð á kviðarholi en var ófær um að gera læknunum vart um þann gífurlega sársauka sem hún fann fyrir fékk í gær tæpar 700.000 krónur í bætur samkvæmt dómsúrskurði. Konan, sem er 62 ára eftir- launaþegi, hafði sóst eftir tæplega 3,5 milljónum króna fyrir andlega og líkamlega þjáningu vegna aðgerðarinnar sem var gerð í október árið 2002. Rétturinn hafnaði því þó þar sem ónógar sannanir væru fyrir að konan hefði náð fullri meðvitund í aðgerðinni. - sdg Gat ekki gert læknum viðvart: Vaknaði upp í miðri aðgerð Það er greinilegt af nýj- asta leyniþjónustumatinu að íranska stjórnin þarf að gefa frekari skýringar á kjarnorku - áformum sínum. GEORGE W. BUSH FORSETI BANDARÍKJANNA GENGIÐ 05.12.2007 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 120,7124 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 62,08 62,38 126,63 127,25 91,38 91,9 12,253 12,325 11,316 11,382 9,723 9,779 0,5628 0,566 98,46 99,04 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.