Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 10
10 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Valgeir Kristins-
son, lögmaður Flugskóla Helga
Jónssonar, segir eiganda skólans
hafa talið að hann hafi haft leyfi
fyrir staðsetningu afgreiðsluhúss
á Reykjavíkurflugvelli.
Í Fréttablaðinu í gær sagði frá
því að borgarráð hefði samþykkt
að leggja á 50 þúsund króna dag-
sektir á afgreiðsluhúsið ef full-
nægjandi byggingarleyfisumsókn
bærist ekki.
Helgi Jónsson, eigandi flug-
skólans, kom byggingunni fyrir á
flugvellinum árið 2001.
Valgeir, lögmaður Helga, legg-
ur áherslu á að Helgi hafi á sínum
tíma talið sig vera að sækja um
stöðuleyfi fyrir húsið til bráða-
birgða enda sé framtíð Reykja-
víkurflugvallar í óvissu. Helgi
hafi verið í góðri trú um að leyfið
væri fengið allt þar til í mars á
þessu ári.
„Helgi var pollrólegur með að
allt væri í sóma þar til byggingar-
fulltrúinn sagði fyrr á þessu ári
að hann teldi byggingarleyfi
vanta,“ segir lögmaðurinn sem
kveður Helga þegar hafa haft til-
skilin leyfi árið 2001, meðal ann-
ars leyfi frá ríki, borg og flug-
málastjórn. Hins vegar hafi
komið upp misskilningur um
hvort Helgi eða borgin ætti að
útbúa til þinglýsingar kvöð um
brottflutning hússins þegar borg-
in krefðist.
Valgeir segir Helga nú hafa
sent inn byggingarleyfisumsókn
og að byggingarfulltrúi hafi gert
minni háttar athugasemdir sem
brugðist verði við. Málið sé
þannig í eðlilegum farvegi.
Engin gjöld hafa verið greidd
af byggingunni, hvorki gatna-
gerðargjöld né fasteignagjöld.
Aðspurður hvort Helga hafi ekki
grunað öll þess ár að ekki væri
allt með felldu þar sem honum
barst aldrei rukkun fyrir fast-
eignagjöldunum segir lögmaður-
inn Helga ekki hafa áttað sig á
því.
„Helgi taldi að þetta væri því-
líkt hreysi í augum borgaryfir-
valda að það væri ekki einu sinni
þess virði að leggja á þetta gjald,“
segir Valgeir.
Magnús Sædal byggingarfulltrúi
svarar aðspurður um fasteigna-
gjöldin að þótt ef til vill sé ekki um
miklar upphæðir að ræða snúist
málið um opinbera sjóði. „Á fínu
máli heitir þetta sennilega skatta-
sniðganga,“ segir byggingarfull-
trúinn, sem kveðst undrast að
málin hafi verið í slíkum farvegi:
„Eitt af meginmarkmiðum með
byggingareftirliti er að tryggja
öryggi og heilsu fólks. Það er svo-
lítið skrítið að menn sem eru í
rekstri þar sem gríðarlegar kröfur
eru gerðar til öryggis haldi að
þegar þeir komi niður á jörðina sé
hægt að sleppa því öllu saman,“
segir Magnús Sædal.
gar@frettabladid.is
Segir flugskólastjóra
hafa verið í góðri trú
Lögmaður Flugskóla Helga Jónssonar segir ekki rétt að skólinn hafi ekki haft
leyfi fyrir afgreiðsluhúsi á Reykjavíkurflugvelli. Fasteignagjöld hafa aldrei verið
greidd af byggingunni frá því hún var reist fyrir sex árum.
FLUGSKÓLI HELGA JÓNSSONAR Afgreiðslubygging flugskólans er samsett úr gömlum
vinnuskúrum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
IÐNAÐUR Íslensk stjórnvöld hafa
afar lítið um það að segja hvort
reist verði olíuhreinsunarstöð á
Vestfjörðum. Þetta segir Hilmar
Foss, framkvæmdastjóri Íslensks
hátækniiðnaðar, sem fyrirhugar
að reisa stöðina.
„Umhverfisráðuneytið kemur
að sjálfsögðu að þessu sem
umsagnaraðili fyrir umhverfis-
mat en að mestu leyti eru allar
leyfisveitingar í höndum sveitar-
félagsins,“ segir Hilmar. Í ágúst
síðastliðnum samþykkti bæjar-
ráð Vesturbyggðar breytingar á
skipulagsáætlun vegna olíu-
hreinsunarstöðvar í Hvestu í
Arnarfirði með samþykki Jóns
Bjarnasonar landeiganda.
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra hefur sagt í
fjölmiðlum að forsvarsmenn olíu-
hreinsunarstöðvarinnar hafi í
vor misst af frestinum til að
sækja um losunarheimild en
Hilmar segir þetta misskilning.
„Þetta á ekki við um okkur því í
vor var verið að sækja um losun-
arheimild til ársins 2012 þegar
Kyoto-bókunin rennur úr gildi.
Við verðum ekki byrjaðir að losa
þá svo ef við hefðum sótt um í
vor hefði það verið eins og að
kaupa miða í Laugardagsbíó vit-
andi það að við ætlum ekki í bíó
fyrr en á sunnudag. Við sækjum
um þegar þar að kemur og
munum þá sitja við sama borð og
þeir sem sóttu um heimild til
2012,“ segir hann. - jse
Olíuhreinsunarstöð á norðanverðum Vestfjörðum:
Stöðin veltur ekki á
ákvörðun stjórnvalda
LANDBÚNAÐUR Starfsmenn á vegum Landbún-
aðarstofnunar tóku um 150 ær og álíka af
lömbum á bænum að Skollagróf í Hruna-
mannahreppi og fóru með féð í Sláturhúsið á
Selfossi þar sem það verður aflífað í dag.
Riðu varð fyrst vart í Skollagróf í lok
september og sendi Sigurður H. Jónsson bóndi
þá sýni til rannsóknar til Landbúnaðarstofnun-
ar. En töf á rannsókn, sem endanlega staðfesti
grun um riðuveiki, og deilur Landbúnaðar-
stofnunar og Sorpstöðvar Suðurlands urðu til
þess að hann varð að hafa féð úti þar til í gær.
Að sögn Halldórs Runólfssonar, yfirdýra-
læknis Landbúnaðarstofnunar, verður það
urðað á urðunarstaðnum við Kirkjuferjuhjá-
leigu í dag. „Það náðist samkomulag um að
gera þetta með þessum hætti núna,“ segir
Halldór. „Svo förum við í það að finna framtíð-
arlausn á því hvernig að þessu skuli staðið og
hugsum þá aðallega til þess að komið verði
upp fullkomnum brennsluofni til að brenna
dýrahræ.“
„Ég er ekki alveg búinn að gera það upp við
mig hvað ég geri nú,“ segir Sigurður en
fjárlaust verður á bænum næstu tvö árin.
Einnig er hugsanlegt að rífa þurfi fjárhúsin.
Hann situr nú á samningafundum við Land-
búnaðarstofnun um bætur sem veittar eru úr
svokölluðum riðubótasjóði. „Það er búið að
bjóða mér eitthvað sem mér líst ekki á,“ segir
hann að lokum. - jse
Sigurður H. Jónsson bóndi á bænum Skollagróf í Hrunamannahreppi situr upp fjárlaus:
Um 300 skepnur aflífaðar vegna riðuveiki
SAUÐFÉ Engar kindur verða næstu tvö árin, að minnsta
kosti, í Skollagróf en riðuveiki varð vart þar í haust.
Ærnar og lömbin verða aflífuð í dag. Myndin er ekki af
riðuveiku fé.
Á fínu máli heitir þetta
sennilega skattasniðganga.
MAGNÚS SÆDAL
BYGGINGAFULLTRÚI
Kryddaðu eldhúsið
með heimilistækjum
frá Siemens.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Espressó-kaffivélar,
bjóðum upp á mikið úrval.
Tilvalin jólagjöf handa
heimilisfólkinu.
Heimilistæki, stór og smá,
ljós, símar, pottar og
pönnur.
BELGÍA, AP Guy Verhofstadt,
forsætisráðherra belgísku
bráðabirgðastjórnarinnar sem
setið hefur frá
því sama stjórn
missti meirihluta
í þingkosningum
í júni, hóf í gær
formlegar
viðræður við
leiðtoga annarra
flokka í tilraun
til að finna að
minnsta kosti bráðabirgðalausn á
stjórnarkreppunni í landinu.
„Land vort er að ganga í gegnum
eina alvarlegustu stjórnmála-
kreppu síðustu áratuga,“ sagði
Verhofstadt á mánudagskvöld.
Hann tók við umboðinu eftir
hálfs árs árangurslausar viðræður
borgaralegu flokkanna, Flæmingja
og Vallóna. - aa
Stjórnarkreppan í Belgíu:
Verhofstadt
stýrir viðræðum
GUY VERHOFSTADT
BANDARÍKIN, AP Eftir að hafa
hlotið lyfjameðferð við HIV-
veirunni í níu ár komst banda-
rísk kona að því að hún hafði
verið ranglega greind með
sjúkdóminn. Audrey Serrano
hefur nú höfðað mál gegn
lækninum sem meðhöndlaði
hana á þeim grundvelli að sterk
lyfjameðferðin hefði haft
marga kvilla í för með sér á
borð við þunglyndi, króníska
þreytu, lystarleysi og þarma-
bólgur. Einnig hefði læknirinn
ekki gert prófanir á henni til að
staðfesta greininguna.
Serrano fór í nafnlaust HIV-
próf á heilsugæslu og var henni
síðan vísað til þessa læknis sem
segist hafa treyst orðum
Serrano um að hún væri með
HIV.
- sdg
Var ranglega greind með HIV:
Heilbrigð fékk
HIV-lyf í níu ár
BÆNAHALD Á KÚBU Kona þessi
vottar heilagri Barböru virðingu sína á
trúarhátíð í Havana á Kúbu, þar sem
afrískum og evrópskum trúarbrögð-
um er blandað saman með sérstæð-
um hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/AP