Fréttablaðið - 06.12.2007, Síða 54
Kjartan Hallgeirsson og Þorleifur St. Guðmundsson fasteignasalar
á Eignamiðlun veita nánari upplýsingar um íbúðirnar í síma 588-9090.
Sverrir Kristinsson lögg. fast.sali
Sími 588 9090 • fax 588 9095 • Síðumúla 21
www.eignamidlun.is • eignamidlun@eignamidlun.is
NÝJAR GLÆSILEGAR ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR Í MÖRKINNI
SUÐURLANDSBRAUT 58-62
Um er að ræða 78 glæsilegar fullbúnar 90-140 fm íbúðir í lyftuhúsi.
Ekkert hefur verið til sparað við hönnun íbúðanna sem eru bjartar og
rúmgóðar. Íbúðirnar snúa mót suðri. Lofthæð í íbúðunum er 2,70 m
sem er meira en gengur og gerist í nýbyggingum og aukin hljóðeinangrun
er í íbúðunum. Gæði og þægindi eru einkennisorð íbúðanna
sem verða afhentar með gólfefnum, innréttingum og tækjum. Bílastæði
í bílageymslu fylgir hverri íbúð.
Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í mars 2008.
Húsin eru á mörkum þjónustu- og verslunarkjarna og í nágrenni við
nokkur af vinsælustu útivistarsvæðum borgarbúa. Göngustígar tengja
íbúðabyggðina í Mörkinni við aðra hluta borgarinnar. Örstutt í Elliðaárdalinn.
Í Mörkinni verður þjónustumiðstöð, Heilsusetrið, þar sem skipulögð
dagskrá verður í gangi. Innangengt verður úr íbúðunum í þjónustumiðstöðina.
Þangað kemur fólk til að fá góða og heilbrigða hreyfingu,
fræðslu, skemmtun, aðhlynningu, þjálfun, félagsskap, góðan og hollan
mat og ekki síst til að láta dekra við sig. Stefnt er að því að geta boðið
íbúum við Suðurlandsbraut 58-62 uppá þjónustu eftir óskum og þörfum
hvers og eins.
Um verður að ræða heilsusetur í hæsta gæðaflokki.
Við Heilsusetrið verður auk þess púttvöllur
Hjúkrunarheimili á vegum Reykjavíkurborgar verður í næsta nágrenni
við íbúðirnar og íbúum í Mörkinni verður boðið uppá heimahjúkrun.
Þá verður boðið uppá sjúkraþjálfun í Heilsusetrinu.
Fr
u
m