Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 78

Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 78
58 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr KR, stendur í ströngu þessa dagana og tekur þátt í sundmóti í Eindhoven í Hol- landi ásamt fríðu föruneyti. „Við erum fjórar stelpur saman sem erum að fara að keppa á Dutch Swim Cup mótinu, ég, Erla Dögg Haralds- dóttir, Sigrún Brá Sverrisdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir og það er mjög góð stemning í hópnum. Ekkert stráka- vesen, bara við stelpurnar og það er fínt,“ sagði Ragnheiður í léttum dúr og kvaðst afar spennt fyrir mótinu. Ragnheiður er ásamt stöllum sínum í Ólympíuhóp Sundsambands Íslands að reyna að ná lágmörkum fyrir Ólympíu- leikana í Peking í Kína á næsta ári. „Ég er í gríðarlega góðu standi í augna- blikinu og þetta leggst alveg rosalega vel í mig. Ég hef verið að æfa í keppnislauginni og það hefur gengið mjög vel og ég hef örugglega aldrei verið hraðari á æfingum en nú. Markmiðið hjá mér er að sjálfsögðu að slá Íslandsmet, það er alveg klárt,“ sagði Ragnheiður, sem keppir í 50 metra skriðsundi á laugardag og 100 metra skrið- sundi á sunnudag. „Ég er þegar búin að ná Ólympíulágmarkinu í 100 metra skriðsundi, en ég stefni samt að því að bæta þann tíma enn frekar. Til þess að ná lágmarkinu í 50 metra skriðsundi þarf ég í raun bara að synda á mínum tíma því ég hef ekk- ert verið að keppa í 50 metra laug, en ég stefni alltaf að því að bæta mig,“ sagði Ragnheiður. Ragnheiður stóð sig frá- bærlega á Íslandsmeistaramótinu í sundi um miðjan nóvember og setti þar tvö Íslandsmet og var síðan valin sundkona ársins á lokahófi Sundsambands Íslands í mótslok. „Það hefur gengið mjög vel hjá mér í ár en þetta er bara spurning um að toppa á réttum tíma og því er þetta svolítið púsluspil hjá mér þar sem ég er að fara að keppa á Evrópumeistara- mótinu í Ungverjalandi í næstu viku og ætla mér stóra hluti þar líka.“ RAGNHEIÐUR RAGNARSDÓTTIR, SUNDKONA ÚR KR: KEPPIR MEÐ ÓLYMPÍUHÓP SSÍ Í HOLLANDI OG UNGVERJALANDI Markmiðið er að sjálfsögðu að bæta Íslandsmet > Birgir Leifur í Suður-Afríku Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, er meðal keppenda á Alfred Dunhill-mót- inu á Leopard Greek-vellinum í Suður- Afríku. Mótið hefst í dag og er liður í Evrópumótaröðinni sem Birgir Leifur vann sér keppnisrétt á ekki fyrir alls löngu. Það eru vegleg peningaverðlaun í boði eins og tíðkast á mótum sem þessum og sigurvegarinn fær upphæð sem samsvarar rúmum 14 milljónum íslenskra króna en 70. sæti, það síðasta eftir niðurskurðinn, gefur rúm- lega 120 þúsund krónur. HANDBOLTI Fram og Stjarnan mæt- ast í sannkölluðum stórleik N1- deild kvenna í Safamýrinni í kvöld kl. 20.00. Liðin eru jöfn á toppi deildarinnar með 15 stig hvort og því má búast við jöfnum og spennandi leik og sjálfsagt að hvetja fólk til að fjölmenna á völl- inn. Stjörnuliðið tapaði óvænt síð- asta leik sínum í deildinni á móti FH og það er eina tap liðsins á tímabilinu, en liðið er komið í undanúrslit í Eimskipsbikarnum eftir að hafa lagt bikarmeistara Hauka að velli í átta liða úrslit- um. Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, hlakkar til þess að takast á við Fram-liðið eftir langt hlé vegna þátttöku íslenska kvennalandsliðsins í undankeppni Evrópumótsins í Litháen á dögun- um. „Það verður frábært að fara að spila á nýjan leik og þetta verður hörkuleikur. Það hefðu kannski ekki margir álitið að þetta yrði stórleikur fyrir tímabilið, en Framliðið er búið að spila frábær- lega og er vel að stöðu sinni komið í deildinni,“ sagði Aðalsteinn og kvað stelpurnar sínar tilbúnar í leikinn. „Leikmenn mínir eru búnir að hvílast vel í landsleikjapásunni, nema Rakel Dögg Bragadóttir, sem var í eldlínunni í Litháen. Hún er líka búin að vera að glíma við axlarmeiðsli á tímabilinu og hefur lítið getað verið með á æfingum og spilar eiginlega bara leikina. Ég er að vonast til þess að hún geti spilað þessa tvo leiki sem við eigum eftir fram að jólum og þá reikna ég með því að hún fari í uppskurð,“ sagði Aðalsteinn. Framliðið er enn taplaust í deild- inni á tímabilinu en er dottið út úr Eimskipsbikarnum eftir tap gegn Val í átta liða úrslitum. Fram er búið að koma skemmtilega á óvart í vetur og hefur spilað góðan hand- bolta og Einar Jónsson, þjálfari Fram, er spenntur fyrir leikinn. „Við erum búin að bíða lengi eftir þessum leik og það er mikil eftirvænting í okkar herbúðum fyrir hann,“ sagði Einar og á ekki von á öðru en að stelpurnar sínar séu klárar í verkefnið. „Ég vona að landsliðsstelpurnar, þær Ásta Birna Gunnarsdóttir, Sara Sigurðardóttir, Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Þórey Rósa Stef- ánsdóttir, komi bara endurnærðar til leiks að nýju eftir frábæran árangur með landsliðinu sem og aðrir leikmenn liðsins. Það er frá- bært að fá svona toppslag í kjölfar góðs gengis hjá kvennalandsliðinu og vonandi verður það til þess að fá fólk til að mæta á völlinn og ég veit reyndar að Framarar ætla að fjölmenna og skapa góða stemn- ingu,“ sagði Einar spenntur. - óþ Fram og Stjarnan mætast í toppslag N1-deildar kvenna í kvöld og mun leikurinn fara fram í Safamýrinni: Barist á toppi N1-deildar kvenna í kvöld Á FLUGI Þórey Rósa Stefánsdóttir, hornamaður Fram og íslenska landsliðsins, verður í eldlínunni með Fram gegn Stjörnunni í Safamýrinni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Marel Baldvinsson er kominn aftur heim á Klakann eftir að hafa fengið sig lausan frá norska liðinu Molde á dögunum. Marel hefur átt við hnémeiðsli í mörg ár og það var meðal annars af þeim sökum sem hann ákvað að hvíla sig á atvinnumennskunni, en hann er þó ekki alveg tilbúinn að leggja skóna á hilluna strax. „Ég er eiginlega búinn að ákveða að spila hérna heima næsta sumar og fannst einum of snemmt að hætta í boltanum strax,“ sagði Marel í samtali við Fréttablaðið í gær. Það er því ljóst að mörg lið munu reyna að klófesta þennan mikla markahrók. „Það eru nokkur lið að bera víurnar í mig og ég vil svo sem ekki vera að nafngreina þau lið á þessu stigi málsins. Það liggur kannski í augum uppi að Breiða- blik er eitt af þessum liðum og því allt í lagi að nefna það á nafn,“ sagði Marel sem var markakóngur í efstu deild sumarið 2006. - óþ Marel Baldvinsson: Það eru nokkur lið á eftir mér KAPPHLAUP Marel Baldvinsson er eftir- sóttur þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Framtíð Javiers Mas- cherano, lánsmanns hjá Liver- pool, virðist nú vera óljós eftir að bresk dagblöð greindu frá því í gær að amerískir eigendur Liverpool væru tregir til að punga út þær litlu 17 milljónir punda sem settar eru á leikmann- inn. Mascherano er í eigu fyrirtæk- is á vegum Kia Joorabchian og ef marka má dagblöðin The Daily Star og The Independent þá munu yfirmenn hjá Manchester City vera að setja sig í stellingar til þess að bjóða uppsettar 17 milljónir punda í Mascherano um leið og janúarglugginn opnar. - óþ Enska úrvalsdeildin: Framtíð Mas- cheranos óljós FÓTBOLTI Raúl Gonzalez hefur náð sér aftur á strik með Real Madrid í spænska fótboltanum í vetur og er nú búinn að skora 8 mörk í fyrstu 14 leikjunum. Raúl hefur kannski heyrt af aðferðum Guðjóns Þórðarsonar uppi á Skaga síðasta sumar því hann þakkar ísböðum fyrir sína bestu byrjun í næstum því heilan áratug. Raúl segist einnig sofa í þunnu lofti sem hafi góð áhrif. „Ég geri þetta vegna ástar minnar á félaginu og hef aldrei velt því fyrir mér hvort þetta gæti haft slæm áhrif,“ segir Raúl sem eyðir oft um tíu mínútum í ísbaðinu. Raúl hefur líka látið útbúa svefnherbergið sitt þannig að það sé eins og hann sofi í þunnu lofti. Þetta er þekkt aðferð í NFL og NBA enda eykur þetta súrefnis- flæðið í blóðinu sem þýðir betra úthald. Raúl skoraði aðeins 7 mörk í 35 leikjum á síðasta tímabili og datt út úr landsliðinu en nú telja menn líklegt að hann fá tækifæri til þess að bæta við þau 44 mörk sem hann hefur skorað fyrir Spán. - óój Raúl hjá Real Madrid: Ísbaðið virkar MARKAKOSSINN Raúl hefur skorað átta mörk í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Síðustu tvö leiktímabil hafa ekki verið neinn dans á rósum hjá Árbæingnum Helga Val Daníelssyni. Hann fór til Öster frá Fylki en Öster var þá í sænsku úrvalsdeildinni og útlitið bjart. Öster féll á fyrsta tímabili Helga Vals úr úrvalsdeildinni og ekki tók betra við á næstu leiktíð þar sem Öster féll aftur og er nú í sænsku C-deildinni. Helga Val hugnast það ástand lítið og hann er því að þreifa fyrir sér annars staðar enda ekki spennt- ur fyrir því að spila í sænsku C- deildinni. Hann á aftur á móti enn eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og mun því æfa með liðinu þar til eitthvað betra kemur upp á borðið. „Forráðamenn félagsins eru full- meðvitaðir um að ég vilji komast í burtu og ætla ekki að standa í vegi fyrir mér finni ég annað félag,“ sagði Helgi Valur við Fréttablaðið í gær en það hefur ekki gengið þrautalaust að finna spennandi félag enda eiga leikmenn sem falla í C-deildina það til að gleymast. „Það hefur verið mjög lítið í gangi síðustu vikur og mér leist í raun ekkert á blikuna. Þetta er þó aðeins að glæðast og ég hef heyrt frá efstudeildarfélögum í bæði Noregi og Svíþjóð sem er mjög jákvætt. Það er ekkert fast í hendi en vonandi gerist eitthvað í þeim málum fljótlega,“ sagði Helgi Valur sem er ekki ósáttur við sína frammistöðu í sænska boltanum þó svo að gengi Öster hafi verið ömur- legt. „Ég hef verið að bæta mig og því er þetta ástand frekar svekkj- andi. Ég tel mig klárlega vera nógu góðan til að spila í efstu deild enda lék ég vel þar með Öster og hef bætt mig síðan.“ Helgi Valur er nú orðinn fjöl- skyldumaður en hann og unnusta hans eiga dóttur, fimm mánaða telpu. Hann vill ekki gefa atvinnu- mannadrauminn upp á bátinn strax. „Þó svo það sé ágætis gluggi að spila á Íslandi þá er mikið verk að flytja búferlum milli landa. Ég vil helst ekki koma heim og mín von er að spila áfram hér í Svíþjóð. Ég er bara búinn að vera hér í tvö ár og tel mig hafa nóg að sanna. Ég mun að minnsta kosti bíða fram í janúar áður en ég tek ákvörðun um að koma heim,“ sagði Helgi Valur sem þegar hefur heyrt frá íslenskum félögum og yrði eflaust ekki í vandræðum með að fá fínan samning hér á landi ákveði hann að koma heim á annað borð. henry@frettabladid.is Vil helst ekki koma heim Helgi Valur Daníelsson hefur ekki enn gefið upp von um að komast frá Öster til betra liðs. Úrvalsdeildarlið í Svíþjóð og Noregi hafa verið að spyrjast fyrir um leikmanninn sem vill spila áfram í Skandinavíu í stað þess að koma heim. HELGI VALUR Úrvalsdeildarlið í Svíþjóð og Noregi sýna honum áhuga og hann vill helst ekki koma heim strax. FRÉTTABLAÐIÐ/SCANPIX

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.