Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 86
66 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. lítil blýkúla 6. ógrynni 8. skordýr 9. skarð 11. stöðug hreyfing 12. þrykk 14. mont 16. í röð 17. þrí 18. þörungur 20. málmur 21. fiska. LÓÐRÉTT 1. kauptún 3. frá 4. garð- plöntutegund 5. landspilda 7. forskot 10. fjór 13. nytsemi 15. ökutækja 16. kæla 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. hagl, 6. of, 8. fló, 9. rof, 11. ið, 12. prent, 14. grobb, 16. íj, 17. trí, 18. söl, 20. ál, 21. afla. LÓÐRÉTT: 1. þorp, 3. af, 4. glitbrá, 5. lóð, 7. forgjöf, 10. fer, 13. not, 15. bíla, 16. ísa, 19. ll. „Á leiðinni í vinnuna skelli ég í mig skyrdrykk eða léttum AB- drykk.“ Anna Bryndís Blöndal, handboltakona og lyfjafræðingur. Þúsundþjalasmiðurinn og kaffi- húsaeigandinn Friðrik Weiss- happel verður fertugur í dag og hefur af því tilefni boðið 180 vinum og vandamönnum til veislu á heimili sínu í Kaupmannahöfn á laugardag. „Ég er búinn að koma víða við í gegnum tíðina og hef eignast marga vini. Ég þekki orðið of marga til að bjóða liðinu bara í mat. Í stað þess ætla ég að hafa opið hús allan daginn og útbúa bæði morgunmat og hádeg- ismat, meðal annars mjög sér- staka, þykka gulrótarsúpu með engifer og hvítlauk,“ segir Frið- rik en hann hefur fengið tvo þjóna til liðs við sig sem ætla að vera til þjónustu reiðubúnir frá morgni til kvölds. Þegar Friðrik er inntur eftir því hvort hann reikni með fleiri Íslendingum eða Dönum segir hann hlutföllin nokkuð jöfn. „Annars eru þetta allra þjóða kvikindi! Ég veit um 25 manns sem ætla að fljúga hingað frá Íslandi. Sumir fljúga meira að segja fram og til baka sama daginn. Svo verða Skotar og Ameríkanar, Japani, Pakistan- ar, Portúgalar og Bretar. Ég bý hér í fjölmenningarhverfi,“ segir Friðrik og hlær en margir gest- anna eru fastakúnnar á kaffihúsi hans, Laundromat. Friðrik þarf ekki að hafa áhyggjur af plássleysi þrátt fyrir gestafjöldann því hann er nýflutt- ur inn í 160 fermetra íbúð á tveimur hæðum. „Þetta er ótrú- lega skemmtilegur tími. Ég er nýfluttur í frábæra íbúð, svo er fertugsafmælið, jólin og við kær- astan eigum von á okkar fyrsta barni þann 23. janúar. Enginn tími til þess að láta sér leiðast.“ Friðrik segist gjarnan nýta tíma- mót til þess að setja sér markmið og 40 ára afmælisdagurinn er þar engin undantekning. „Ég ákvað að vera 85 kg þegar ég yrði fer- tugur og náði af mér 7,5 kg á tæpum þremur mánuðum. Mér finnst tímamót frábært tækifæri til þess að fara yfir stöðuna, skoða sín mál, hvert maður ætlar sér og svo framvegis.“ Friðrik segist vera búinn að fá eina afmælisgjöf nú þegar, hlut- verk í myndinni The Good Heart. „Ég fékk aukahlutverk í nýju myndinni hans Dags Kára frá honum og Þóri Snæ Sigurjóns- syni sem er framleiðandi. Þórir vissi að leikur í kvikmynd væri á lista mínum yfir hluti sem ég ætla mér að gera áður en ég dey. Gjöfin er sem sagt pínulítið- míkró-hlutverk í myndinni þar sem ég mun leika bisnessmann, en ég má ekki segja meira vegna mikillar leyndar sem hvílir yfir handritinu. Ég get allavega strik- að þetta út af listanum,“ segir Friðrik og skellir upp úr. „Mér finnst þetta alveg frábær gjöf!“ sigrunosk@frettabladid.is FRIÐRIK WEISSHAPPEL: HELDUR UPP Á FERTUGSAFMÆLIÐ Í KAUPMANNAHÖFN Frikki fékk kvikmyndahlut- verk í fertugsafmælisgjöf BOÐSKORTIÐ Allir gestirnir fengu forláta boðskort sem Friðrik hannaði sjálfur. Textinn er á íslensku, dönsku og ensku enda koma „allra þjóða kvikindi“ í veisluna eins og Friðrik orðar það sjálfur. BÝÐUR 180 MANNS Friðrik Weisshappel á fertugsafmæli í dag. Hann ætlar að hafa opið hús á heimili sínu í Kaup- mannahöfn. Trommuleikarinn Sigmundur Erling Ingimars- son datt í lukkupottinn þegar hann fékk að opna tónleika Mugisons í Bíóhöllinni á Akra- nesi ásamt Mugison sjálfum eftir að hafa rek- ist á hann í verslun fyrr um daginn. „Ég talaði við hann þegar hann var að spila í Eymundsson og sagði honum að ég væri góður trommuleik- ari,“ segir Sigmundur, sem aldrei er kallaður annað en Simmi. „Hann var mjög ánægður að heyra það og við ákváðum að spila lag saman.“ Simmi starfar á vinnu- og hæf- ingarstaðnum Fjöliðjunni á Akranesi en eyðir löngum stundum dag hvern í að æfa sig á trommurnar. „Ég er búinn að æfa mig síðan ég var sjö ára og æfi einu sinni á dag, alveg heillengi.“ Simmi er því enginn nýgræðingur og hefur áður komið fram á sviði, meðal annars í Dalabúð í Búðardal þar sem hann gekk í grunnskóla. „Ég var ekkert mjög stressaður að spila með Mugi- son. Þetta gekk vel og ég tók alveg dúndurflott trommusóló. Svo sat ég á fremsta bekk alla tónleikana og fékk þetta beint í eyrun. Þetta var rosalega flott. Alveg meiriháttar. Algjör snilld,“ segir Simmi og bætir því við að Mugi- son hafi gefið honum diskinn sinn, Mugiboogie, fyrir spilamennskuna. „Hann er æðislegur trommuleikari,“ segir Mugison um Simma. „Ég ákvað bara að opna „sjóvið“ með meistaranum og við æfðum ekki neitt. Hann tók lagið My Love I Love með mér og tók alveg rosalegt trommusóló. Ég sá það bara strax þarna í Eymundsson að það væri góður fílingur í honum. Hann er alveg með þetta strákurinn.“ - sók Hitti Mugison í verslun og fékk að tromma á tónleikum MUGISON Tónlistarmaðurinn Mugison hitti Sigmund Erling Ingimarsson í bókaverslun og bað hann að spila með sér á tónleikum sínum. MYNDIR/GUÐNI ÆÐISLEGUR TROMMULEIKARI Mugison segir að Simmi sé æðislegur trommuleikari enda er hann búinn að æfa af kappi í tæp 20 ár. „Ekkert tilboð hefur ennþá borist og við reiknum ekkert frekar með því að það gerist,“ segir Þor- steinn Þorsteinsson, forstöðumaður markaðssviðs hjá RÚV ohf. Eins og greint var frá í fjölmiðlum stóð til að selja sextíu sekúndna auglýsingahlé inni í miðju Skaupi en Þorsteinn segir að markaðurinn hafi einfaldlega talið verðið vera of hátt. Gert var ráð fyrir því að greiddar yrðu þrjár milljónir fyrir hléið og yrði þetta þá, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst, dýrasta auglýsingahléið í sögunni. „Við vorum alveg stífir á þessari upphæð og svo virðist sem það hafi ekki verið stemning fyrir þessu hjá markaðnum,“ segir Þorsteinn. Skaupið nýtur mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar en ef áhorfstölurnar verða eitthvað í líkingu við þær á síðasta ári má reikna með að yfir 95 prósent þjóðarinnar sitji föst fyrir framan imbakassann þegar spéspegill ársins rennur af stað. Eins og greint hefur verið frá er Skaupinu leikstýrt af Ragnari Bragasyni og verður það með innflytjenda- ívafi þótt málefni líðandi stundar í pólitíkinni verði einnig krufin til mergjar. - fgg Enginn vildi auglýsa í Skaupinu EKKERT AUGLÝSINGAHLÉ Skaup Ragnars Bragasonar verður að öllum líkindum ekki rofið vegna auglýsingar en enginn hefur falast eftir að kaupa 60 sekúndna auglýsingahléið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Seinni umræðan um fjárlög Reykja- víkurborgar stóð fram á miðnætti á þriðjudagskvöldið. Þessi umræða er fyrsta merkið um að jólin séu að koma hjá borgarfulltrúum og á meðan hinir kjörnu fulltrúar sitja á rökstólum er hefð fyrir því að starfsmenn Ráðhússins spili bridds og grípi í tafl. Áður en til atkvæðagreiðslu kemur er borgar- fulltrúum boðið upp á smörrebröð að hætti Dana og loks býður borg- arstjóri öllum í mikið teiti heima hjá sér þegar formlegheitunum er lokið. Dagur B. Eggertsson var enginn eftirbátur fyrirrennara sinna og sló upp heljarinnar veislu þar sem málin voru rædd og borgarfulltrúar dönsuðu langt fram á nótt. Uppselt er á tónleika Björgvins Halldórssonar í Laugardalshöll. Og þó. Eftir því sem Frétta- blaðið kemst næst er nú verið að setja í sölu ósóttar pantanir og er talið að rúmlega hundrað miðar verði til sölu á vefsíðunni miði. is. Ef að líkum lætur verða þeir miðar þó ekki lengi að hverfa því hinir 8.900 ruku út eins og heitar lummur. Og ein skemmtilegasta sjónvarps- kona Noregs, Pia Haraldsen, var stödd hér á landi nýverið og tók upp viðtöl við nokkra af valdamestu mönnum landsins en Pia er hálfgerð Silvía Nótt þeirra Norðmanna. Tilefn- ið var samkvæmt Vísi.is sú staðreynd að Ísland skaut Norðmönnum ref fyrir rass á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna. Fórnarlömb Piu munu hafa verið fjármálaráðherrann Árni Mathiesen og borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson auk Halldórs J. Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans. Allir munu þeir hafa tekið viðtölum Piu með stökustu ró en spurn- ingarnar reyna víst ákaflega á þolrifin og eru til þess fallnar að mönnum vefjist tunga um tönn. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Gnoðarvogi 44, s. 588 8686. Opið 10-18:15 laugardaga 11-14. Þú færð aðeins það besta hjá okkur STÓR HUMAR, HÖRPUSKEL, LÚÐA RISARÆKJUR, SKÖTUSELUR, LAX NÝLÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.