Fréttablaðið - 19.12.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 19.12.2007, Síða 12
 19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Héraðsdómur Austur- lands dæmdi í fyrradag 27 ára karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, fyrir að berja tvo menn með golfkylfu. Þarf hann einnig að greiða þeim um 370 þúsund krónur samtals í miskabætur. Mennirnir tveir, ásamt einum öðrum, höfðu hitt vinkonu ákærða á Egilsstöðum í maí síðastliðnum og farið með hana í bíltúr. Þeir voru í glasi og sögðu henni, í stríðni að eigin sögn, að þeir ætl- uðu að keyra hana til Eskifjarðar. Varð hún skelkuð og hringdi í ákærða. Hann kom á vettvang og krafði mennina um afsökunar- beiðni. Þegar þeir neituðu kýldi hann annan þeirra í andlitið. Mennirnir fóru því næst á golf- völl á Eskifirði og léku golf. Þegar þeir komu heim til sín á Eskifirði birtist ákærði og réðst að þeim. Barði hann annan þeirra til óbóta með golfkylfu með þeim afleiðing- um að hausinn brotnaði af kylf- unni. Hinn manninn barði hann í öxlina með kylfunni. Árásarmaðurinn sagði að annar mannanna hefði ætlað að lemja sig með golfkylfu og hafi hann barið hann í sjálfsvörn. Dómarar féllust ekki á það. Sögðu þeir að honum hefði verið í lófa lagið að keyra burt af vettvangi. - sgj Karlmaður hlaut 8 mánaða dóm fyrir að berja tvo menn með golfkylfu í bræði: Hefndi vinkonu með golfkylfu GOLFKYLFUR Árásarmaðurinn barði hina tvo af svo miklu afli að hausinn brotnaði af kylfunni. HVERAGERÐI „Það vottar ekki fyrir mengun í Varmá,“ segir Aldís Haf- steinsdóttir, bæjarstjóri Hvergerð- inga. Hún telur það rangt sem fram hefur komið um að lífríki árinnar verði lengi að jafna sig eftir meng- unarslysið, sem varð í byrjun mán- aðarins. Þá láku niður 800 lítrar klórs úr tanki við sundlaugina í Laugaskarði og síðan í Varmá. Mikið drapst af fiski. „Lifandi botndýr hafa fundist á þeim fjórum stöðum þar sem sýni hafa verið tekin neðan spillingar- staðar og við erum farin að sjá fiska upp með allri á,“ segir Aldís. „Útlitið er því alls ekki eins svart og virtist vera í fyrstu,“ segir hún. Enginn verður áminntur vegna slyssins, enda hefði „enginn mann- legur máttur getað komið í veg fyrir að kraninn brast“, segir Aldís. Hún viðurkennir þó að mannleg mistök hafi ráðið því að ekki var tappi í karinu sem lá til öryggis utan um sjálfan tankinn. „En nei, við ætlum ekki að fara út í það. Starfsmennirnir eru nátt- úrulega miður sín og verklagsregl- um hefur verið breytt,“ segir hún. Slysið hafi verið áminning í sjálfu sér. Til að koma í veg fyrir svipuð slys í framtíðinni er nýr tankur í smíðum og klór verður ekki settur í þann gamla. - kóþ Enginn starfsmaður verður dreginn til ábyrgðar vegna klórslyssins í Varmá: Vottar ekki fyrir menguninni TANKURINN OG KARIÐ Enginn tappi var í karinu, sem átti að hindra leka úr tank- inum við sundlaugina í Laugaskarði. MYND/SUNNLENSKA EF ÞÚ GETUR BORIÐ HANN PAKKINN 600 KR. Jólaóskir UMHVERFISMÁL Starfsleyfi sem Heilbrigðisnefnd Suðurlands gaf út fyrir fiskþurrkun Lýsis hf. í Þorlákshöfn hefur verið stytt úr fjórum árum í átján mánuði af umhverfisráðuneytinu. Fiskþurrkun Lýsis hefur mætt mikilli andspyrnu. Sveitarfélagið Ölfus og aðrir sem kærðu starfs- leyfi Lýsis sögðu lyktina frá fisk- þurrkuninni vera kæfandi og að „á vissum tímum hafi nánast verið ólíft í nábýli við starfsemina,“ eins og segir í úrskurði ráðuneyt- isins. Sögðust kærendur ósáttir við að Lýsi fengi endurnýjað starfsleyfi til fjögurra ára „þrátt fyrir ítrekaðar vanefndir fyrir- tækisins um að ráða bót á lyktar- mengun,“ segir í úrskurðinum. Meðal skilyrða fyrir endurnýj- uðu starfsleyfi var að Lýsi kæmi upp nýjum búnaði til að eyða lyktarmenguninni. Um var ræða þvotta- og þéttiturn sem síðar reyndist ekki unnt að fá bygging- arleyfi fyrir hjá sveitarfélaginu. Lýsi fyrir sitt leyti kærði þetta ákvæði starfsleyfisins til umhverfisráðuneytisins sem tók undir með fyrirtækinu og sagði það hafa verið ólögmætt af hálfu heilbrigðisnefndarinnar sem ekki hafi getað treyst því að Lýsi fengi nauðsynlegt byggingarleyfi fyrir búnaðinum. Þegar auglýst var á sínum tíma eftir athugasemdum við fyrirhug- að starfsleyfi Lýsis kom fram að það ætti að vera til átján mánaða. Heilbrigðisnefnd Suðurlands ákvað síðan að leyfið yrði veitt til mun lengri tíma, eða til fjögurra ára þar sem sá tímarammi væri meginreglan í útgáfu starfsleyfa. Umhverfisráðuneytið tekur hins vegar undir með andstæðingum starfsleyfisins og segir það hafa verið ólögmæta stjórnsýsluhætti af hálfu heilbrigðisnefndar að gera þessa breytingu eftir að frestur til athugasemda var lið- inn. Niðurstaða umhverfisráðuneyt- isins er að Lýsi fái átján mánaða starfsleyfi fyrir fiskþurrkuninni frá 1. desember 2006 að telja ef fyrirtækinu tekst að afla sér byggingarleyfis fyrir áðurnefnd- um þvotta- og þéttiturni. Fyrir liggi að mikil og langvarandi mengun hafi stafað frá fiskþurrk- uninni. Lýsi er því enn háð því að fá byggingarleyfi frá bæjaryfir- völdum í Ölfusi sem áður hafa hafnað því að gefa út slíkt leyfi. gar@frettabladid.is Starfsleyfi daunillrar fiskþurrkunar stytt Umhverfisráðuneytið hefur stytt starfsleyfi fiskþurrkunar Lýsis í Þorlákshöfn úr fjórum árum í átján mánuði. Skilyrði er uppsetning tiltekins lykteyðingarbún- aðar sem sveitarfélagið Ölfus hefur hafnað að veita byggingarleyfi fyrir. ÞORLÁKSHÖFN Fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn hefur verið íbúum þyrnir í augum vegna lyktar sem þeir segja vera kæfandi þannig að stundum sé nánast ólíft í grennd við starfsemina. Á vissum tímum hafi nán- ast verið ólíft í nábýli við starfsemina. KÆRENDUR FISKÞURRKUNAR LÝSIS Á ÞORLÁKSHÖFN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.