Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 2
2 19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
NEYTENDUR Ísland er dýrasta land í
heimi til að búa á, samkvæmt
nýrri rannsókn Alþjóðabankans.
Rannsókn á hagkerfum heimsins,
byggð á tölum frá árinu 2005,
sýnir að verðlag á Íslandi er rúm-
lega áttfalt hærra en í ódýrasta
landi heims, Tadsjikistan.
Verðlag á Íslandi er 54 prósent-
um hærra en í Bandaríkjunum,
sem var viðmiðunarlandið í könn-
uninni. Á hæla Íslands koma Dan-
mörk, Sviss, Noregur og Írland.
Japan er dýrasta land heims utan
Evrópu, 18 prósentum dýrara en
Bandaríkin, en fimmtán Evrópu-
ríki voru á listanum yfir tuttugu
dýrustu löndin.
Ísland mælist jafnframt í þriðja
sæti yfir lönd með mesta einka-
neyslu, á eftir Lúxemborg og
Bandaríkjunum. - sgj
LÖGREGLUMÁL „Maður hefur auð-
vitað alltaf varann á í útlöndum
en það hvarflar ekki að manni að
svona gerist á Íslandi,“ segir
Ragnheiður Guðjónsdóttir, sem
varð á mánudag fyrir barðinu á
skipulögðum vasaþjófum að
erlendri fyrirmynd.
Ragnheiður brá sér inn í Tiger á
Laugavegi til að
kaupa eitthvað
smálegt fyrir
dóttur sína. Að
hennar sögn
stóðu þrír búð-
argestir, tvær
konur og einn
karl sem töluðu
saman erlent
tungumál,
óvenjulega þétt
upp við hana á
meðan hún
skoðaði vörur í
búðinni. „Það
var nóg pláss í
búðinni,“ segir
hún. „Ég skildi
ekki hvað var
að þessu fólki.“
Það var svo
ekki fyrr en hún
kom að
afgreiðsluborð-
inu að hún upp-
götvaði að ekk-
ert peningaveski var lengur í
hliðartösku hennar. „Ég áttaði mig
náttúrulega strax á því hvað hafði
skeð og af hverju fólkið hafði
króað mig svona af,“ segir Ragn-
heiður. Í veskinu voru um þrjátíu
þúsund krónur, bankabækur, skil-
ríki og fleiri mikilvæg gögn.
Allslaus þurfti Ragnheiður svo
að ganga heim í slagviðri og eyddi
deginum í gær í að verða sér úti
um nauðsynleg skjöl og gögn.
Fréttir af skipulögðum vasa-
þjófnaði af þessu tagi koma flatt
upp á lögreglu. Geir Jón Þórisson
lögregluvarðstjóri segist
sárasjaldan hafa heyrt af hnupli
sem þessu hérlendis. „Það er ekk-
ert nýtt að veski séu hrifsuð af
fólki með bægslagangi en ég hef
ekki heyrt oft af svona, að menn
læðist í vasa eins og tíðkast víða
erlendis.“
Geir Jón segir ástæðu til biðja
fólk að hafa varann á í jólainn-
kaupunum. „Þegar fólk er í mann-
hafi eða fjölda og það þrengir að
þá er hættan greinilega sú að það
verði stolið af því. Það er alveg
ljóst að það er fagfólk á ferð sem
ætlar sér að stela og gerir það vel,
þannig að fólk ætti að gæta að
sér.“ stigur@frettabladid.is
Vasaþjófar að erlendri
fyrirmynd í Reykjavík
Kona varð fyrir barðinu á skipulögðum vasaþjófum í miðbæ Reykjavíkur. Þeir
króuðu hana af í verslun og hnupluðu peningaveski úr tösku hennar. Fréttir af
slíkum vasaþjófnaði koma flatt upp á lögreglu, sem biður fólk að hafa varann á.
VIÐ TIGER Lögregla hefur ekki orðið vör við aukningu í vasaþjófnaði. Geir Jón Þóris-
son yfirlögregluþjónn telur samt ástæðu til að biðja fólk að gæta að sér í jólaösinni.
FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
RAGNHEIÐUR
GUÐJÓNSDÓTTIR
GEIR JÓN
ÞÓRISSON
Calia Italia Premium hvíldarsófi (Stærð: 222 sm)
Öll sætin eru með skemli. Fæst með ljósu, dökkbrúnu eða svörtu leðri
Fæst einnig sem 2ja sæta og 4ja sæta.
Verð kr. 179.900,-
SETT EHF • ASKALIND 2A • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI: 534 1400 • WWW.SETT.IS
OPNUNARTÍMI:
MÁN. - FÖS 11:00 - 18:00
LAUGARDAGA 11:00 -16:00
SUNNUDAGA 13:00 - 16:00
BJÓÐUM
MIKIÐ ÚRVAL AF
HÚSGÖGNUM
Á HAGSTÆÐU
VERÐI
VÖNDUÐ HÚSGÖGN
SÓFASETT, HVÍLDARSÓFAR, BORÐSTOFUHÚSGÖGN, RÚM OG MARGT FLEIRA
HEILBRIGÐISMÁL „Hættan er raunveruleg,“ segir
Sigurður Guðmundsson landlæknir um hættu á
spítalasýkingum vegna þrengsla á sjúkrahúsum.
Fréttablaðið greindi frá málinu í gær og hafði
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra samdægurs
samband við landlækni vegna
málsins.
Gunnar Skúli Ármannsson,
svæfinga- og gjörgæslulæknir
segir fjölda Íslendinga deyja á
hverju ári vegna sýkinga sem þeir
fá á sjúkrastofnunum. Þrengsli eru
einn helsti áhættuþáttur spítala-
sýkinga. Hann bendir þó jafnframt
á að þeir sem deyi vegna sýking-
anna séu að jafnaði veikustu
sjúklingar spítalans.
Sigurður segir að í teikningum
að nýrri spítalabyggingu verði tekið tillit til þessara
mála og þess gætt að jafnmikil þrengsli og nú eru á
spítölum myndist ekki. Þá sé í undirbúningi úttekt á
stöðunni hér á landi en hingað til hafi verið stuðst við
tölur frá löndum sem Íslendingar bera sig saman við.
„Fjölmargar rannsóknir sem gerðar hafa verið í
heiminum að undanförnu og snúa að öryggi sjúklinga
á spítölum og möguleikum á að eitthvað geti farið
úrskeiðis sýna að einn af hverjum tíu sjúklingum sem
leggjast inn á spítala getur orðið fyrir skaða vegna
meðferðarinnar beint,“ segir Sigurður. Í stórum hluta
þeirra tilfella er það spítalasýking sem veldur
skaðanum. - kdk
Heilbrigðisráðherra ræddi við landlækni vegna frétta af spítalasýkingum:
Landlæknir vill láta kanna aðstæður
SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
LANDLÆKNIR
ÞRENGSLI Erlendar rannsóknir sýna að einn af hverjum tíu
sjúklingum verður fyrir skaða vegna meðferðar á spítala.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
BELGÍA, AP Guy Verhofstadt var í
gær í þann mund að mynda
bráðabirgðastjórn í Belgíu til að
takast á við aðkallandi efnahags-
mál. Hún mun að óbreyttu sitja
fram í lok marz og hafa meiri völd
en sú óformlega bráðabirgðastjórn
sem setið hefur í hálft ár.
Verhofstadt, sem hefur verið
forsætisráðherra frá árinu 1999,
hefur í reynd gegnt embættinu
áfram frá þingkosningum í júní á
meðan reynt hefur verið að mynda
meirihlutastjórn borgaralegu
flokkanna, flæmsku og vallónsku,
sem unnu kosningarnar. Þeir hafa
nú þriggja mánaða frest til að
útkljá ágreining sinn. - gb/aa
Stjórnarkreppan í Belgíu:
Bráðabirgða-
stjórn mynduð
DÝRUSTU LÖND Í HEIMI
Bandaríkin notuð til viðmiðunar
1. Ísland - 154
2. Danmörk - 142
3. Sviss - 140
4. Noregur - 137
5. Írland - 127
20. Bandaríkin - 100
ÓDÝRUSTU LÖND Í HEIMI
6. Egyptaland - 28
5. Kirgisistan - 28
4. Laos - 28
3. Eþíópía - 26
2. Gambía - 26
1. Tadsjikistan - 24
ÞJÓFNAÐUR „Ég vil bara að fólk
viti af því að svona gerist,“ segir
Guðbjörg Jónsdóttir. Hún var
ásamt vinkonum sínum í röð á
skemmtistað um helgina. Þegar
vinkona hennar ætlaði að sækja
sér tyggjó í töskuna sína komst
hún að því að rist hafði verið gat
á hana.
Svo heppilega vildi til að hún
geymdi peninga sína ekki í
stærsta hólfinu sem skorið var á
heldur í renndu hliðarhólfi.
Guðbjörg furðar sig á því hve vel
útbúnir þjófarnir hafa verið því
það þarf virkilega beitt verkfæri
til að rista gat á jafnþykka
leðurtösku og vinkonan var með.
„Þetta er óhugnanlegt og rétt
að láta vita af þessu svo fólk geti
verið viðbúið svona löguðu,“
segir hún. - kdk
Þjófar í miðbænum:
Skorið á leður-
tösku í biðröð
RIST MEÐ HNÍF Í GEGNUM LEÐUR
Það er greinilegt að virkilega beitt verk-
færi hefur þurft til að skera í gegnum
töskuna svo lítið bæri á. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rannsókn Alþjóðabankans sýnir að verðlag á Íslandi er það hæsta í heiminum:
Ísland er dýrasta land í heimi
MATVÆLI Dýrast er að búa á Ísland
af öllum löndum heims, samkvæmt
Alþjóðabankanum.
Kona káfaði á jólasveini
Kona kann að sæta ákæru fyrir kyn-
ferðislega áreitni eftir að jólasveinn í
verslanamiðstöð í Kentucky í Banda-
ríkjunum sagði hana hafa káfað á
sér þegar hún settist í kjöltu hans.
Konunni var sleppt úr haldi lögreglu
og skal mæta fyrir rétt 3. janúar.
BANDARÍKIN
ORKUIÐNAÐUR Ríkisstjórnin
samþykkti í gær að hægt verði að
bjóða út sérleyfi til leitar, rann-
sókna og vinnslu á olíu og gasi á
Drekasvæðinu norðaustur af
Íslandi um miðjan janúar 2009.
„Niðurstöður jarðeðlisfræði-
legra mælinga á svæðinu þykja
gefa vísbendingar um að þar geti
verið að finna bæði olíu og gas í
vinnanlegu magni,“ segir í frétt
frá iðnaðarráðuneytinu. Þar segir
að mikil þróun hafi orðið í bor- og
vinnslutækni og reynsla fengist af
olíu- og gasvinnslu á miklu hafdýpi
á norðlægum slóðum. „Frekari
rannsóknir, þar á meðal rannsókn-
arboranir, þarf hins vegar til að
sannreyna hvort olíu og gas sé í
reynd að finna á Drekasvæðinu.“
- gar
Olíuleit Íslendinga:
Útboð olíuleyfa
eftir rúmt ár
STJÓRNMÁL „Ég lít á þetta sem
vinarbragð frá Össuri,“ segir
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, aðspurður um
nafngiftina BíBí
frændi sem
Össur Skarphéð-
insson iðnaðar-
ráðherra velur
Birni á bloggi
sínu.
Össur fjallar
um útrásarverk-
efni Orkuveitu
Reykjavíkur
annars vegar og Landsvirkjunar
hins vegar á bloggi sínu í fyrrinótt.
Segir Össur ósamræmi í viðhorfi
sjálfstæðismanna til þessara
tveggja verkefna eftir því hvort
þeir séu í borgarstjórn eða í
landstjórninni. „BíBí frændi segir
á heimasíðu sinni að þar sé allt í
stakasta lagi og allir séu vinir í
þeim skógi,“ skrifar Össur. - gar
Nefndur BíBí frændi af Össuri
Ég lít á þetta
sem vinarbragð
BJÖRN
BJARNASON
Ágúst, fáið þið
bara jarðepli í skóinn?
Forsvarsmenn Jarðvéla fá að
minnsta kosti jarðepli í skóinn. Fær
maður það ekki alltaf þegar maður
er óþekkur?
Líkur eru á að starfsmenn Jarðvéla fái
ekki launin sín fyrir jól. Ágúst Þorláksson
er þjónustufulltrúi hjá Eflingu sem er
stéttarfélag verkamanna hjá Jarðvélum.
SPURNING DAGSINS