Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er miðvikudagurinn 19.
desember, 353. dagur ársins.
11.20 13.25 15.29
11.36 13.09 14.43
Þrátt fyrir göfugan ásetning um notalega aðventu neyðist
maður loks til að horfast í augu við
jólagjafainnkaupin. Sú lífseiga trú
að konum þyki óstjórnlega gaman
að versla er því miður ekki dag-
sönn. Stundum er jú skemmtilegt
að skoða, en bara ef ekki þarf
absolútt að kaupa. Þvinguð krafa
um árangursríka búðarferð er hið
árlega ok sem ég lofa sjálfri mér í
hvert skipti að bera ekki aftur.
Næst skuli ég svo sannarlega
versla og pakka inn helst í janúar.
Lúmsk frestunaráráttan svæfir
svo þessa ágætu hugmynd þar til
allt er komið í óefni og að lokum
eru innkaupin afgreidd í streitu-
kasti korter í jól. Alveg eins og í
fyrra.
VANDINN er auðvitað að engan
vantar neitt. Í besta falli er hægt
að gefa viðbætur. Börnum aðeins
meira dót til viðbótar við ógrynnin
sem fyrir eru. Auðvitað verða
seint gefnar of margar bækur en
af einhverjum ástæðum er hlut-
verk foreldra líka að gefa mesta,
stærsta og besta dótið. Allavega
jafn mikið og í fyrra. Hvert og eitt
barn þarf að fá pakkann með akk-
úrat rétta innihaldinu, það sem
það þráir mest, notar viðstöðu-
laust, endist von úr viti og gerir
það að hamingjusamasta barni í
heimi.
MEÐ fyrsta barni er verkefnið
tiltölulega einfalt. Flestir leggja
allt í sölurnar til að veita einbirn-
inu sínu fallegustu gullin. Með
dyggri hjálp umhverfisins getur
einn lítill grislingur eignast yfir-
fullt herbergi af herlegheitum
sem hann moðar úr og arfleiðir
svo yngri systkini að. Vandi for-
eldranna eykst þannig aðeins með
öðru barninu, því nú vantar ekki
eins mikið og síðast. Á þriðja barni
er málið komið í hnút, allt er nú til
og hugmyndir um nýjar jólagjafir
fullkomlega ófleygar. Eftir and-
lausa hringferð um flóruna í hug-
anum dróst ég af stað í verslunar-
ferð. Því lengur sem ég hringlaði
um risastóra leikfangabúðina með
tóma innkaupakerru, því andlaus-
ara varð allt þetta dót.
ÞAÐ er af sem áður var þegar
hann fékk bók en hún fékk nál og
tvinna, eins og hið kunna jólalag
staðhæfir að hafi þótt fullgott.
Hnátan sem var himinsæl með
verkfæri til hannyrða hefur trú-
lega verið skyld konunni sem dó
af hamingju þegar hún fékk
straujárn í jólagjöf frá manninum
sínum. Blessuð sé minning
hennar.
Hamingjusam-
asta barnið
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
01
76
1
2/
07
Skoðaðu Toyota blaðið núna á netinu
Toyota blaðið er komið út og í samræmi við umhverfisstefnu Toyota
er það gefið út rafrænt. Blaðið er stútfullt af áhugaverðu efni:
Hilux á Segulpólinn, Sportköfun í Silfru, Töfrar í Tíbet, Draumur
frjálsíþróttafólksins og margar fleiri spennandi greinar.
Farðu á www.toyota.is og náðu Toyota blaðið á pdf-formi.
Einfalt, fljótlegt, umhverfisvænt, skemmtilegt og umfram allt ókeypis.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070