Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 66
19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
HANDBOLTI Alþjóða handknattleikssambandið,
IHF, hefur tekið þá ákvörðun að endurtaka
Asíuleikana í handknattleik – bæði í karla-
og kvennaflokki. Mun mótið verða klárað
fyrir lok janúar á næsta ári en mótið er einn-
ig undankeppni fyrir Ólympíuleikana í Pek-
ing.
Þessi ákvörðun kemur í kjölfar kvört-
unar kóreska ólympíusambandsins vegna
úrslitaleiks Kúveit og Suður-Kóreu í
keppninni. Sá leikur var einn farsi frá
upphafi til enda og duldist engum að
brögð voru í tafli. IHF hafði sett reynt og
virt þýskt dómarapar á leikinn en rétt
fyrir leik tók tækninefnd asíska sam-
bandsins fram fyrir hendurnar á þeim og
setti par frá Jórdaníu á leikinn.
Dómararnir stálu algjörlega senunni og
sáu til þess að slakt lið Kúveit rúllaði yfir
sterkt lið Kóreu með einum átta mörkum.
Leikurinn hefur síðar verið sendur út um
allan heim og í kjölfarið krafðist alþjóða
ólympíunefndin þess að IHF rannsakaði
ásakanir um mútur og spillingu ofan í kjölinn og
tæki á málinu. Að öðrum kosti kæmi vel til greina
að banna handknattleik á
Ólympíuleikunum.
Stjórn IHF hefur í kjöl-
farið ákveðið að endurspila
keppnina í heild sinni í
báðum flokkum og þar með
líklega bjargað því að hand-
bolti verði áfram spilaður á
Ólympíuleikunum. - hbg
Alþjóða handknattleikssambandið hefur tekið á ásökunum um spillingu:
Asíuleikarnir verða endurteknir
ANNAÐ TÆKIFÆRI Kyung Shin-Yoon
og félagar í suðurkóreska landsliðinu
fá annað tækifæri til þess að tryggja
sér sér sæti á Ólympíuleikunum í
janúar. Kórea tapaði síðasta úrslita-
leik gegn Kúveit sem var vægast sagt
vafasamur.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Margrét Lára Viðarsdótt-
ir hefur ekki ákveðið hvar hún
muni spila sumarið 2008 en það
dylst engum að það eru mörg stór
erlend lið á eftir bestu knatt-
spyrnukonu landsins.
Daginn eftir að hún var kosin
knattspyrnukona ársins annað
árið í röð flaug hún til Indianapol-
is í Bandaríkjunum þar sem hún
keppist um að vinna sér sæti hjá
bandaríska liðinu FC Indiana sem
er eitt að liðunum sem koma til
með að mynda nýja bandaríska
atvinnumannadeild árið 2009. FC
Indiana vann bandarísku úrvals-
deildina í ár og hefur verið eitt af
bestu liðum hennar undanfarin
tímabil.
„Það eru flottir hlutir í spil-
unum hjá mér. Ég er að fara
til Ameríku og ætla að fara
að skoða þar lið sem heitir
Indiana og er frá Indiana-
polis sem er rétt hjá
Chicago. Þetta virðist vera
sterkt lið sem ætlar sér mikið í
nýju atvinnumannadeildinni. Þeir
eru að taka inn leikmenn til þess
að skoða fyrir 2009. Þeir skoða sjö
leikmenn frá Evrópu og velja
fjóra þar út sem komast inn í liðið
á næsta ári,“ segir Margrét Lára
sem getur vel hugsað sér að spila í
Bandaríkjunum takist henni vel
upp.
„Þetta er mikið tækifæri fyrir
mig og það verður gaman að skoða
aðstæðurnar þarna úti. Það væri
frábært að komast að hjá þessu
liði og það er gaman að fá að skoða
þetta þarna í Bandaríkjunum en
maður rennur nokkuð blint í sjó-
inn. Maður þekkir Norðurlöndin
og þekkir Þýskaland og það er því
gaman að sjá hvað þeir séu að spá
og hvernig framtíðin verður þarna
úti í Bandaríkjunum,“ segir Mar-
grét Lára.
Margrét Lára hefur einnig skoð-
að aðstæður í Svíþjóð.
„Ég ætla að byrja á því að skoða
Bandaríkin, svo er Svíþjóð ennþá
inni í myndinni og svo má
ekki gleyma því að ég er
í einu besta liðinu í Evr-
ópu og ég fer ekki frá
Val nema það sé eitt-
hvað virkilega gott í boði.
Ég hef verið mikið að
skoða Djurgården en ég vil fara í
sterkt lið þar sem ég þarf virki-
lega að hafa fyrir hlutunum,“ segir
Margrét Lára sem vill ekki nefna
fleiri sænsk lið en það margir sem
myndu bíða spenntir eftir að sjá
hana spila við hlið Vikt-
oriu Svensson sem
hefur verið aðal-
sóknarmaður
sænska
lands-
liðs-
ins
undanfarin ár.
Margrét Lára
skoraði 77 mörk á
árinu 2007, þar af 8
þeirra með íslenska
A-landsliðinu. Það
er ljóst á öllu að Vals-
liðið hefur enn mikið
að bjóða fyrir Mar-
gréti Láru sem
hefur skorað 182
mörk í 89 mót-
sleikjum með Val
sem hún gekk til
liðs við fyrir sum-
arið 2005.
„Umgjörðin og
metnaðurinn í þjálfun
er gríðarlega mikill í
Val og það er frá-
bært tækifæri að fá
að spila með Val.
Mín þrjú ár í Val
hafa verið
frábær
og ég sé ekki eftir því að hafa
spilað fyrir þann klúbb. Þetta er
frábær klúbbur, með gott þjálf-
arateymi sem leggur mikið upp
úr því að ná árangri. Það er það
umhverfi sem ég er að leitast eftir.
Það skiptir mig miklu máli að
maður sé að læra á hverri æfingu,“
segir Margrét Lára.
Margrét Lára segist hafa brennt
sig á því að fara til MSV Duisburg
í Þýskalandi en annars segir hún
sig vera komna lengra í boltanum
en hún bjóst við fyrir nokkrum
árum.
„Ég myndi segja að ég væri
komin
framar
en ég
bjóst við.
Ég stefndi í
fyrsta lagi
aldrei á A-
landsliðið fyrr
en ég yrði 18 eða
19 ára og það
gerðist þegar ég
var sextán ára.
Ferillinn hefur
verið mjög flott-
ur og ég hef
tekið stór
skref. Það er
mjög mikil-
vægt að
halda sér
niðri á
jörðinni
ef maður
ætlar að
ná
árangri.
Maður má
ekki vera
upp í skýjun-
um heldur
finna sér nýtt
verkefni og
nýtt markmið
og finna þá
hluti hjá sér
þar sem maður
getur bætt sig,“
segir Margrét
Lára, en hversu
miklar
líkur eru
á að hún
velji
Banda-
ríkin?
„Það gæti verið rétt leið fyrir
mig að fara til Ameríku. Þegar ég
fór til Þýskalands þá steig ég rangt
skref sem ég lærði rosalega mikið
af og gerði mig að betri knatt-
spyrnukonu fyrir vikið. Næsta
skref vil ég að verði gott skref, í
góða átt, að árangri einhvers stað-
ar annars staðar,“ segir Margrét
Lára og nú er að sjá hvort hún
komist að hjá einu heitasta liðinu í
Bandaríkjunum. ooj@frettabladid.is
Er í einu besta liði Evrópu
Knattspyrnukona ársins, Margrét Lára Viðarsdóttir, heldur öllum dyrum opn-
um en vill fara í sterkt lið þar sem hún þarf virkilega að hafa fyrir hlutunum.
Hún keppir nú um laust sæti hjá bandaríska liðinu FC Indiana.
FJÓRÐI GULLSKÓRINN Margrét Lára
Viðarsdóttir hefur unnið gullskóinn
fjögur ár í röð. Hér er hún ásamt Jónasi
Grana Garðarssyni sem vann gullskóinn
í karladeildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BESTA KNATTSPYRNUKONA
LANDSINS Margrét Lára Viðars-
dóttir skoraði 69 mörk með Val í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON